Viðvörunarbjöllur hringdu vegna byrjendalæsis fyrir áratug

Sterkar vís­bend­ingar voru um að Byrj­enda­læsi væri ekki að skila miklum árangri árið 2015. Pró­fessor í sál­fræði sagði kennslu­að­ferðum sem byggja á sams­konar hug­myndum og Byrj­enda­læsi ekki hafa reynst vel í öðrum löndum.

Viðvörunarbjöllur hringdu vegna byrjendalæsis fyrir áratug
Lestur barna hefur hnignað, sér­stak­lega drengja. Mynd: Unsplash

Við­vör­un­ar­bjöllur voru farnar að hringja í mennta­mála­ráðu­neyt­inu vegna byrj­enda­læsis fyrir tíu árum síðan.

Inga Sæland, nýr mennta- og barna­mála­ráð­herra, kenndi slæmum árangri byrj­enda­læsis um lélegan lesskiln­ing drengja í kast­ljós­svið­tali á RÚV í vik­unni. Miðstöð skóla­þró­unar við Háskól­ann á Akureyri hefur gagn­rýnt Ingu og dós­ent við háskól­ann sagt hana „skorta læsi“ á mál­efni ráðu­neytis síns.

Mennta­mála­ráðu­neytið gaf hins vegar út minn­is­blað fyrir ára­tug sem kom fram að sterkar vís­bend­ingar væru um að árangur af Byrj­enda­læsi væri undir vænt­ingum og að lesskiln­ingi barna hrak­aði bein­línis. Þáver­andi mennta­mála­ráð­herra, Illugi Gunn­ars­son, sagði þá að það væru töl­fræði­legar vís­bend­ingar um að aðgerðin væri ekki að skila ásætt­an­legum árangri. Byggði minn­is­blaðið á nið­ur­stöðum könn­un­ar­prófs 4. bekkjar.

Byrj­enda­læsiFrétta­blaðið fjall­aði um Byrj­enda­læsi árið 2015. eftir að Mennta­mála­ráðu­neytið birti minn­is­blað þar sem kom fram að lesskiln­ingi barna hrak­aði bein­línis.

Undir þetta tók Zuilma Gabríela Sig­urð­ar­dóttir, sem þá var dós­ent í sál­fræði við Háskóla Íslands í atferl­is­grein­ingu og …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Ég gerði grín að þessu byrjendalæsi strax. Að vera með svona tilraunastarfsemi á börnum, ætti að varða við lög!
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Eru foreldrar hættir að reyna að kenna börnum sínum að lesa, helst strax í fyrsta bekk
    ef þau voru þá ekki orðin læs sem var algengt fyrir 50-60 árum? Kennarar bera ekki alla ábyrgð !
    0
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Það er stórfurðulegt að fylgjast með umræðunni um kennsluaðferðir. Skólafólk skiptist í lið sem berjast af mikilli hörku á öllum vígstöðvum fyrir sínum kenningum. Þetta líkist helst grimmu trúabragðastríði. Hvað ætli verði um liðhlaupa sem skipta um trú? Væntanlega útskúfaðir á vinnustaðnum? Þetta er gjörólíkt nálgun verfræðinnar sem ég þekki vel. Þegar fengist er við flókin og erfið verkefni í verkfræði, þá skoða menn málin með opnum hug frá öllum hliðum. Gjarnan er byrjað á ítarlegri skoðun á þeim leiðum sem best hafa reynst erlendis. Á endanum eru valkostir vegnir og metnir á hlutlægan hátt og þeim gjarnan gefin einkunn. Þessi nálgun gefst undantekningarlítið vel og hópurinn getur einhent sér samhentur í verkefnið.
    4
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Ég sakna þess að sjá ekki nýrri könnun á þessari kennsluaðferð. Hver hefur þróunin verið síðustu tíu árin? Þetta hlýtur að vera til og ætti að birta.
    4
    • Rannveig Oddsdóttir birti ritrýnda fræðigrein um málið s.l. nóvember, lestu hana.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár