Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum

Þrýsti­hópur MAGA-hreyf­ing­ar­innar borg­aði fyrir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Repúblik­ana til að hitta Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Meðal skipu­leggj­enda voru aðilar grun­aðir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­unum 2020 fyrir Donald Trump. Heim­ildin rekur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­aðar eru af banda­rískum auð­mönnum til Íslands.

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fund­aði síð­asta sumar með hópi Repúblik­ana sem eru hæst­ráð­andi á skrif­stofum öld­unga­deild­ar­þing­manna sem hlið­hollir eru stjórn Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. Til umræðu var banda­lag Banda­ríkj­anna við Norð­ur­landa­þjóð­irnar og „menn­ing­ar­legar stoðir vest­rænna gilda í Evrópu“. Á meðal skipu­leggj­enda og þátt­tak­enda voru Repúblikanar sem tóku þátt í til­raun til að stela for­seta­kosn­ing­unum 2020 fyrir Trump.

Upp­lýs­ingar um fund­inn koma fram í skjölum um ferð­ina sem stað­fest hafa verið af skrif­stofu öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings.

Sig­mundur Davíð svar­aði ekki spurn­ingum Heim­ild­ar­innar um málið þegar eftir því var leitað.

Ferð Repúblikan­anna var farin í boði Turning Point Action, banda­rísks þrýsti­hóps sem stofn­aður var af Charlie Kirk heitnum. Hópurinn hefur skipu­lagt kosn­inga­fundi fyrir Trump og sendi rútur af mót­mæl­endum til Washingtonborgar 6. jan­úar 2021 sem end­aði með árás á þing­hús Banda­ríkj­anna þar sem stað­festa átti kosn­inga­sigur Joe Biden.

Kjósa
118
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Who meets in secret and acts in secrecy? And why?
    1
  • Birgit Braun skrifaði
    Væri ekki gott að útskýra ECR satökin betur, fyrst sem greinin vitnar oft í þeim?
    1
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Þetta líkar mér sem gömlum rallara. Þarna er Heimildin komin í sinn rétta gír - sem þýðir að áskriftin er hverrar krónu (bráðum Evru) virði.
    13
  • Haraldur Jonsson skrifaði
    Það er rét Heiðahjalli 15, Kópavogi
    -1
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Það væri saga til næsta bæjar ef í ljós kemur að Sigmundur Davíð sé að gera hosur sínar grænar fyrir þessum öfgamönnum innan BNA. Þeir eru í nánum tengslum við hergagnaframleiðendur þarlendis. Fyrir þeim er að ræða að hámarka sem mest gróðann af hergagnaframleiðslu en mannrettindi skipta þá engu máli.
    Við eigum að forðast sem mest samskipti við öfgamenn sem þessa. Þeir hafa fullan hug á að ná auknum tökum á auðtrúa stjórnmálamönnum og glepja þá með gróðavonina í huga.
    22
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár