Trump og umheimurinn: Hernaðarlegt afl, fjárhagslegur styrkur og sveigjanleiki sögunnar

Hið efna­hags­lega lands­lag heims­ins er gjör­breytt á innan við einu ári. Samhliða á sér stað umbylt­ing á hinu hern­að­ar­lega sviði bæði tækni­lega og póli­tískt. Staða Íslands, sem treyst hefur á varn­ar­samn­ing við Banda­ríkin, er óljós í þessum nýja heimi óvissunnar.

Trump og umheimurinn: Hernaðarlegt afl, fjárhagslegur styrkur og sveigjanleiki sögunnar
Boðaðir Hátt­settir her­for­ingjar voru boð­aðir á fund með Donald Trump Banda­ríkja­for­seta og Pete Hegseth varn­ar­mála­ráð­herra 30. sept­em­ber. Þar sagði Hegseth að her­inn yrði að bregð­ast við „ára­tuga hnignun“. Mynd: afp

Öfl­ug­asti her í heimi hefur löngum verið sá banda­ríski, og hann var með fasta við­veru hér­lendis til árs­ins 2006. Kína byggir nú hratt upp her­styrk sinn, sem er orðin fjöl­menn­ari en nokkur annar í heim­inum. Stór­veldin tvö og ógn­ar­vald þeirra spilltu, ein­veld­is­legu og ógagn­sæju stjórn­ar­hátta sem við­gang­ast eru til umfjöll­unar í grein eftir Martin Wolf í Financial Times í vik­unni. 

Anne App­lebaum fór einnig í tíma­rits­grein í Atlantic undir lok síð­asta mán­aðar yfir hern­að­ar­lega áætlun Úkraínu til þess að svelta hern­að­arma­sk­ín­una rúss­nesku. Þar sýnir hún hvernig úkra­ínska dróna­fram­leiðslan mið­ast við að forð­ast aðkeypta íhluti sér­stak­lega frá Banda­ríkj­unum og Kína.

Bæði fót­snyrtar og gull­smiðir búa yfir góðri hæfni til þess að setja saman heima­fram­leiddan raf­búnað fyrir stríðstólin. Enginn sem vinnur við hina hern­að­ar­legu fram­leiðslu dróna í millj­óna­vís starf­aði við það fyrir þremur árum. Þessar efna­hags­legu og stjórn­mála­legu afleið­ingar stríðs­ins eru ekki nægi­lega vel þekktar segir App­lebaum, þótt Svíar, Þjóð­verjar …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár