Þingforseti sem hamast gegn innflytjendum og fjölmenningu heldur hátíðarræðu á Þingvallafundi

Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins og fyrr­ver­andi leið­togi Danska þjóð­ar­flokks­ins, heldur hátíð­ar­ræðu á Þing­valla­fund­inum á morgun.

Þingforseti sem hamast gegn innflytjendum og fjölmenningu heldur hátíðarræðu á Þingvallafundi
Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins, ásamt Stein­grími J. Sig­fús­syni, for­seta Alþingis.

Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins og fyrr­ver­andi for­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins, mun flytja hátíð­ar­ræðu á Þing­valla­fund­inum á morgun, 18. júlí. Pia er þekkt fyrir útlend­inga­andúð og bar­áttu sína gegn fjöl­menn­ingu og íslam. Árið 2010 kall­aði hún eftir því að stjórn­völd bönn­uðu inn­flytj­endum sem ekki væru af vest­rænum upp­runa að setj­ast í Danmörku.

Fund­ur­inn er hald­inn í til­efni þess að á morgun verða 100 ár liðin frá sam­þykkt sam­bands­laga­sátt­mál­ans sem und­ir­rit­aður var í Alþing­is­hús­inu og lagði grund­völl full­veldis og sjálf­stæðis Íslands, 1. des­em­ber 1918.

Pia var kjörin for­seti danska þings­ins árið 2015 og er fyrsta konan til að gegna því emb­ætti. Þá var hún for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins frá stofnun og til hausts­ins 2012.

Árið 2010 beitti Pia sér fyrir því að tvær stærstu arab­ísku stjórn­varps­stöðv­arnar, Al, Jazeera og Al Arabiya, yrðu sviptar rétt­inum til útsend­inga í Danmörku. Sagði hún útsend­ing­arnar vera hat­ursá­róður sem hægt væri að stöðva á grund­velli danskra laga. Áður hafði hún lagt til að gervi­hnatta­loft­net yrðu bönnuð í hverfum inn­flytj­enda. Ekkert varð þó úr hug­myndum Piu.

Ári síðar krafð­ist hún þess að lögum yrði breytt með þeim hætti að öllum inn­flytj­endum sem gerst hefðu brot­legir við dönsk lög yrði vísað úr landi. Þá lagði hún fram til­lögu ásamt Danska þjóð­ar­flokknum þess efnis að reikn­aður yrði út kostn­aður við þá inn­flytj­endur sem ekki væru af vest­rænum upp­runa. Þótti henni mik­il­vægt að inn­fæddir Danir fengju upp­lýs­ingar um hversu mikið inn­flytj­end­urnir kost­uðu sam­fé­lagið.

Pia verið dæmd til sekt­ar­greiðslu fyrir ólög­legan vopna­burð en árið 2002 hót­aði Pia konu nokk­urri með piparúða. Sagði Pia kon­una hafa gerst svo ágenga að hún hafi þurft að draga pipar­úð­ann upp úr töskuni og sýna kon­unni. Sektin nam 3.000 dönskum krónum eða um 50 þús­und íslenskum.

Dagskrá morg­un­dags­ins vegna þing­fund­ar­ins á Þing­völlum hefst klukkan 12:45 og verður hún í beinni útsend­ingu á Rúv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár