Stærðarhlutföll Reykjavíkur

Hvað tekur mest pláss í lífi borg­ar­búa?

Reykja­vík er til­tölu­lega ung og fámenn borg í sam­an­burði við aðrar höf­uð­borgir. Borg­ar­þró­unin ber þess merki. Hún er þekkt fyrir að vera strjál­býl með ein­dæmum og sömu­leiðis fyrir mik­inn bíla­fjölda, þar sem Reyk­vík­ingar eru meðal þeirra borga sem nota einka­bíl­inn hvað mest. Í Reykja­vík er tals­vert um úti­vist­ar­svæði og leik­svæði fyrir börn. Á síð­ustu árum hefur einnig átt sér stað hávær umræða um hús­næð­is­skort, að í borg­inni rísi ekki nægi­lega mikið magn íbúð­ar­hús­næðis. 

Andri Gunnar Lyngberg arki­tekt og Björn Teitsson blaða­maður tóku sig til og skoð­uðu Reykja­vík­ur­borg í hlut­falls­legu ljósi. Hvað ætli heild­ar­fjöldi bíla taki mikið pláss af borg­ar­svæð­inu? En hvað með ef allir íbúar væru sam­an­komnir á sama stað? Hve hátt hlut­fall borg­ar­innar fer undir götur og bíla­stæði, ein­göngu fyrir einka­bíl­inn? Hvað skiptir okkur borg­ar­búa mestu máli?

Þegar borgin er sett í slíkt sam­hengi á mynd­rænan hátt getur útkoman verið bæði áhuga­verð og umhugs­un­ar­verð.

 

 

Hvar gætum við komið fyrir öllum borgarbúum á einum stað?

Reyk­vík­ingar eru 122.460 tals­ins sé miðað við mann­fjölda við árs­lok 2016. Ef við gæfum okkur aðstæður á borð við tón­leika eða hópá­horf á fót­bolta­leik (svo dæmi séu tekin), gætu allir Reyk­vík­ingar því kom­ist fyrir á Klambra­túni. Þetta væri mögu­legt jafn­vel þótt hver og einn íbúi hefði heilan fer­metra til að athafna sig, sem verður að telj­ast nokkuð drjúgt í miklum mann­fjölda þar sem pláss er af skornum skammti. Til að gefa hug­mynd um hve margt fólk kemst fyrir á einum fer­metra, má ímynda sér þrönga stemn­ingu á skemmti­stöðum á borð við Kaffi­bar­inn eða Prikið, eða þegar fólk er alveg upp við sviðið á fjöl­sóttum tón­leikum. Í svo­leiðis til­vikum eru jafnan um sex til átta ein­stak­lingar á fer­metra, sem verður þó að telj­ast ansi þröngt.

Fjöldi fólks: 122.460
Flat­ar­mál Klambratúns: 0,12 km2
Flat­ar­mál Reykja­víkur: 50,3 km2
Hlutfall fólks af flat­ar­máli Reykja­víkur: 0,24% 

 

 

Hvar gætum við komið fyrir öllum byggingum í Reykjavík?

Bygg­ingar í Reykja­vík taka um fimmt­ung af heild­ar­flat­ar­máli borg­ar­innar, eða rétt tæp­lega 23%. Þar með eru taldar allir byggðir brúttó fer­metrar, hvort sem þar er um að ræða íbúð­ar­hús­næði, skóla, versl­anir, atvinnu- eða þjón­ustu­hús­næði, menn­ingar- eða íþrótta­hús, bíl­skúra eða vöru­skemmur. Það þýðir að allar bygg­ingar sem fyr­ir­finn­ast í Reykja­vík gætu kom­ist fyrir innan Graf­ar­vogs, sé Gufu­nesið og Höfð­arnir taldir með – sem og Vík­ur­hverfi, Borgir og Engja­hverfi.

Fjöldi byggðra fer­metra: 11,5 km2
Flat­ar­mál Reykja­víkur: 50,3 km2
Hlutfall byggðra fer­metra: 22,8% 

 

 

Hvað fer mikið svæði undir götur og bílastæði?

Götur og bíla­stæði þekja einnig um fimmt­ung af heild­ar­flat­ar­máli Reykja­víkur. Væri öllu þessu mal­biki þjappað saman gæti það þakið allan Vest­ur­bæ­inn, Skerja­fjörð, Reykja­vík­ur­flug­völl, mið­borg­ina, Norð­ur­mýri, allt Hlíða­verfið og Holtin. Þess ber að geta að svæði sem eru helguð bílum á borð við bíla­stæða­hús og bíl­skúra telj­ast ekki með, heldur í flokki byggðra fer­metra. Þá má einnig geta þess að hér er ekki tekið til veg­helg­un­ar­svæða í heild, sem er umtals­vert magn land­svæðis sem umlykja götur, hrað­brautir og bíla­stæði.

Flat­ar­mál gatna og bíla­stæða: 10,5 km2
Heild­ar­stærð Reykja­víkur: 50,3 km2
Hlutfall flat­ar­máls fyrir götur og bíla­stæða: 20,9% 

 

 

Hve mikið pláss taka bílarnir sjálfir?

Í Reykja­vík eru um þessar mundir rétt um 100 þús­und bílar en sú tala hækkar í 133 þús­und ef bílar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í heild sinni eru taldir með. En fyrir þessa rann­sókn höldum við okkur við 100 þús­und bíla, sem gerir Reykja­vík reyndar að einni mestu bíla­borg heims með um 806 bif­reiðar á hverja 1000 íbúa. Þess má geta að með­al­talið í Banda­ríkj­unum er 799 bílar á hverja 1000 íbúa. Til gam­ans má geta að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Sam­göngu­stofu er með­al­lengd bíla í Reykja­vík 4,39 metrar en með­al­breidd er 1,78 metrar. Hér er hins vegar gert ráð fyrir að öllum fólks­bílum væri útvegað bíla­stæði, sem er jafnan 2,5 metrar að breidd og 5 metrar að lengd. Væri öllum bílum í Reykja­vík lagt upp við hver annan gætu þeir því þakið jafn­stórt land­svæði og þekur Reykja­vík­ur­flug­völl, og það að neyð­ar­braut­inni svoköll­uðu með­taldri.

Fjöldi bíla: 99.600 
Heild­ar­flat­ar­mál fyrir bíla: 1,2 km2
Heild­ar­stærð Reykja­víkur: 50,3 km2
Hlutfall fyrir flat­ar­mál bíla: 2,5% 

 

 

Hve mikið pláss taka allir strætisvagnar?

Almenn­ings­sam­göngur í Reykja­vík gegna veiga­miklu hlut­verki við að koma fólki í og úr skóla og vinnu, bæði morgna og síð­degis. Á álags­tímum eru flestir vagnar yfir­fullir og þétt setnir, svo mjög að yfir­leitt þarf að kalla út auka­vagna. Á þessum álags­tímum getur vagna­fjöld­inn á götum borg­ar­innar farið í 122 vagna sem keyra þá á sama tíma. En hve mikið pláss taka þeir? Í sam­an­burði við bíl­ana er það pláss nokkuð hóf­legt. Allir stræt­is­vagnar, sem eru að með­al­tali 12 metrar að lengd og 2,52 metrar að breidd, kæmust fyrir á Haga­torgi, hring­torg­inu sem er að finna milli Hótel Sögu, Háskóla­bíós og Melanna í Vesturbæ. Gert er ráð fyrir að heill metri sé á milli vagn­anna.

Fjöldi stræt­is­vagna: 122
Heild­ar­flat­ar­mál stræt­is­vagna: 0,06 km2
Heild­ar­stærð Reykja­víkur: 50,3 km2
Hlutfall fyrir flat­ar­mál stræt­is­vagna: 0,1% 

 

 

Hve hátt hlutfall Reykjavíkur fá börnin?

Í Reykja­vík eru opin leik­svæði, skóla­lóðir og leik­skóla­lóðir hugsuð sem afdrep fyrir börn, þar sem þau geta leikið sér áhyggju­laust. Öll opin leik­svæði borg­ar­innar, ásamt skóla-og leik­skóla­lóðum, kæmust fyrir í Elliða­ár­dalnum fyrir neðan Elliða­ár­virkjun, að Ártúns­holt­inu með­töldu. Hér er rétt að taka fram að græn svæði, á borð við Hljóm­skála­garð­inn, Klambratún eða Elliða­ár­dal sjálfan, eru hér ekki tekin með. Hér er aðeins um skil­greind leik­svæði að ræða, þar sem leik­tæki fyrir börn eru til staðar.

Heild­ar­flat­ar­mál leik­svæða fyrir börn: 1,6 km2
Flat­ar­mál Reykja­víkur: 50,3 km2
Hlutfall leik­svæða í borg­inni: 3,4% 

 

 

Hvert er hlutfall almenningsgarða og grænna svæða?

Í nýlegri úttekt hol­lensku ferða­stof­unnar Travel­bird kom fram að Reykja­vík væri græn­ust 50 höf­uð­borga sem stofan skoð­aði. Var þar fundið hlut­fall af óbrotnu landi innan borg­ar­marka. Þar var tekið allt það land­svæði sem heyrir undir Reykja­vík­ur­borg, til að mynda Esjan, Kjal­ar­nes, Viðey, Geld­inga­nes og svo fram­vegis. Séu skipu­lögð græn svæði innan byggðar talin saman er útkoman þó nokkuð frá­brugðin þeirri sem Tra­vel­bird komst að. Reykja­vík kemur þó enn vel út, með hátt hlut­fall grænna svæða innan byggðar í sam­an­burði við aðrar borgir. Svæðin sem eru talin eru: sjáv­ar­síðan við Ægisíðu og Sæbraut, Hljóm­skála­garð­ur­inn, Öskju­hlíð og Naut­hóls­vík, Klambratún, Laug­ar­dalur, Foss­vogs­dalur ásamt Elliða­ár­dal og Geirsnefi. Væru öll þessi svæði lögð saman, gætu þau þakið allt Bústaða­hverfi, Fossvog og Hvassa­leiti, auk Kringl­unnar, Efsta­leitis og lóð Borg­ar­spít­al­ans.

Flat­ar­mál almenn­ings­garða og grænna svæða: 2,95 km2
Flat­ar­mál Reykja­víkur: 50,3 km2
Hlutfall almenn­ings­garða og grænna svæða: 5,9% 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár