Hagsmunasamtökin: Farþegar á skútu eða flókið hjónaband?

Mik­ill mun­ur er á sjón­ar­mið­um and­stæð­inga ESB og þeirra sem eru hlynnt­ir inn­göngu. Ann­ar hóp­ur­inn ótt­ast að Ís­land glati full­veldi sínu á með­an hinn hóp­ur­inn seg­ir þjóð­ina end­ur­heimta það með inn­göngu.

Hagsmunasamtökin: Farþegar á skútu eða flókið hjónaband?
ESB ísland tekst á um að ganga inn í viðræður við ESB á næstu mánuðum. Mynd: AFP

Andstæðingar ESB innan Heimssýnar óttast að Ísland muni fyrirgera fullveldi sínu og lýðræði með því að ganga inn í Evrópusambandið. Þeir óttast að Ísland fái ekki að stýra skútunni og að þjóðin verði eins og hreppur í Evrópu.

Evrópuhreyfingin hafnar slíkum lýsingum og segir inngöngu inn í ESB meira líkt hjónabandi. Því fylgir þó tengdafólk og mögulega stjúpbörn. Í dag sé Ísland eins og einstætt foreldri að reyna að safna sér fyrir íbúð að mati framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar. 

Himinn og haf er á milli sjónarmiða þeirra sem eru hlynntir því að ganga til samningaviðræðna við ESB og þeirra sem eru alfarið andvígir slíku. Þjóðaratkvæðagreiðsla hefur verið boðuð og er áætlað að hún fari fram í lok ágúst verði þingsályktunartillaga utanríkisráðherra samþykkt á Alþingi.

Samkvæmt tillögunni er áætlað að þjóðin gangi fyrst til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hún vilji yfir höfuð ganga til samninga við ESB. Þegar samningaviðræðum er lokið fær þjóðin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár