„Ég sakna þess að ná andanum“

Eitraðar öragnir í andrúms­loftinu ógna lífi og heilsu íbúa í Nýju-Delí. Mótmælendur komu saman til þess að krefjast aðgerða af hálfu stjórn­valda.

Menguð froða
Menguð froða Fiski­maður kastar neti sínu í vatnið í Yamuna-ánni, sem er fullt af meng­aðri froðu, á reyktum morgni í Nýju Delí 20. nóv­em­ber 2025. Nýja Delí, með víð­feðmu stór­borg­ar­svæði með 30 millj­ónir íbúa, er reglu­lega talin meðal meng­uð­ustu höf­uð­borga heims. Beiskur reyk­þoka hylur sjón­deild­ar­hring­inn á hverjum vetri, þegar kald­ara loft fangar meng­un­ar­efni nálægt jörðu og skapar ban­væna blöndu af útblæstri frá brennslu upp­skeru, verk­smiðjum og mik­illi umferð. Mynd: AFP

Þykkt mistur fullt af hættu­legum örögnum lá yfir höfuðborg Indlands þegar tugir mótmælenda komu saman í Nýju-Delí til að krefjast aðgerða stjórn­valda gegn eitur­efnum og mengun andrúms­loftsins. Foreldrar mættu með börnin sín, sem báru grímur og héldu á skiltum. Á einu þeirra stóð: „Ég sakna þess að ná andanum.“ 

Í Nýju-Delí búa um 30 milljónir íbúa en borgar­svæðið mælist reglulega á meðal menguðustu höfuð­borga heims. Á hverjum vetri er borgin þakin þykkum mengunar­skýjum, þegar kaldara loftslag fangar mengunar­efni nærri jörðu og skapar banvæna blöndu af losun frá uppskeru­brennslu, verksmiðjum og útblæstri farar­tækja.

Magn PM2,5, krabbameins­valdandi öragna sem eru nógu smáar til að komast inn í blóð­rásina, nær suma daga allt að 60 sinnum daglegum heilsufars­mörkum Sameinuðu þjóðanna.

Daginn sem mótmælin fóru fram voru mörkin við India Gate, þar sem mótmælin fóru fram, þrettán sinnum hærri en ráðlagt er samkvæmt Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnuninni. „Í dag er ég hér sem móðir,“ …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár