Fjölmiðlaeigendur styrktu Viðreisn um samtals tvær milljónir

Hlut­hafar í Hring­braut, Frétta­tím­anum sál­uga og Kjarn­anum styrktu Viðreisn á stof­nári flokks­ins.

Fjölmiðlaeigendur styrktu Viðreisn um samtals tvær milljónir

Eigendur Hring­brautar, Frétta­tím­ans og Kjarnans styrktu Viðreisn sam­tals um meira en tvær millj­ónir króna í fyrra sam­kvæmt árs­reikn­ingi flokks­ins.

Aðal­eig­andi Hring­brautar, Sigurður Arn­gríms­son, styrkti flokk­inn um meira en milljón þegar allt er tekið saman. 400 þús­und krónur voru gefnar í gegnum félag hans Saffron Holding, sem á 99,18 pró­senta hlut í Hring­braut og er í eigu félags­ins Saffron Holding Malta Ltd. á Möltu; 400 þús­und krónur komu frá Sigurði milli­göngu­laust og um 400 þús­und krónur í gegnum félagið Ursus Maritimus (sem nú heitir Maritimus Investors) sem hann á 75 pró­senta hlut í. Guð­mundur Örn Jóhanns­son, sem starfað hefur sem fram­kvæmda­stjóri Hring­brautar og er fyrr­ver­andi aðal­eig­andi stöðv­ar­innar, styrkti flokk­inn um 310 þús­und krónur.

Dexter fjár­fest­ing­ar ehf., félag Sigurðar Gísla Pálma­sonar sem átti 18 pró­senta hlut í Frétta­tím­anum sál­uga, styrkti Viðreisn um 400 þús­und krónur. Þá styrkti Miðeind, félag Vil­hjálms Þor­steins­sonar fjár­festis sem á 15,98 pró­senta hlut í Kjarn­anum, flokk­inn um 200 þús­und krónur. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár