Yfirlýsing SÁÁ: Fréttaflutningur „til þess fallinn að gera stöðu sjúklinga á Vogi tortryggilega“

Í yfir­lýs­ingu frá Arnþóri Jónssyni, for­manni SÁÁ, er varað við frétta­flutn­ingi af reynslu kvenna sem hafa verið þolendur kyn­ferð­is­of­beldis og yfir­gefa með­ferð í kjöl­far kyn­ferð­is­legrar orð­ræðu, vegna þeirra áhrifa sem „slíkar dylgjur geta valdið“.

Yfirlýsing SÁÁ: Fréttaflutningur „til þess fallinn að gera stöðu sjúklinga á Vogi tortryggilega“

Frétta­flutn­ingur Stund­ar­innar er „til þess fall­inn að gera stöðu sjúk­linga á Vogi tor­tryggi­lega,“ sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá Arnþóri Jónssyni, for­manni SÁÁ, sem send var á Stundina í kjöl­far fréttar um að kona hafi yfir­gefið með­ferð­ina vegna kyn­ferð­is­legs tals tveggja ung­lings­pilta og þeirra við­horfa sem hún mætti í máli þeirra gagn­vart konum.

Orð sem minntu á sára reynslu

Konan yfir­gaf með­ferð­ina snögg­lega eftir að hafa hlýtt á tal ung­lings­pilt­anna, vegna þess að orð þeirra rifj­uðu upp fyrir henni sárar minn­ingar af því hvernig hún var sjálf dæmd fyrir afleið­ingar kyn­ferð­is­legs ofbeldis í æsku, slæma sjálfs­virð­ingu og marka­leysi sem fólst í því að hún gat ekki sagt nei við nokkurn mann og var fyrir vikið dæmd sem drusla. Þegar hún heyrði strák­ana segja sögur af stelpu sem átti að hafa gengið á milli manna og klikkja svo út með því „að hún vildi þetta“, komst konan í slíkt upp­nám að henni fannst hún vera að horfa á strák­ana úr gamla þorp­inu sínu. Titrandi af reiði lét hún starfs­fólkið vita og yfir­gaf svo með­ferð­ina án þess að vita hvort strák­arnir færu aðeins með sögu­sagnir eða hvernig yrði tekið á málum, aðeins full­viss um að slíkt yrði gert með við­eig­andi hætti, eins og fram kemur í frétt Stund­ar­innar. „Hvort um var að ræða sanna sögu eða hvort þeim finnst bara gaman að tala svona um konur þá kom þetta mér úr með­ferð. Ég er alin upp við svona tal um konur og get ekki hlustað á það í dag.“

Hún ítrek­aði að það hafi verið talsmát­inn og við­horfin sem hún mætti, á þessum tíma­puntki, þegar hún var brotin fyrir og búin að fella allar varnir í von um aðstoð, sem komu henni úr með­ferð. „Ég gat ekki hlustað á þessa stráka tala svona. Þá fóru þessar minn­ingar að sækja aftur á mig,“ sagði hún. „Ef eitt­hvað hefði verið til þegar ég var ung sem hét Druslu­ganga hefði það getað breytt miklu. Ég hugsa að við séum ansi margar full­orðnar konur sem erum að takast á við þetta. Ég sam­gleðst ungum stúlkum svo að fá að njóta mann­rétt­inda sem voru ekki til staðar í sjó­ara­sam­fé­lögum úti á landi á árum áður.“

Fóru yfir eftirlitsvélar

Í yfir­lýs­ingu Arnþórs kemur fram að stúlkan sem strák­arnir töl­uðu um var ekki í með­ferð­inni. „Skoðun eft­ir­lits­véla stað­festi að ekk­ert til­efni var til að efast um það.“

Ung­linga­deildin er eina deildin á Vogi sem er ekki með kynja­skiptri svefnálmu, en sér­stök vakt er á deild­inni. Þar eru starfs­menn allan sól­ar­hring­inn og eft­ir­lits­vélar fylgj­ast með. „Ef grunur um ósæmi­lega hegðun, áreiti, ofbeldi, stuld, eða annað kemur upp, er það tekið alvar­lega hjá starfs­fólki hjá SÁÁ. Samtöl við hlut­að­eig­endi sjúk­linga, skoðun eft­ir­lits­mynda­véla, sam­ráð við starfs­fólk á vett­vangi, allt hjálpar til við að skýra málin.

Gripið er til aðgerða eftir því sem við á og ekk­ert hik er á því að skoða málin, veita til­tal eða jafn­vel vísa fólki úr með­ferð ef ástæða er til. Öryggi og nær­gætni við sjúk­linga er í önd­vegi. Mis­skiln­ingur, tor­tryggni og ójafn­vægi á þeim við­kvæma tíma sem afeitrun er, getur verið til­efni til að setja fólk út af stand­inum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

„Ófaglegt og ef til vill siðlaust“

Þá und­ir­strikar Arnþór að ef sjúk­lingi verði „brugðið eða miður sín, hvað sem veldur, þá er mik­il­vægt að veita sam­tal, hlusta og leita leiða til að bæta líðan og ná jafn­vægi. Það er það sem starfs­fólkið á Vogi vinnur við að gera alla daga. Það tekst þó ekki alltaf og ýmsir fara heim ótíma­bært og jafn­vel í upp­námi þrátt fyrir vinnu starfs­fólks. En boð um aðstoð er alltaf fremst.“

Umrædd frétt sé til þess fallin að „gera stöðu sjúk­linga á Vogi tor­tryggi­lega,“ upp­lifun og líðan ein­stak­lings sé mik­il­væg og sönn hverjum og einum, en „að ýja að óheil­indum eða and­vara­leysi starfs­fólks heillrar stofn­unar er ófag­legt og ef til vill sið­laust af blaða­manni ef hugsað er til heild­ar­innar og áhrifa sem slíkar dylgjur geta valdið.“

Þar nálg­ast hann umræð­una með svip­uðum hætti og Val­gerður Rún­ars­dóttir, for­stjóri Vogs, gerði þegar hún var­aði við umfjöllun um þessi mál. „Þetta skemmir alveg rosa­lega fyrir örugg­lega ein­hverjum konum sem þyrftu að koma að fá aðstoð, en veigra sér við það af því að þær halda að þetta sé allt öðru­vísi en þetta er. Það þarf eng­inn að verða fyrir ein­hverju.“

Sameiginleg reynsla kvenna með fíknisjúkdóma

Konan ákvað að greina frá þess­ari reynslu vegna þess að hún telur var­huga­vert að kynin séu saman í með­ferð, þegar rann­sóknir sýna að flestar konur með fíkni­vanda hafa orðið fyrir ofbeldi og eru því við­kvæmar fyrir. Sjálf lenti hún í því í fyrri með­ferð, fyrir rúmum tutt­ugu árum síðan, að mæta ger­anda sínum þar.

Fleiri konur hafa stigið fram að und­an­förnu og gagn­rýnt það fyr­ir­komu­lag að kynin séu saman þegar þau eru svo veik fyrir. Ekki síst í ljósi þess að „ofbeldi er nokkuð sam­eig­in­leg reynsla kvenna sem leita á Vog,“ eins og fram kom í skýrslu um ofbeldi í nánum sam­böndum sem var unnin fyrir félags- og trygg­inga­ráðu­neytið. Talið var að minnsta kosti 70–80% þeirra kvenna sem stríddu við fíkn hefðu verið beittar ein­hverju ofbeldi.

Í meist­ara­rit­gerð eftir Ara Matth­ía­son, sem skráður er í stjórn SÁÁ, kom síðan fram að 32 pró­sent þeirra sem komu á Vogi árið 2008 höfðu hlotið dóm og 14 pró­sent þeirra höfðu framið afbrot á síð­ustu 30 dögum. Sama ár höfðu þrír af þeim sem leit­uðu sér aðstoðar á Vogi verið ákærðir fyrir morð og tíu fyrir nauðgun.

For­svars­menn SÁÁ hafa hins vegar sagt umræður um þetta byggja á for­dómum. „Hérna á sjúkra­hús­inu er ekki sam­an­safn af vondum mönnum og ein­hverjum fórn­ar­lömbum. Það er ekki þannig.“ sagði Val­gerður í sam­tali við Stundina í júní.  „En for­dóm­arnir  gagn­vart þessum sjúk­dómi okkar sem við erum að fást við koma að hluta til fram í ein­hverju svona við­horfi. Þegar ég hugsa: Hvað er það sem menn eru að tala um? Hvað er það sem fólk hefur áhyggjur af? Þá dettur mér helst í hug að það sé þetta. Að fólk haldi að hér séu vondir menn í með­ferð. Og þetta er mjög for­dóma­fullt. Vegna þess að þeir sem eru í með­ferð hér hjá okkur eru bara venju­legt fólk og á meðal venju­legs fólks er alls konar fólk.“

Fleiri konur gagnrýna fyrirkomulagið

Mæðgurnar Kolbrá Braga­dóttir og Frigg Ragn­ars­dóttir greindu frá reynslu sinni í Stund­inni í júní. Kolbrá sat fund Þórarins með vin­konu sinni sem óskaði eftir skýr­ingum á því hvers vegna henni var vikið úr með­ferð, skömmu eftir að hún hafði kvartað undan áreitni. Hún fékk ekki aðrar skýr­ingar en þær að með­ferðin hent­aði henni og að það hefði verið mat Þórarins sem hvorki hitti kon­una né ræddi við hana við þá ákvörð­un­ar­töku. Þrátt fyrir grein­ingu á lífs­hættu­legum sjúk­dómi var konan send heim án þess að henni væri vísað í önnur úrræði. Frigg dóttir Kolbrár greindi svo frá því að hún hefði farið þrisvar sinnum á Vog. Í fyrsta sinn flúði hún af Vogi vegna áreitis af hálfu full­orð­ins karl­manns sem var marg­dæmdur og ógn­andi.  Í annan stað þurfti hún að þola kyn­ferð­is­legt tal og áreitni af hálfu ungs manns sem hélt áfram að áreita hana eftir að með­ferð­inni lauk.

Thelma Berglind Guðna­dóttir hefur einnig sagt sögu sína. Hún kvart­aði undan áreitni á Vogi þegar ekk­ert gerð­ist, kom annar sjúk­lingur henni til varnar. Hann reynd­ist líka vera ofbeld­is­maður, sem réðst að henni í dags­leyf­inu. Í öðru máli var maður dæmdur fyrir að hafa ráð­ist alvar­lega á unga stúlku sem hann kynnt­ist í með­ferð.

Þá greindi sautján ára gömul stúlka, Jóna María Gerðu­dóttur, frá því að hún hefði orðið barns­haf­andi á ung­linga­deild­inni á Vogi þegar hún fór í afeitrun eftir mikla og langvar­andi fíkni­efna­neyslu.

Óljóst hvernig áreitni er metin 

Í úttekt á gæðum og öryggi þjón­ustu í með­ferð kvenna og barna gerði Land­lækn­is­emb­ættið marg­vís­legar athuga­semdir við með­ferð­ar­starf SÁÁ. Val­gerður, for­stjóri sjúkra­húss­ins, vís­aði fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um hvernig brugð­ist hefði verið við nið­ur­stöðum úttekt­ar­innar hins vegar aftur á Land­lækn­is­emb­ættið. „Það er sjálf­sagt að inna þá eftir því,“ sagði hún í sam­tali við Stundina.

Val­gerður var afger­andi í afstöðu sinni þegar hún sagði: „Áreiti hvers konar, sér­stak­lega sem truflar aðra sjúk­linga, er ekki liðið inni á með­ferð­ar­stöðum SÁÁ.“ Þrátt fyrir það greindi hún jafn­framt frá því að kyn­ferð­is­leg áreitni væri ekki skráð sér­stak­lega, aðeins væri skráð þegar fólki væri veitt til­tal. „Það er ekk­ert verið að telja þau til­vik sér­stak­lega, hvað það eru margir sem missa sig eða lemja sím­anum í eða hvað. Það er ekki sorterað.“ Hún benti jafn­framt á að áreitni gæti gengið í báðar áttir, verið af hálfu karla og kvenna, og sagði að einn kostur þess að kynin væru saman í afeitrun væri að þá gæti fólk æft sig í að setja mörk. „Lífið er karlar og konur, sam­fé­lagið. Það hefur ókosti að geta ekki æft sig í því að setja mörk, til dæmis, í ákveð­inni vernd. Ef maður er í vand­ræðum með að setja mörk í kringum sig. Þá er gott tæki­færi til þess ef maður er í með­ferð.“

Við vinnslu úttektar sem birt var á Stund­inni í júní var einnig rætt við Þórarinn Tyrf­ings­son um hvort rétt væri að kynja­skipta með­ferð­inni í ljósi alls þessa. Svar hans var á þá leið að þess­ari spurn­ingu hefði verið margoft svarað, með­ferð SÁÁ væri kynja­skipt að hluta og það væri varla krafa um að kynja­skipta sam­fé­lag­inu. 

Hann neit­aði síðan að veita upp­lýs­ingar um tíðni kvart­ana vegna áreitni í með­ferð eða hvaða verk­lags­reglur væru til staðar. „Ég hef nú ekki tekið það saman. Ég þyrfti að taka það saman. Kannski þyrfti ég að athuga það,“ sagði Þórarinn, en það væri ekki „fyrr en eftir ein­hvern tíma,“ sem þessar upp­lýs­ingar gætu legið fyrir.

Í máli hans og Val­gerðar hefur komið fram að fram­koma sjúk­linga fer stundum yfir eðli­leg mörk og vegna þess séu ýmis sið­ferð­is­leg mörk sem þurfi að gæta að í með­ferð­ar­starf­inu. Þórarinn sagði hins vegar óljóst hvernig ætti að skil­greina kyn­ferð­is­lega áreitni. „Eins og þú getur ímyndað þér þá eru sam­skiptin á Vogi á milli karla og kvenna með ýmsum hætti og mjög marg­breyti­leg. Þannig að hvað við eigum að telja til áreitis getur líka verið álita­mál.“

 

Uppfært: Ari Matth­í­as­son hafði sam­band við Stundina og greindi frá því að hann hefði sagt sig frá trún­að­ar­störfum fyrir SÁÁ haustið 2016 og sæti þar af leið­andi ekki lengur í stjórn­inni. Hann er þó enn á lista yfir stjórna­menn SÁÁ á heima­síðu sam­tak­anna, þar sem fram kemur að hann hafi verið kos­inn í stjórn árið 2015 til þriggja ára og sitji í stjórn starfs­árið 2017-2018. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár