Gervigreind og netöryggi

Gervi­greind heldur áfram að umbreyta heiminum með ótrúlegum hraða, en samhliða auknum áhrifum hennar verða netöryggi, stafrænt fullveldi og gagna­vernd lykilá­skor­anir í síbreytilegu alþjóð­legu umhverfi. Hjálmar Gíslason rýnir í og spáir fyrir um tækniárið 2026.

Þriðja árið í röð er það gervi­greindin sem tekur mest pláss í tæknispá ársins. Þetta er ekki að ástæðu­lausu. Gervi­greind er að breyta heiminum meira og hraðar en nokkur tækni­nýjung hefur gert áratugum saman. En vendingar í alþjóða­málum setja líka sitt mark á spána að þessu sinni. Á sviði netöryggis, stafræns full­veldis og gagna­verndar eru krefjandi úrlausnar­efni sem munu kalla á athygli á árinu.

Gervigreindarleiðrétting

Eftir því sem leið á árið 2025 fóru raddir um „gervi­greindar­bólu“ að verða háværari. Sumir hafa vísað til „dotcom“-bólunnar um síðustu aldamót sem hliðstæðu, en þá varð gríðarlegt verðfall á hluta­bréfum tækni­fyrirtækja í kjölfar mikilla væntinga á lokaárum síðustu aldar.

Í þessu samhengi er rétt að hafa tvennt í huga:

  1. Fram­farirnar sem netbólan lofaði í lok síðustu aldar gengu að mestu eftir. Í raun urðu þær langt umfram það sem jafnvel framsýnasta fólk sá fyrir sér: Samskipti, verslun, viðskipti og …
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Margt ágætt í þessari grein, en samt er alveg hlaupið framhjá stóru vandamálunum við uppgang þessara vitlíkisfyrirtækja:
    - Hvernig verður tekið á þeim gríðarlega hugverkaþjófnaði sem átti og á sér stað við mötun gagna inn í LLM-líkönin?
    - Hvert er þanþol samfélaganna gagnvart yfirboðum þessara fyrrtækja í sameiginlegar auðlindir og innviði, þ.e. hækkun á orkureikningum heimila og slíku?
    - Hve langur tími mun líða áður en löggjöf fer að aðlagast þessari starfsemi og [alþjóðlegar] reglur verði settar varðandi þætti á borð við siðferðilega ábyrgð og inngrip í mannlega hegðun?

    Því eins og stendur í greininni:
    "...veitukerfin, orkuframleiðsluna og samgöngurnar – þetta eru lífæðar samfélagsins og við þurfum að umgangast þær sem slíkar."
    En það þarf líka að passa upp á samfélagið, ekki satt?
    0
  • Gunnar Magnússon skrifaði
    Hversu mikið vatn þarf til að framleiða hverja einingu, d.t. Terabite, gerfirgreindargetu ? Er til endalaust vatn ?
    https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/osynilega-vatnid-sem-vid-drekkum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist árið 2026?

Mest lesið undanfarið ár