Íbúðalánasjóður: Afnám stimpilgjalds myndi hækka fasteignaverð

Átta þingmenn Sjálfstæðis­flokksins vilja afnema stimpil­gjald til að „auðvelda fólki að afla sér íbúðar­húsnæðis“. Íbúða­lánasjóður og Samtök atvinnu­lífsins telja hins vegar slíka aðgerð til þess fallna að þrýsta upp húsnæðis­verði.

Vilja auka flæði
Vilja auka flæði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Óli Björn Kárason er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis og með­flutn­ings­maður.

Íbúða­lánasjóður telur að afnám stimpil­gjalds myndi að öllum líkindum leiða til hækkunar fasteigna­verðs. Þetta kemur fram í umsögn stofnunarinnar um frumvarp sem þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, með Áslaugu Örnu Sigurbjörns­dóttur í broddi fylkingar, lögðu fram öðru sinni þann 15. desember síðastliðinn. Þar er lagt til að stimpil­gjald vegna kaupa einstaklinga á íbúðar­húsnæði verði afnumið, en með þessu vilja þing­mennirnir „auðvelda fólki að afla sér íbúðar­húsnæðis og auka skilvirkni og flæði á markaði með íbúðar­húsnæði“.

Í greinar­gerð frum­varpsins segir meðal annars: „Sýnt þykir að stimpil­gjald hafi áhrif til hækkunar fasteigna­verðs.“ Íbúða­lánasjóður tekur ekki undir þetta og segir að áhrif stimpil­gjalda á fasteigna­verð séu „að öllum líkindum til lækkunar.“

Anna Guðmunda Ingv­ars­dóttirYfir­lög­fræð­ingur Íbúða­lána­sjóðs segir að afnám stimp­il­gjalds myndi lík­lega hækka fast­eigna­verð.

Fram kemur í álitinu að niður­stöður ýmissa rannsókna bendi til þess að sá viðskipta­legi ábati sem til komi vegna afnáms stimpil­gjalds falli alfarið til seljenda, þ.e. að lækkun stimpil­gjalda leiði til samsvar­andi hækkunar íbúða­verðs. „Við aðstæður eins og á íslenskum fasteigna­markaði, þar sem framboð nýrra íbúða hefur brugðist hægt við verð­breytingum, er líklegra en ella að lækkun eða afnám stimpil­gjalda skili sér út í hærra fasteigna­verð,“ segir í umsögn Íbúða­lánasjóðs sem er undir­rituð af Önnu Guðmundu Ingvars­dóttur, yfir­lögfræðingi stofnunarinnar.

Þá er vakin athygi á því að breyting á stimpil­gjöldum geti haft meiri áhrif á fasteigna­verð en sem nemur skatt­breytingunni. „Þannig geti lækkun stimpil­gjalds um 0,8 prósentu­stig kaupverðs, eins og lagt er til með frum­varpinu, valdið hækkun fasteigna­verðs sem nemur meira en 0,8 prósentu­stigum. Sé sú raunin enda kaupendur á að greiða meira fyrir íbúðir eftir lækkun stimpil­gjalda.“ 

Í umsögn Samtaka atvinnu­lífsins um sama þingmál er einnig bent á að óvíst sé hvort frum­varpið nái því markmiði að auðvelda fólki að afla sér íbúðar­húsnæðis. „Aðgerðir eins og þessar eru til þess fallnar að ýta undir eftir­spurn eftir íbúðar­húsnæði sem leiðir til verð­hækkunar,“ segir þar. 

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir er fyrsti flutnings­maður frum­varpsins, en meðflutningsmenn eru þau Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason, Páll Magnússon, Njáll Trausti Friðbertsson, Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haralds­dóttir og Brynjar Níelsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár