Hæstiréttur: Sigríður braut lög við skipun dómara og ríkið þarf að greiða miskabætur

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra braut gegn 10. gr. stjórn­sýslu­laga þegar hún hand­valdi dóm­ara í Lands­rétt og gekk fram­hjá hæfum umsækj­endum.

Hæstiréttur: Sigríður braut lög við skipun dómara og ríkið þarf að greiða miskabætur

Hæsti­réttur Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hafi brotið lög við skipun dóm­ara við Lands­rétt.

Þetta er í sam­ræmi við fyrri nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, en Hæsti­réttur dæmir jafn­framt lög­mönn­unum Ástráði Har­alds­syni og Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni 700 þús­und krónur hvorum í miska­bætur vegna máls­ins. Ástráður og Jóhannes voru í hópi umsækj­enda sem gengið var fram­hjá við skipun dóm­ara í Lands­rétt þrátt fyrir að vera á meðal 15 hæf­ustu umsækj­enda sam­kvæmt mati hæfn­is­nefndar.

Máls­með­ferð ráð­herra var á skjön við 10. gr. stjórn­sýslu­laga um rann­sókn­ar­reglu stjórn­valda í ljósi þess að rann­sókn hennar á hæfni umsækj­enda var ófull­nægj­andi.

Af þessu leiddi jafn­framt að „ann­marki var á með­ferð Alþingis á til­lögu dóms­mála­ráð­herra þar sem ekki var bætt úr ann­mörkum á máls­með­ferð ráð­herra þegar málið kom til atkvæða­greiðslu á Alþingi“ segir í dómum Hæsta­réttar. 

Jóhannes Rúnar og Ástráður gerðu kröfu um miska­bætur og skaða­bætur á þeim grund­velli að með hátt­semi sinni hefði ráð­herra vegið að starfs­heiðri þeirra og orð­spori. 

„Þótt ekk­ert sé komið fram í mál­inu um að ráð­herr­ann hafi hagað gerðum sínum sér­stak­lega til að beina mein­gerð að æru eða per­sónu áfrýj­anda höfðu ákvarð­anir hennar eigi að síður þær afleið­ingar að bættur var hlutur ein­hvers úr hópi fjög­urra ann­arra umsækj­enda sem dóm­nefnd hafði raðað lægra en áfrýj­anda,“ segir í dómum Hæsta­réttar. 

„Þótt ráð­herr­ann hafi ekki í tengslum við þetta látið orð falla til að vega að per­sónu eða æru áfrýj­anda verður ekki fram hjá því litið að henni mátti vera ljóst að þessar gerðir gætu að ófyr­ir­synju bitnað á orð­spori áfrýj­anda og orðið honum þannig að meini. Þrátt fyrir þetta gekk ráð­herr­ann fram án þess að skeyta nokkuð um þessa aug­ljósu hættu. Að þessu virtu verður að líta svo á að full­nægt sé skil­yrðum b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaða­bóta­laga til að dæma áfrýj­anda miska­bætur úr hendi stefnda, sbr. til hlið­sjónar áður­nefndan dóm Hæsta­réttar í máli nr. 412/2010. Þær miska­bætur eru hæfi­lega ákveðnar 700.000 krónur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár