Leggur aftur fram frumvörp um rafrettur og stera

Óttarr Proppé beitir sér gegn misnotkun vefja­aukandi efna og vill heild­stæðan ramma um sölu og neyslu rafrettna.

Óttarr Proppé heilbrigðis­ráðherra ætlar aftur að leggja fram frumvörp um notkun stera og rafrettna. Þetta kemur fram í þing­málaskrá ríkis­stjórnarinnar, en frum­vörpin verða endur­flutt frá síðasta þingi.

Heilbrigðis­ráðherra boðar frumvarp til laga um bann við tilteknum frammistöðu­bætandi efnum og lyfjum. „Engin lög eru í gildi sem taka á misnotkun vefja­aukandi efna og stera, en óskað hefur verið eftir af ýmsum aðilum að lögfestar verði reglur á þessu sviði. Höfð er hliðsjón af sambærilegri danskri löggjöf,“ segir í lýsingu á fyrir­huguðu frumvarpi. „Reglu­verkinu er m.a. ætlað að taka á ólöglegri starfsemi er varðar, fram­leiðslu, innflutning og dreifingu á þessum efnum en fjallar ekki um neytendur eða refsingu þeirra.“

Um frumvarp til laga um rafrettur segir að til standi að setja heild­stæðan ramma um sölu, neyslu og annað tengt rafrettum. Frum­varpið sé að hluta til innleiðing á tilskipun Evrópu­sambandsins 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslu­fyrirmælum aðildar­ríkjanna varðandi fram­leiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum og um niður­fellingu á tilskipun 2001/37/EB. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár