Mitt í hörmungunum situr lítill drengur og brosir

Nýr kafli er að hefj­ast í árás­unum gegn Palest­ínu­mönnum á Gasa, en Ísra­els­menn hafa boðað hertar hern­að­ar­að­gerðir.

Mitt í hörmungunum situr lítill drengur og brosir

Í rústum Abu Hamisa-skól­ans situr palest­ínskur drengur í leit að gleði. Þrátt fyrir hörm­ung­arnar sem dynja á má sjá dreng­inn brosa. 

Skólinn var rek­inn með stuðn­ingi Hjálp­ar­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna í al-Buraij-flótta­manna­búð­unum á Gasa. Palest­ínu­menn höfðu leitað skjóls í skól­anum en eftir mann­skæða árás Ísra­els­hers reyndu eft­ir­lif­endur að bjarga öllu not­hæfu úr skóla­bygg­ing­unni. 

Í síð­ustu viku til­kynntu Ísraelar um hertar hern­að­ar­að­gerðir gegn Gasa, með það að marki að leggja land­svæðið undir sig og flytja Palest­ínu­menn á brott. Fjár­mála­ráð­herra Ísraels sagði stig­mögnun átak­anna gjör­eyða byggð á Gasa-strönd­inni. Tug­þús­unda vara­lið var kallað út til þess að fylgja fyr­ir­ætl­unum Ísraela eftir. 

Rúmlega tvær millj­ónir manna búa á Gasa og voru þeir hvattir til að flytja sig suður, en þar er lítið að sækja eftir langvar­andi stríðs­á­tök. Ekki liggur heldur fyrir hvernig fólk á að kom­ast þangað. Auk þess sem lokað hefur verið fyrir flutn­inga á neyð­ar­gögnum til Palest­ínu und­an­farna tvo mán­uði, með þeim afleið­ingum að mat­ar­birgðir eru á þrotum, fjöldi fólks þjá­ist af hungri og vannær­ingu. Þúsundir barna eru alvar­lega vannærð og illa ferða­fær. Ísraelar hafa verið gagn­rýndir fyrir brot á mann­rétt­indum. Utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, segir Ísra­els­menn „möl­brjóta alþjóða­lögin“. 

Utan­rík­is­ráð­herrar Íslands, Írlands, Lúx­em­borgar, Noregs, Slóveníu og Spánar hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu til að lýsa þungum áhyggjum af áformum Ísraela um að auka hern­að­ar­að­gerðir á Gasa og  koma á langvar­andi við­veru Ísraela á svæð­inu. Með því væri verið að stig­magna ástandið og stofna líkum á tveggja ríkja lausn í hættu. „Frekari stig­mögnun hers­ins á Gasa mun aðeins auka enn hörmu­legt ástand fyrir almenna palest­ínska íbúa og ógna lífi gísl­anna sem eru enn í haldi.“ Skoruðu ráð­herr­arnir á Ísraela að fylgja mann­úð­ar­reglum og aflétta banni á flutn­ingi neyð­ar­að­stoðar til Gasa, sýna still­ingu og hefja aftur vopna­hlé. 

Benjamin Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, er sagður byggja á hug­myndum for­seta Banda­ríkj­anna, Donalds Trump, um að hvetja Palest­ínu­menn til að fara sjálf­vilj­ugir frá Gasa. Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í sögu Mið-Aust­ur­landa, segir að nú sé nýr og alvar­legri kafli haf­inn: „Rík­is­stjórn Ísraela ætlar að auka veru sína á Gasa og binda enda á það líf sem er þar núna,“ sagði hann í Kast­ljósi í lið­inni viku.

Harka eigi eftir að fær­ast í stríðs­á­tökin og mann­fall aukast til muna. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár