Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“

Þegar Írland og Bretland gengu saman í Evr­ópu­banda­lagið árið 1973 var Írland fátækt fyrr­ver­andi nýlendu­ríki, efna­hags­lega háð hinni gömlu herra­þjóð sinni. Hálfri öld síðar er Írland orðið auðug mið­stöð banda­rískra tækni­fyr­ir­tækja á borð við Microsoft og Google. Bretland hefur hins vegar yfir­gefið sam­bandið. Hvaða hlut­verk lék ESB í upp­gangi Írlands og hvers vegna fet­uðu nágranna­ríkin hvort sinn veg?

Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“

Daginn sem Brexit-þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan var haldin í Bret­landi fóru fram kapp­reiðar á skeið­vell­inum í Windsor. Þegar veð­hlaupa­hestur nefndur Brexit lét í minni pok­ann fyrir keppi­nautum sínum von­uðu and­stæð­ingar útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu að úrslitin væru fyr­ir­boði. Fáir ósk­uðu þess heitar en Írar.

Á árunum eftir síð­ari heims­styrj­öld var Írland blá­fá­tækt land­bún­að­ar­ríki, ein­angrað á jaðri Evrópu. Þótt landið hefði verið hlut­laust í síð­ari heims­styrj­öld stóð það efna­hags­lega verr að vígi en mörg hinna stríðs­hrjáðu ríkja álf­unnar.

Svo hörð voru lífs­skil­yrðin að á sjötta ára­tugnum einum flutt­ust 600.000 Írar úr landi, flestir til Bret­lands.

Þar hlutu þeir gjarnan óblíðar mót­tökur. Heim­ildir herma að langt fram eftir tutt­ug­ustu öld hafi víða mátt finna í gluggum kráa og gisti­heim­ila í Bret­landi skilti með skila­boð­unum: „Enga Íra, svert­ingja eða hunda.“

Verndarstefnan vann gegn þeim

Gary Murphy, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Dublin City-háskóla, telur þá eymd sem ríkti á Írlandi hafa að miklu leyti verið afleið­ingu …

Kjósa
95
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Beware: Ireland has become the gateway for the Mafia from Silicon Valley, tax evasion and money laundering!
    -6
  • Gudridur Kjartansdottir skrifaði
    Misskilningur!
    -6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár