Faðir þolanda segir stjórnarmeirihlutann bregðast brotaþolum

„Full­trúar rík­is­stjórn­ar­innar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd neita að sinna skyldum sínum,“ skrifar Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir stúlku sem Robert Downey braut gegn, í kjöl­far upp­lýs­inga um að annar barn­a­níð­ingur fékk upp­reist æru sama dag og Robert.

Faðir þolanda segir stjórnarmeirihlutann bregðast brotaþolum

Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir stúlku sem barn­a­níð­ing­ur­inn Robert Downey braut gegn, segir að full­trúar rík­is­stjórn­ar­innar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd neiti að sinna skyldum sínum og snúi þannig baki við brota­þolum. Þannig bregst hann við frétt Stund­ar­innar um að maður sem dæmdur var fyrir að mis­nota stjúp­dóttur sína nær dag­lega í 12 ár hafi fengið upp­reist æru þann 16. sept­em­ber, sama dag og Robert Downey.

Vísar Bergur til þess að full­trúar stjórn­ar­meiri­hlut­ans í stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd gengu út af fundi þann 14. ágúst þegar upp­lýs­ingar um Robert Dow­­ney og veit­ingu upp­reist æru hans voru til með­ferðar. 

„Full­trúar rík­is­stjórn­ar­innar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd neita að sinna skyldum sínum. Þau snúa baki við brota­þolum og ótt­ast að það blæði úr augum þeirra líti þau sann­leik­ann,“ skrifar Bergur Þór á Facebook í dag.

„Formaður nefnd­ar­innar segir í sífellu að verri brot hafi verið framin. For­sæt­is­ráð­herra finnst að ekki skuli gert upp á milli ein­stakra brota þegar veitt er upp­reist æru. For­set­inn skrifar upp á óflekkað mann­orð barn­a­níð­inga í kippum því stjórn­ar­skráin skipar honum að gera það. Upp­lýs­ingum er haldið frá brota­þolum og öllum almenn­ingi. Það er löngu komið nóg. Fáum allar upp­lýs­ingar á borðið og nýja stjórn­ar­skrá í kjöl­farið til að vernda venju­legt fólk gegn þessu óskilj­an­lega rugli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár