Mótmæla þátttöku Íslands í Eurovision

Þátttöku Íslands í Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva er mót­mælt fyrir utan húsa­kynni Rík­is­út­varps­ins. Síðdegis fundar stjórn stofn­un­ar­innar um það hvort Íslandi muni snið­ganga Eurovision á næsta ári eða ekki.

Mótmæla þátttöku Íslands í Eurovision

Fjöldi mót­mæl­enda er saman kom­inn fyrir utan Rík­is­út­varpið í Efsta­leiti undir nafn­inu „Kveðjum Júró­visjón“. Vilja þeir að Ísland snið­gangi Eurovision í Aust­ur­ríki næsta vor vegna fram­göngu Ísraels í Palest­ínu. 

Klukkan 15 hefst fundur stjórnar RÚV þar sem end­an­leg ákvörðun verður tekin um það hvort Ísland muni snið­ganga keppn­ina eða ekki. 

„Snar­geggj­aðir stríðs­herrar eru búnir að eitra partýið með sínum lúm­sku ráðum. Þeir eru búnir að stela gleð­inni. Í dag verðum við að taka afstöðu með mennsk­unni,“ sagði tón­list­ar­mað­ur­inn Páll Óskar Hjálmtýs­son þar sem hann ávarp­aði aðra mót­mæl­endur. „Við verðum að vera í lið­inu sem segir stopp. Sýnum heim­inum að við séum ekki hræsnarar.“

Hávær krafa hefur verið um að Ísland dragi sig úr þátt­töku í Eurovision æ síðan Ísrael réðst inn á Gaza undir lok árs 2023. Full­trúar evr­ópskra sjón­varps­stöðva hafa þegar sam­þykkt að leyfa Ísrael að taka þátt í keppn­inni á næsta ári sem verður haldin í Vín í Aust­ur­ríki. Í kjöl­farið til­kynntu nokkur lönd að þau hygð­ust ekki taka þátt í keppn­inni. Þar á meðal eru Holland, Spánn, Írland og Slóvenía. 

Logi Ein­ars­son, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, hefur sagt að hann telji rétt að snið­ganga Eurovision í ljósi þátt­töku Ísraels. Það sé þó ekki hans heldur stjórnar RÚV að taka þá ákvörðun. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu