Myrkur í ágúst 6 — Risagos á Tunglinu

Hér er langur kafli úr sögu Tungls­ins og þunn­fljót­andi kvika streymir um yfir­borð þess

Myrkur í ágúst 6 — Risagos á Tunglinu
Tunglið á sínum tíma. Raunar er þess ekki að vænta að gosið hafi á svo stóru svæði á yfir­borði Tungls­ins í einu, en hvað gerum við ekki fyrir drama­tík­ina.

Þegar menn uxu loks úr grasi á Jörðinni var Tunglið komið nærri því í þá stöðu sem það er nú. Fyrir um 100.000 árum var Homo Sapiens kom­inn til sög­unnar og orð­inn svo for­vit­inn að lík­legt verður að telja að hann hafi öðru­hvoru horft til him­ins á nótt­unni og velt fyrir sér Tunglinu.

Þá var Tunglið tæpum 4 kíló­metrum nær Jörðinni en það er núna, en mun­ur­inn er ekki sjá­an­legur með berum augum – enda er fjar­lægðin til Tungls­ins nú 384.000 kíló­metrar.

Höfin blíð

En þegar menn fóru fyrir alvöru að virða fyrir sér Tunglið, þá blasti ýmis­legt eft­ir­tekt­ar­vert við. Þar er fjöldi gíga, sumir svo stórir að þeir eru vel sjá­an­legir með berum augum. Og svartir flekkir, víð­áttu­miklir, hvað er það?

Þetta hljóta að vera höf, gisk­uðu menn á mið­öldum og því heita dökku svæðin Oceanus Procellarum, Storm­hafið, Mare Imbrium, Regn­hafið, Mare Ser­enitatis, Kyrrð­ar­hafið … og svo fram­vegis.

Galileo horfir til himins

Um það bil sem þessi nöfn fest­ust í sessi á 17. öld voru vís­inda­menn raunar orðnir vissir um að þetta væru ekki höf heldur þurrar sléttur. 1610 beindi Galileo Galilei fyrstur manna sjón­auka sínum að Tunglinu og sýndi fram á að dökku svæðin væru ekki höf heldur sléttur af ein­hverju tagi. En almenn­ingur stóð þó lengi enn í þeirri trú að þetta væru höf.

En hvernig höfðu slétt­urnar orðið til? Það var mikið rann­sókn­ar­efni og þótt marga grun­aði að þarna væri um ein­hvers konar hraun­breiður að ræða, fremur en haf­sjó af ryki, þá var í raun ekki hægt að útkljá málið fyrr en tókst að efna­greina tungl­grjót sem geim­farar komu með til jarðar frá Tunglinu 1969-72. 

Þá hafði raunar annar leynd­ar­dómur bæst við. Myndir sem menn höfðu þá náð að taka af hinni „dimmu hlið Tungls­ins“ sýndu að þar eru engin stór „höf“. Og hvernig gat staðið á því?

Loftsteinaregn

Jú, eftir rann­sóknir bæði á tungl­grjóti sem Apollo-geim­far­arnir komu með og sögu sól­kerf­is­ins, þá er nið­ur­staðan þessi:

Fyrir um 4,51 millj­örðum ára varð Tunglið til eftir árekstur Theiu og Jarð­ar­innar. Þá voru ógrynni loft­steina á þeyt­ingi um allt sól­kerfið svo þeim rigndi niður á yfir­borð Tungls­ins (og Jarð­ar­innar) nær sam­fellt í um 400 millj­ónir ára.

Síðar eða fyrir 3,9 millj­örðum ára, þá töldu menn að svipt­ingar milli brauta gas­risanna Júpíters og Sat­úrnusar hefðu raskað jafn­vægi hins unga sól­kerfis og millj­arðar loft­steina, smá­st­irna og hala­stjarna úr upp­sveitum sól­kerf­is­ins því þeyst af stað í átt að sólu. Grúi þeirra hafi lent á Tunglinu, sem og Jörðinni.

Þetta seinna loft­steina­regn hafi svo staðið í 100 milljón ár.

Rétt er að taka fram að þessi kenn­ing um Júpíter, Satúrnus og til­tölu­lega snöggt upp­haf seinna loft­steina­regn­s­ins, hún hefur sætt vax­andi gagn­rýni á síð­ari tímum. Nú virð­ist mönnum að sprengju­hríðin utan úr geimnum hafi senni­lega verið jafn­ari og sam­felld­ari.

Stórsködduð jarðskorpa

En hvað sem því líður, eftir að mesta loft­steina­regn­inu lýkur er jarð­skorpa Tungls­ins stór­sködduð. Undir henni er enn bráðin kvika sem leitar nú upp á yfir­borðið um sprungur og mis­fellur sem loft­steina­regnið hefur skapað.

Þar sem Tunglið er þá enn mjög nálægt Jörðinni, sem ennþá er sjóð­heit á yfir­borð­inu, þá er tunglskorpan á þeirri hlið sem að Jörðinni snýr mun heit­ari og auð­veld­ari við­fangs fyrir kvik­una.

Stundum rjúfa nýir loft­steinar göt á þunna heita skorpuna og lap­þunn kvikan vellur upp og breið­ist um yfir­borðið. Ekki verða til eld­fjöll þar sem kvikan er svo þunn­fljót­andi að hún rennur strax burt víðs vegar, en hleðst ekki upp. Stundum brýst kvikan upp í gegnum sprungur sem mynd­ast hafa vegna gríð­ar­legrar spennu í skorp­unni. Þannig er Storm­hafið talið hafa orðið til.

Aldrei framar mun gjósa

Kviku­magnið er gríð­ar­legt – sums staðar eru hraunin eða „höfin“ talin vera allt að 5 kíló­metra þykk – en að lokum kólnar skorpan og harðnar. Loft­steinar ná þá ekki lengur að gera göt á hana, hversu stórir sem þeir eru.

Tunglskorpan á „bak­hlið“ Tungls­ins sem sneri ekki að heitri Jörðinni kóln­aði hins vegar hraðar en skorpan á „okkar hlið“ og þykkn­aði mun meira. Þar varð eld­virkni því mjög lítil og engin stór „höf“ þar að finna.

Aldrei framar eldgos!

Mestu eld­gosa­hrin­unni lauk fyrir 3,2 millj­örðum ára en ein­hver gos munu hafa haldið áfram þangað til fyrir 2 millj­örðum ára – og kannski svo­lítil eld­virkni hafi hald­ist í allt að millj­arð ára í við­bót.

Nú virð­ist aðeins lítið magn bráð­ins bergs enn leyn­ast djúpt inni í Tunglinu og svo djúpt á því að þar munu aldrei verða gos framar né hraun renna.

Þá hafði raunar annar leynd­ar­dómur bæst við
Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JV
    Júlía Valsdóttir skrifaði
    Ekki var það sjáanlega þegar að geimfararnir lengu á tunglinu það virkaði steindautt
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár