Einn ríkasti hópurinn losnar við fasteignaskatta samkvæmt loforðum Eyþórs

Aldurs­hópurinn yfir sjötugu er einn eigna­mesti hópur landsins. Samkvæmt kosninga­loforðum Eyþórs Arnalds og Sjálfstæðis­flokksins verður þessi hópur undan­þeginn fasteigna­sköttum.

Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds Kynnti kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hádeg­inu í dag. Mynd: Framboð Eyþórs Arnalds

Kosninga­loforð Eyþórs Arnalds og Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík, um undanþágu frá fasteigna­sköttum fyrir 70 ára og eldri, hagnast best einum eigna­mesta hópi borgarinnar.

Samkvæmt svörum Eyþórs minnkar skatta­afslátturinn tekjur borgarinnar um hundruð milljóna króna, en fasteigna­skattar fjár­magnar meðal annars viðhald gatna­kerfis borgarinnar. Tekju­lægri eldri borgarar eru nú þegar undan­þegnir fasteigna­skatti, og því nýtist breytingin ekki þeim hópi.

Á kynningar­fundi sínum í hádeginu boðaði Eyþór meðal annars færri hættuleg umferðar­ljós, breytta stillingu umferðar­ljósa til að hraða umferð, meiri tíðni almennings­samgangna og tíðari þrif á götum borgarinnar.

Eignamestir fá skattaundanþágu

Að meðaltali eiga Íslendingar yfir 67 ára aldri tæpar 46 milljónir króna í eignir, samkvæmt tölum Hagstofunnar, en aðeins einn aldurs­hópur á meira, og eru það Íslendingar á aldrinum 60 til 66 ára, sem eiga 48 milljónir að meðaltali.

Rétt er að taka fram að meðaltals­tölur sýna ekki misskiptingu innan aldurs­hópsins. Hinn dæmigerði Íslend­ingur sem er eldri en 67 ára á 34,4 milljónir króna í eignir, samkvæmt miðgildis­tölum, eða rúmlega 13 milljónum króna minna en meðal­talið.

Samkvæmt núgildandi reglum fá eldri borgarar undanþágu frá fasteigna­gjöldum ef þeir hafa tekjur undir 325 þúsund krónum á mánuði og helmings­afslátt af sköttum séu tekjurnar undir 434 þúsund krónum. Leið Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík gerir hins vegar ráð fyrir því að elsti og einn eigna­mesti hópurinn fái skatta­afslátt óháð tekjum.

Þegar horft er til þess hversu mikið eigið fé fólk af ákveðnum aldurs­hópi á í fasteign kemur elsti hópurinn, sem verður undan­þeginn fasteigna­skatti samkvæmt kosninga­loforðunum, einna best út. Fólk eldra en 67 ára á að meðaltali 26,6 milljónir króna í eigið fé á mann, en mest eigið fé eiga 60 til 66 ára, eða að meðaltali 26,7 milljónir króna. Sem dæmi á fólk á aldrinum 40 til 44 ára, sem þarf áfram að borga fasteigna­skatt, að meðaltali 10,6 milljónir króna í eigið fé.

Þannig á hver einstaklingur yfir 67 ára aldri á Íslandi að meðtalali 12 milljónum króna meira í eigin fé í fasteign sinni, heldur en íbúar á höfuð­borgar­svæðinu að meðtalali. Þegar horft er til miðgildis á dæmi­gerður íbúi á höfuð­borgar­svæðinu 9 milljónir krónir í eignir í heildina, eða um 25 milljónum króna minna en dæmi­gerður eldri borgari yfir 67 ára aldri. Þar sem fasteigna­skattar taka mið af fasteigna­mati er ljóst að mestan skatta­afslátt fá þeir sem eiga mestar eignir.

Tekjur dæmigerðs eldri borgara, á aldrinum 67 ára og eldri, eru hins vegar aðeins rétt fyrir ofan miðgildis­tekjur íbúa á höfuð­borgar­svæðinu, eða 5,3 milljónir króna á ári.

Eyþór ArnaldsKynnti í dag kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.
Viðstödd í IðnóGestir kynntu sér til­lögur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Iðnó við Reykja­vík­ur­tjörn í hádeg­inu í dag.

Tíðari almenningssamgöngur, en ekki borgarlína

Eyþór kynnti einnig loforð um að betrumbæta stillingar á umferðar­ljósum til að hraða umferð. Þá lofaði hann bættum almennings­samgöngum, tíðari ferðum strætó, betri biðskýlum og úrbótum í vegamálum. Í heildina sagðist Eyþór ætla að stytta ferðatíma til og frá vinnu um 20 prósent. Eyþór og framboð Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík leggjast hins vegar gegn sameiginlegu verkefni sveitar­félaga á höfuð­borgar­svæðinu sem kallast borgar­lína, og gengur út á almennings­samgöngur í forgangs­akstri og á sérakreinum.

Eyþór hefur áður rætt þær hugmyndir að fjölga hringtorgum. Í kosninga­loforðum hans er kveðið á um að „fækka hættu­legum ljósa­stýrðum gatna­mótum“.

„Grasið er ekki slegið, götur og stígar ekki sópaðir.“

Eyþór kvaðst einnig vilja bregðast við svifryks­mengun með tíðari þrifum á götum borgarinnar. „Borgin er skítug,“ segir í glæru­kynningu Eyþórs. „Grasið er ekki slegið, götur og stígar ekki sópaðir.“

Að auki kveðst Eyþór vilja tryggja öllum börnum leikskóla­pláss við 18 mánaða aldur, með því að auka sjálf­stæði leik­skólanna og fjölga dagforeldrum.

Hildur Björns­dóttir, sem er í öðru sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins, lagði á dögunum fram þá hugmynd að auka tækifæri eldri borgara til að starfa á leik­skólum til að bregðast við manneklu.

Þá sagðist hann lofa sparnaði í stjórn­kerfi Reykja­víkurborgar, en útlistaði ekki þær tillögur nánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár