Ferðakostnaður ráðherra og ráðuneytisstjóra nemur 100 milljónum

Kostn­aður vegna utan­lands­ferða sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra 17 millj­ónir síð­ustu fimm ár. Sex ráð­herrar hafa fengið rúmar 20 millj­ónir í dag­pen­inga. Upp­lýs­ingar enn ekki borist um helm­ing ráðu­neyta.

Ferðakostnaður ráðherra og ráðuneytisstjóra nemur 100 milljónum
100 millj­óna kostn­aður og helm­ing­ur­inn ótal­inn Kostn­aður við utan­lands­ferðir sex ráð­herra og fjög­urra ráðu­neyt­is­stjóra hefur á síð­ustu fimm árum numið um 100 millj­ónum króna. Enn eiga eftir að ber­ast upp­lýs­ingar frá fimm ráð­herrum. Mynd: Stjórnarráðið

Kostn­aður við utan­lands­ferðir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur síð­ustu fimm ár numið rúmum 17 millj­ónum króna. Á sama tíma nam kostn­aður vegna utan­ferða heil­brigð­is­ráð­herra aðeins um 3,6 millj­ónum króna. Kostn­aður sem hlot­ist hefur af utan­ferðum ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra á síð­ustu fimm árum er um 15,8 millj­ónir króna en kostn­aður vegna ferða félags­mála­ráð­herra nemur hins vegar rétt tæpum 6 millj­ónum. Alls nemur kostn­aður við utan­lands­ferðir ráð­herr­anna fjög­urra því rúmum 42 millj­ónum króna á þessu fimm ára tíma­bili.

Fimm ráðherrar eiga eftir að svara

Þetta kemur fram í svörum frá ráð­herr­unum við fyr­ir­spurnum Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata. Björn Leví lagði fram fyr­ir­spurn um ferða­kostnað allra ráð­herra og hafa svörin verið að ber­ast síð­ustu daga. Auk ráð­herr­anna fjög­urra sem eru nefndir hér að framan greindi Stundin frá því í síð­ustu viku að ferða­kostn­aður for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra á sama tíma­bili hefði numið um 27 millj­ónum króna. Sam­an­lagður ferða­kostn­aður sex ráð­herra hefur því á síð­ustu fimm árum numið 69 millj­ónum króna. Enn eiga eftir að ber­ast svör frá fimm ráð­herrum. Rétt er að nefna að á þessum fimm árum hafa orðið ýmsar breyt­ingar á ráð­herra­lið­inu og því ekki um sömu ráð­herra að ræða á tíma­bil­inu öllu.

Skýr­ingin á því að kostn­aður vegna utan­ferða félags­mála­ráð­herra og heil­brigð­is­ráð­herra er þetta mikið lægri en vegna utan­ferða hinna ráð­herr­anna liggur einkum í því að þeir hafa farið all nokkru færri ferðir úr landi á tíma­bil­inu. Kostn­að­ur­inn sem um ræðir liggur í greiðslum dag­pen­inga, greiðslu fyrir gist­ingu og ferða­kostn­aði.

Ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra fékk greiddar rúmar 3,3 millj­ónir í dag­pen­inga á síð­ustu fimm árum. Kostn­aður vegna gist­ingar nam tæpum 3,5 millj­ónum og ferða­kostn­aður um 9 millj­ónum króna. Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra fékk á sama tíma­bili greiddar tæpar 4 millj­ónir króna í dag­pen­inga. Greiddar voru tæpar 3 millj­ónir fyrir gist­ingu og rúmar 10 millj­ónir í ferða­kostnað.

Dagpeningagreiðslur upp á 20 milljónir króna

Kostn­að­ur­inn við utan­ferðir félags­mála­ráð­herra og heil­brigð­is­ráð­herra er sem fyrr segir mun lægri. Félags­mála­ráð­herra fékk um 1,2 millj­ónir króna greiddar í dag­pen­inga, greiddar voru um 1,2 millj­ónir króna fyrir gist­ingu og ferða­kostn­aður var tæpar 3,5 millj­ónir króna á þessu fimm ára tíma­bili. Heil­brigð­is­ráð­herra voru greiddar rúm ein milljón króna í dag­pen­inga, gist­ing kost­aði tæpa 1 milljón króna og ferða­kostn­aður nam ríf­lega 1,6 millj­ónum króna.

Heild­ar­kostn­að­ur­inn bara vegna greiðslu dag­pen­inga til ráð­herr­anna fjög­urra sem hér er fjallað um rúmum 15 millj­ónum króna. Dag­pen­inga­greiðslur til for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra nam 5,4 millj­ónum og dag­pen­inga­greiðslur til ráð­herr­anna sex námu því á síð­ustu fimm árum um 20,5 millj­ónum króna.

Ferðir ráðuneytisstjóra kostuðu 15 milljónir

Í fyr­ir­spurnum Björns Leví var einnig spurt um sam­svar­andi kostnað ráðu­neyt­is­stjóra. Þeir eru aðeins tveir þar eð einn ráðu­neyt­is­stjóri er í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu þar sem heil­brigð­is­ráð­herra og félags­mála­ráð­herra sitja báðir, og einn ráðu­neyt­is­stjóri er sömu­leiðis yfir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, hvar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra situr.

Heild­ar­kostn­aður vegna utan­ferða ráðu­neyt­is­stjór­anna tveggja nam á síð­ustu fimm árum tæpum 14 millj­ónum króna. Ráðu­neyt­is­stjóri vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins fékk greiddar tæpar 3,8 millj­ónir króna í dag­pen­inga og ferða­kostn­aður hans var rúmar 3,4 millj­ónir króna. Athygli vekur hins vegar að kostn­aður vegna gist­ingar á þessum fimm árum nam aðeins 140 þús­und krónum. Ráðu­neyt­is­stjóri atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins fékk greidda tæpa 1,9 milljón króna í dag­pen­inga, gist­ing kost­aði rúma 1 milljón og ferða­kostn­aður rúmar 3,5 millj­ónir króna.

Alls nam því kostn­aður vegna utan­ferða ráð­herr­anna fjög­urra og ráðu­neyt­is­stjór­anna tveggja 56,3 millj­ónum króna síð­ustu fimm ár. Kostn­aður vegna utan­ferða fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra auk ráðu­neyt­is­stjóra ráðu­neyt­anna tveggja nam á sama tíma um 44 millj­ónum líkt og greint var frá í síð­ustu viku. Alls hefur því þurft að greiða 100 millj­ónir króna í ferða­kostnað vegna utan­ferða ráð­herrr­anna sex og ráðu­neyt­is­stjór­anna fjög­urra á síð­ustu fimm árum.  

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár