Skattapólitík 2012 til 2016

Indriði H. Þor­láks­son sýnir hvernig skatt­byrð­inni hefur verið velt yfir á lág­tekju- og milli­tekju­fólk und­an­farin ár.

Skattapólitík 2012 til 2016

Í októ­ber 2016 birti ég grein með nafn­inu Skattapóli­tík 1993 til 2015. Þar fjall­aði ég um þróun skatt­byrði af tekju­skatti ein­stak­linga á þessu tíma­bili. Sýndi ég á grund­velli talna­gagna Rík­is­skatt­stjóra­emb­ætt­is­ins, sem öllum er opið, hvernig skatt­byrðin hefur breyst á þessu tíma­bili, sem að því leyti skipt­ist glöggt í þrennt. 

Frá upp­hafi þess og til 2005 hækk­aði skatt­byrði allra tekju­hópa nema í hópi 10% hinna tekju­hæstu þar sem hún lækk­aði, einkum hjá efstu 5 pró­sent­unum um 16 pró­sentu­stig. 

Á tíma­bil­inu 2007 til 2012 sner­ist þessi þróun við. Í lægsta tekju­hópi lækk­aði skatt­byrðin en var síðan lítt breytt upp að miðjum tekju­skala að hún fór vax­andi og óx mest hjá hæstu 5 pró­sent­unum um nærri 20 pró­sentu­stig.

Á þessu tíma­bili voru gerðar rót­tækar breyt­ingar á skatt­kerf­inu, skatt­stig­anum þrí­skipt, skattur á fjár­magnstekjur hækk­aður en frí­tekju­mark fyrir vaxta­tekjur tekið upp og auð­legð­ar­skattur tek­inn upp með það að mark­miði að auka tekjur en jafn­framt að dreifa skatt­byrð­inni með sann­gjarn­ari hætti en verið hafði.

Á þriðja tíma­bil­inu sem aðeins tók til áranna 2012 til 2015 sótti strax í sama horf og fyrir hrun. Skatt­byrðin hækk­aði í öllum tekju­bilum nema í þeim efstu þar sem hún lækk­aði, um 6% hjá efstu 5% sem að miklu leyti skýrist af afnámi auð­legð­ar­skatts­ins.

Um þetta má lesa í grein­inni í Stund­inni eða á heima­síðu minni. Grein þessi vakti gremju þáver­andi fjár­mála­ráð­herra sem reyndi að snúa út úr henni með fals­skýr­ingum sem leiddi til leið­rétt­ingar af minni hálfu og síðan skæt­ings til mín úr nærum­hverfi ráð­herr­ans.

Þessi mynd birt­ist í Stund­inni í fyrra.


Núna liggja fyrir talna­gögn frá RSK um eitt ár í við­bót, þ.e. tekju­árið 2016. Það er því fróð­legt að sjá hvort þau gögn stað­festa fyrr­greinda þróun eða hvort núver­andi for­sæt­is­ráð­herra not­aði síð­asta ár sitt í emb­ætti fjár­mála­ráð­herra til að sanna orð sín hjarðar hans í kosn­inga­bar­átt­unni að hann hafi lækkað skatta.

Í stuttu máli sagt sýna hinar nýju tölur að rík­is­stjórn þessa tíma var sjálfum sér sam­kvæm í því að verk hennar gengu þvert á orð for­ystust­unnar fyrr og nú. Á milli áranna 2015 og 2016 hækk­aði skatt­hlut­fallið enn hjá þeim 70% hjóna sem voru í neðri hluta skal­ans og mest hjá þeim tekju­lægstu eða um nærri 2,5 pró­sentu­stig á þessu eina ári. Hjá tekju­hæstu 30% lækk­aði skatt­hlut­fallið hins vegar og mest hjá hæstu 5%, um eitt pró­sentu­stig. Breyt­ing­arnar í ein­stökum tekju­bilum á þessum ára­bilum hvoru um sig og sam­tals má sjá á með­fylgj­andi mynd.

Stöpla­ritið sýnir að neðstu 30% hjóna hafa sam­tals fengið skatta­hækkun sem svarar til meira en fjög­urra pró­sentu­stiga. Næstu 40% fengu hækkun frá þremur niður í eitt pró­sentu­stig. Hjón í níundu og neðri helft tíundu tíundar fengu um 1% lækkun og efstu 5% fengu á þessum árum alls lækkun um nærri sjö pró­sentu­stig. Veru­legur hluti lækk­un­ar­innar í efstu þrep­unum er vegna afnáms auð­legð­ar­skatts­ins en hluti og öll breyt­ingin 2015 til 2016 er af öðrum ástæðum.

Eft­ir­far­andi mynd sýnir feril skatt­hlut­falls­ins eftir tekju­bilum á árunum 2012, 2015 og 2016 og segir sú mynd sömu sögu og áður er rakin.

Að lokum má svo sjá hér hvernig skatt­hlut­fallið í ein­stökum tekju­bilum hefur verið á hverju tekju­ár­anna 2007, 2012, 2015 og 2016:

Allar stað­festa þessar myndir þá ályktun fyrri greinar minnar að skattapóli­tíkin frá 2013 hefur öll ein­kenni þeirrar stefnu sem rekin var á árunum fyrir hrun. Inn­byggðir fastar skatt­kerf­is­ins, per­sónu­af­sláttur, skatt­þrep og bætur eru látnar mola tekju­jöfnun þess niður með því að breyta þeim ekki í takt við breyt­ingar á ytri aðstæðum eða laga skatt­hlut­föllin að þeim. Þótt þessar breyt­ingar séu tækni­legs eðlis er það póli­tísk ákvörðun að haf­ast ekki að.

„Skatta­lækk­anir í efstu tekju­bil­unum
hafa verið bornar uppi af skatta­hækk­unum
í neðri tekju­bil­unum“

Eft­ir­tekt­ar­vert er að á tíma­bil­inu hefur með­al­skatt­hlut­fallið lítið sem ekk­ert breyst. Að því leyti er það rétt að segja að skattar hafi ekki breyst rétt eins og að full­yrða að sá hafi það gott sem er með annan fót­inn í krapa­vatni og hinn í sjóð­heitu vatni. Að með­al­tali bara gott. En þetta þýðir hins vegar það að hækk­anir og lækk­anir innan kerf­is­ins hafa vegið hvor aðra upp. Í mæltu máli segir það að skatta­lækk­anir í efstu tekju­bil­unum hafa verið bornar uppi af skatta­hækk­unum í neðri tekju­bil­unum. Hinir tekju­lægri greiða fyrir hina tekju­hærri eins og eft­ir­far­andi mynd sýnir þegar breyt­ing á fjár­hæð skatta í hverju tekju­bili er reiknuð út frá breyttu skatt­hlut­falli og skatt­stofni 2016.

Hér má sjá breyt­ingar á skatt­byrði yfir tíma­bilið 2012 til 2016.

Myndin sýnir að skatta­hækk­anir sam­tals í hverrri tekju­tí­und upp að þeirri sjö­undu er á milli 1 og 2 millj­arðar króna. Níunda og neðri helft hinnar tíundu fengu lækkun um ca. einn millj­arð hvor í sinn hlut en efst 5% kass­er­uðu 9,5 millj­örð­unum á breyt­ing­unum. Heild­ar­gróði og tap er svo að sjá í eft­ir­far­andi mynd sem sýnir að hátt í 12 millj­arðar hafa með skatta­breyt­ingum verið færðir frá hinum tekju­lægri hópum til hinna tekju­hærri. 

Hér má sjá breyt­ingar á skatt­byrði yfir tíma­bilið 2012 til 2016.

Höfundur er hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár