Yfirlögreglumaður handtekinn fyrir hrottalegt morð

Stríðið gegn fíkni­efnum sem háð var í valda­tíð Rodrigo Duterte átti sér skelfi­legar birt­ing­ar­myndir. Nú í morgun var fyrr­ver­andi yfir­maður í lög­regl­unni hand­tek­inn, en hann hafði verið á flótta undan rétt­vís­inni frá því að dómur féll í fyrra.

Yfirlögreglumaður handtekinn fyrir hrottalegt morð

Suður-kóreskur kaup­sýslu­maður var kyrktur í höf­uð­stöðvum fil­ippseysku lög­regl­unnar í Manila. Nú í morgun var fyrr­ver­andi yfir­maður í fíkni­efna­lög­regl­unni hand­tek­inn vegna dóms sem hann hlaut fyrir mann­rán og morð á mann­inum árið 2016. Lög­reglu­mað­ur­inn hafði verið á flótta undan rétt­vís­inni.

Mál suð­ur­kóreska kaup­sýslu­manns­ins Jee Ick-joo, sem var rænt af fíkni­efna­lög­reglu­mönnum undir yfir­skini fíkni­efna­leitar, var eitt umdeildasta málið tengt hinu mann­skæða stríði fyrr­ver­andi for­set­ans Rodrigo Duterte gegn fíkni­efnum.

Þúsundir morða

Sak­sókn­ari hjá Alþjóða­dóm­stólnum í Haag, sem sækir Duerte til saka fyrir glæpi gegn mann­kyn­inu, segir hann hafa drepið þús­undir manna í her­ferð sinni gegn fíkni­efnum.

„Í ára­tugi hefur hann myrt eigið fólk, myrt börn Fil­ipps­eyja, og hann heldur því fram að hann hafi gert þetta allt fyrir land sitt,“ sagði sak­sókn­ari í febr­úar, þegar verið var að meta hvort stað­festa ætti ákær­urnar og fara með málið fyrir dóm. „Hann stjórn­aði dauða­sveit í Davao-borg sem hann sjálfur stofn­aði. Hann …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár