Sýslumaður skipaði nefnd um ótæka kæru: Sakaður um „ólögmæt afskipti“ af kosningum

Yfir­kjör­stjórn Reykja­víkur gagn­rýnir með­ferð sýslu­manns á kærunni harð­lega og telur að um sé að ræða óeðli­legt inn­grip fram­kvæmda­valds í kosn­ingar sveit­ar­fé­laga.

Sýslumaður skipaði nefnd um ótæka kæru: Sakaður um „ólögmæt afskipti“ af kosningum

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skip­aði nefnd sem hefur tekið kæru Pírata á fram­kvæmd sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga til efn­is­með­ferðar þrátt fyrir að lög um sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar kveði ein­ungis á um að kæra megi kosn­ingu eftir að úrslit liggja fyrir. Kæran lýtur að úthlutun lista­bók­stafs­ins Þ til Frels­is­flokks­ins, en áður hafa Píratar notað bók­staf­inn.

Yfir­kjör­stjórn Reykja­víkur gagn­rýnir með­ferð sýslu­manns á kærunni harð­lega og telur að um sé að ræða „ólög­mæt afskipti“ og óeðli­leg inn­grip fram­kvæmda­valds í kosn­ingar sveit­ar­fé­laga. Þetta kemur fram í bréfi yfir­kjör­stjórnar til sýslu­manns, en RÚV greindi fyrst frá mál­inu um helg­ina. Kallar yfir­kjör­stjórn eftir því að skipan nefnd­ar­innar verði aft­ur­kölluð og kærunni vísað frá, enda bresti nefnd­ina heim­ild að lögum til að taka kæruna til efn­is­með­ferðar. Kjör­stjórn óskaði eftir því að sýslu­maður brygð­ist við bréfi sínu eigi síðar föstu­dag­inn 18. maí, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar hafa enn engin svör borist.

Í lögum um kosn­ingar til sveit­ar­stjórna kemur skýrt fram að gert er ráð fyrir því að kosn­ing sé kærð eftir að úrslitum hefur verið lýst. Orðrétt segir í 1. mgr. 93. gr. lag­anna: Sá sem vill kæra sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingu skal afhenda kæru sína hlut­að­eig­andi sýslu­manni innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosn­inga.

Eins og yfir­kjör­stjórn bendir á í bréfi sínu mið­ast þannig kæru­frestur við það tíma­mark þegar úrslitum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga er lýst og lýkur sjö dögum síðar. Um er að ræða sams konar ákvæði og er að finna í lögum um þing­kosn­ingar og for­seta­kosn­ingar, en Hæsti­réttur vís­aði frá kæru for­seta­kosn­inga árið 2016 á þeim grund­velli að ekki væri hægt að fjalla um gildi for­seta­kjörs sem ekki væri lokið. Í ljósi þessa og fleira telur yfir­kjör­stjórn ljóst að sýslu­maður hafi ekki farið að lögum þegar hann skip­aði nefnd vegna kæru Pírata, enda var engin kæru­heim­ild til staðar. Þá gagn­rýnir yfir­kjör­stjórn einnig að nefndin hafi tekið kæru Pírata til efn­is­legrar með­ferðar og sent út umsagn­ar­beiðni.

„Frjálsar og óháðar kosn­ingar eru horn­steinn lýð­ræðis og þarf fram­kvæmd þeirra að sam­þýð­ast lögum og þeim grund­vallar sjón­ar­miðum íslenskrar stjórn­skip­unar sem þar um kunna að gilda. Í því sama felst að afskipti eða inn­grip fram­kvæmda­valds­ins í fram­kvæmd kosn­inga verða að byggj­ast á skýrum og ótví­ræðum laga­heim­ildum. Hvers konar ólög­mæt afskipti eða inn­grip fram­kvæmda­valds í kosn­ingar sveit­ar­fé­laga eru þar fyrir utan til þess fallin að varpa rýrð á traust almenn­ings sem og alþjóða­sam­fé­lags­ins til kosn­inga og fram­kvæmdar þeirra hér á landi,“ segir í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2018

ÚttektSveitarstjórnarkosningar 2018

Laun íslenskra bæj­ar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæj­ar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borg­ar­stjóra New York og London. Báðir bæj­ar­stjórar eru á hærri launum en for­sæt­is­ráð­herra. Laun bæj­ar­stjóra Kópavogs hækk­uðu um tæp 58% á kjör­tíma­bil­inu og laun bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæjar um 36%. „Allt órétt­læti mun kalla á meiri óánægju,“ segir for­maður stétt­ar­fé­lags­ins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár