Sælukot hagnast um tugi milljóna en starfsfólk og foreldrar lýsa skorti

Einka­rekni leik­skól­inn Sælukot, sem hefur fengið millj­arð króna í opin­ber fram­lög síð­asta ára­tug, hefur hagn­ast vel og nýtt pen­ing­ana til að kaupa fast­eignir fyrir stjórn­ar­for­mann­inn. Stjórn­endur leik­skól­ans segja mark­miðið vera að ávaxta rekstr­ar­af­gang, en fyrr­ver­andi starfs­menn og for­eldrar nem­enda kvarta undan langvar­andi skorti. Skólanum var nýlega lokað tíma­bundið vegna óþrifn­aðar og mein­dýra.

Sælukot hagnast um tugi milljóna en starfsfólk og foreldrar lýsa skorti
Leik­skól­inn var stækk­aður fyrir nokkrum árum og nú stendur til að stækka aftur. Stjórn­ar­for­maður og rekstr­ar­stjóri Sælukots er Kumari Kundan Singh, kölluð Dídí.

Und­an­far­inn ára­tug hefur leik­skól­inn Sælukot fengið yfir millj­arð króna í fram­lög frá Reykja­vík­ur­borg, á sama tíma og stjórn­endur voru staðnir að því að brjóta reglur með því að ofrukka for­eldra um vist­un­ar­gjöld. Svo virð­ist sem skól­inn ofrukki for­eldra enn í dag um vist­un­ar­gjöld.

Árin 2019 og 2020 hagn­að­ist skól­inn um sex­tíu millj­ónir króna en félagið um rekstur leik­skól­ans keypti árið 2019 ein­býl­is­hús fyrir 85 millj­ónir króna. Það var þar til fyrir skemmstu heim­ili stjórn­ar­for­manns og rekstr­ar­stjóra leik­skól­ans, Kumari Kundan Singh. Húsið var selt í nóv­em­ber 2024 fyrir rúm­lega 132 millj­ónir og nam því aukið virði fast­eign­ar­innar 47 millj­ónum króna. Í sama mán­uði var íbúð við Þver­brekku 4 í Kópavogi keypt af hálfu Sælukots á 68 millj­ónir króna og stað­greidd. Kumari býr þar nú.

„Mark­miðið virð­ist vera að stækka skól­ann meira og meira og græða pen­inga,“ segir for­eldri barns sem var á leik­skól­anum. Það er einn margra við­mæl­enda Heim­ild­ar­innar …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SGIG
    Sigurlaug Guðrún I Gísladóttir skrifaði
    Finnst þessum foreldrum sem sagt allt í lagi að það sé vaðandi músaskítur innan um matinn hjá börnunum?
    Finnst þeim allt í lagi að fjármunir sem eigi að fara til að reka skólan séu notaðir til að kaupa húsnæði fyrir rekstaraðila?
    Finnst foreldrum sem sagt allt í lagi að borga meira en þeim ber að gera?
    Eða er kannski grundarvallar ástæða þess að foreldrar segja allt í fína með allt, sú að leikskólaplássin eru of fá, og að þau gætu misst það pláss sem þau hafa?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár