Móðir Birnu minnist hennar í ljóði: „Núna eru stjörnurnar um þig“

Þjóðin fylgd­ist skelf­ingu lostin með leit­inni að Birnu Brjáns­dóttur í jan­úar og þús­undir söfn­uð­ust saman til að heiðra minn­ingu hennar.

Móðir Birnu minnist hennar í ljóði: „Núna eru stjörnurnar um þig“

Sig­ur­laug Hreins­dóttir, móðir Birnu Brjáns­dóttur, birtir ljóð til minn­ingar um dóttur sína á Facebook í dag.

Birna fannst látin, 20 ára að aldri, við Sel­vogs­vita sunnu­dag­inn 22. jan­úar. Hennar hafði þá verið saknað í rúma viku og umfangs­mikil leit björg­un­ar­sveita staðið yfir.

Eftir lík­fund­inn má segja að íslenska þjóðin hafi sam­ein­ast í sorg. Þúsundir söfn­uð­ust saman í miðbæ Reykja­víkur og minnt­ust Birnu auk þess sem kveikt var á kertum til minn­ingar um hana á Græn­landi og í Færeyjum. Þann 29. sept­em­ber var svo græn­lenskur maður dæmdur í 19 ára fang­elsi fyrir morðið á Birnu í Hér­aðs­dómi Reykja­ness.

Birnu er minnst sem skap­andi og glað­beittrar ungrar konu sem var hug­mynda­rík, skemmti­leg en um leið lát­laus, ein­læg og trúði á það góða í fólki.

Móðir hennar birti ljóð til dóttur sinnar í dag og gaf Stund­inni leyfi til að birta það hér á vefnum ásamt ferm­ing­ar­mynd af Birnu.

Ástin mín Birna

Tíminn æðir á móti mér ... þó þú sért farin ástin mín
og ég stend bara og bið hann að stoppa ... hann hlustar ekki
og hann veður yfir mig eins og flóð
svo koma dagar, eins og afmæli og jól ... og þú ert ekki hérna
Núna er tím­inn um þig

Stjörn­u­rnar eru þarna ennþá ... þó þú sért farin ástin mín
og ég stend bara og bið þær að fara ... þær hlusta ekki
og skína áfram eins og ofbirta
svo koma norð­ur­ljósin og mán­inn ... og þú ert ekki hérna
Núna eru stjörn­u­rnar um þig

Fugl­arnir syngja ennþá ... þó þú sért farin ástin mín
og ég stend bara og bið þá að þegja ... þeir hlusta ekki
og syngja eins og tóma­rúm í loft­inu
svo fljúga þeir áfram og yfir allt ... og þú ert ekki hérna
Núna er fugla­söng­ur­inn um þig

Fólkið heldur áfram að hlæja ... þó þú sért farin ástin mín
og ég stend bara og bið það að hætta ... það hlustar ekki
og hlær eins og dynj­andi hjart­sláttur
eins og allt sé gott ... og þú ert ekki hérna
Núna er hjart­slátt­ur­inn fyrir þig

Minn­ingin um þig dvelur í hjart­anu, tím­anum, himn­inum, fugla­söngnum og hlátr­inum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sakbornings
Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár