Yfirgangstal með óþægilega hliðstæðu

Emb­ætt­is­taka Donalds Trumps vekur upp spurn­ingar sem við Íslend­ingar þurfum að hugsa alla leið, meðal ann­ars í ljósi yfir­lýs­inga hans gagn­vart Græn­landi og Kanada, segir Friðjón R. Frið­jóns­son borg­ar­full­trúi. Hann kveðst einnig hafa „óþæg­inda­til­finn­ingu“ gagn­vart því að vell­auð­ugir tækni­brósar hjúfri sig upp að Trump, sem nú fer á ný með fram­kvæmda­valdið í lang­vold­ug­asta ríki heims.

Yfirgangstal með óþægilega hliðstæðu
Forseti Donald Trump er snú­inn aftur. Hér er hann á for­seta­skrif­stof­unni í Hvíta hús­inu eftir emb­ætt­is­tök­una í gær, að ræða við fjöl­miðla og und­ir­rita fjölda til­skip­ana um breytta stefnu Banda­ríkj­anna í ýmsum mála­flokkum. Mynd: AFP

Donald Trump tók á ný við emb­ætti Banda­ríkja­for­seta í gær, við athöfn sem var frá­brugðin flestum inn­setn­ing­ar­at­höfnum í seinni tíð, en hún var haldin inn­an­dyra vegna kulda­kasts sem geisar á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Þetta er í fyrsta sinn síðan Ronald Reagan var settur í emb­ætti í jan­úar árið 1985 sem gripið hefur verið til þessa ráðs. 

Trump hefur gripið athygl­ina und­an­farnar vikur með ýmsum yfir­lýs­ingum, um Kanada og Grænland meðal ann­ars. Hann var búinn að boða mik­inn fjölda for­seta­til­skip­anna strax á fyrsta degi í emb­ætti og hefur ekki setið aðgerða­laus.

Til dæmis eru Banda­ríkin þegar búin að draga sig frá Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu og út úr Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni. Um 1.500 stuðn­ings­menn Trumps sem réð­ust að banda­ríska þing­hús­inu 6. jan­úar 2021 hafa svo verið náð­aðir og sumir þeirra eru þegar lausir úr fang­elsi.

Friðjón R. Frið­jóns­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks bjó um hríð í Banda­ríkj­unum og fylgist vel með þróun stjórn­mála vest­an­hafs. Hann …

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár