Hvað gerðist í Sýrlandi?

Illræmd stjórn Bashar al-Assads hefur verið hrakin frá völdum í Sýrlandi. Alls er óvist hvort betri tímar taki við fyrir hina hrjáðu sýr­lensku þjóð. Hér er upp hafin sagan af Sýrlandi.

Hvað gerðist í Sýrlandi?
Hinn mikli Saladín. Þessi stytta af honum er í Damaskus.

Þegar þetta er skrifað snemma á sunnu­dags­morgni 8. des­em­ber verður ekki betur séð en Bashar al-Assad for­seti Sýrlands frá 2000 sé flú­inn frá Damaskus og stjórn hans hrunin.

Það er í sjálfu sér fagn­að­ar­efni því Assad var ótrú­lega grimmur ein­ræð­is­herra og ber alla ábyrgð á því að borg­ara­stríð braust út í Sýrlandi 2011 með skelfi­legum afleið­ingum fyrir sýr­lensku þjóð­ina, auk þess sem stríðið hafði víð­tækar afleið­ingar víðar um ver­öld og allar slæmar.

Að sönnu er þó í bili alveg óvíst hvort valda­skiptin nú muni hafa í för með sér til skamms tíma frið­sam­legra eða betra líf fyrir sýr­lensku þjóð­ina.

Að því vík ég síðar en full ástæða er fyrst til að rifja upp sögu Sýrlands af þessu til­efni til að átta sig á hvað liggur að baki því sem nú er að ger­ast.

Ein elsta borg í heimi

Það er kunn­ara en frá þurfi að segja að á svæð­inu sem við köllum nú Sýrland reis mjög snemma það sem við köllum menn­ing. Damaskus er ein þeirra borga í sög­unni þar sem hefur verið lengst sam­felld búseta. Þar var komin skipu­leg byggð með full­komnu áveitu­kerfi í sveit­unum í kring fyrir meira en 5.000 árum.

Frjósemi lands­ins var þá mun meiri en nú og íbúar lifðu þar yfir­leitt góðu lífi. Þegar öflug ríki tóku að mynd­ast í Mið­aust­ur­löndum varð það þó hlut­skipti Sýrlands að verða leiksoppur stór­velda, fremur en að þar risi sjálf­stætt stór­veldi.

Eitt þeirra stór­velda var Assyría og oft er sett sama­sem­merki milli Assyr­íu­manna hinna fornu og Sýr­lend­inga. En það er þó ekki fylli­lega rétt. Assyr­íu­menn komust á legg í efri byggðum Mesópótamíu (Íraks) og eru kenndir við borg­ina Assúr við Tígris-fljótið. Öfl­ug­asta stór­veldi þeirra stóð um það bil frá 900-600 FT (fyrir upp­haf tíma­tals okkar) og þá réðu Assyr­íu­menn meðal ann­ars svæð­inu sem við köllum Sýrland.

Voru Sýrlendingar Assyríumenn?

Það voru þá grískir kaup­menn sem tóku að kalla íbú­ana Sýr­lend­inga vegna þess að þeir lutu stjórn Assyr­íu­manna, en ekki vegna þess að þeir væru í sjálfu sér allir Assyr­íu­menn.

Þá þegar höfðu margar öfl­ugar þjóðir ráðið Sýrlandi um lengri eða skemmri tíma — Húrríar, Hittítar, Egiftar og Babýlon­íu­menn — og eftir að Assyr­íu­menn voru að velli lagðir komu Persar, Makedón­íu­menn (Selef­kídar), Parþar og loks Róm­verjar á miðri fyrstu öld FT.

Hér má sjá Sýrland rétt áður en Róm­verjar mættu til leiks.Þá var litið á hina fornu Fönikíu (nú Líbanon) sem hluta Sýrlands, það er að segja borg­ríkin Trípólí, Sídon og Týrus.

Róm­verjar réðu Sýrlandi í tæp 700 ár, síð­ustu ald­irnar reyndar í líki hinna grísku­mæl­andi Býsans­manna. Á þeim tíma festi krist­in­dómur djúpar rætur í Sýrlandi.

Kristindómur, svo íslam

Antíokkía varð ein af fjöl­menn­ustu og auð­ug­ustu borgum heims. Stærstur hluti yfir­stétt­ar­innar tal­aði þá grísku en alþýðan sína útgáfu af hinni semi­tísku tungu ara­meísku sem var þá útbreiddasta mál Mið­aust­ur­landa.

Laust fyrir miðja sjö­undu öld ET breytt­ist allt.

Arab­ískir þjóð­flokkar höfðu búið í meira en þús­und ár fyrir sunnan Sýrland og Mesópótamíu og allt suður á Arab­íu­skaga. Þeir sáu sér leik á borði þegar Býsans­ríkið og Persía (Sassanídaríkið) höfðu gengið fram af sér með ára­tuga löngu stríði, ekki síst um Sýrland.

Ara­barnir lögðu nú á skömmum tíma undir sig öll Mið­aust­ur­lönd og gríð­ar­stór flæmi í Norður-Afríku, Persíu og Mið-Asíu.

Ný trú­ar­brögð Arabanna, íslam, áttu ólít­inn þátt í að fylla þá þeim eld­móði sem dugði til að kné­setja nán­ast í einu vet­fangi hin fornu stór­veldi heims­hlut­ans.

Damaskus höfuðborg heimsveldis

Og nú varð hin forna menn­ing­ar­borg Damaskus í fyrsta sinn höf­uð­borg stór­veldis. Árið 661 varð her­for­ing­inn معاوية بن أبي سفيان eða Múavía hæst­ráð­andi hins nýja arab­íska ríkis, kall­aður kalífi eða „arf­taki“ spá­manns­ins Múhameðs, trú­ar­legs og and­legs leið­toga hinnar arab­ísku útrásar. Ætt Múavía réði svo rík­inu frá Damaskus í 90 ár og kall­ast kalífar hennar Uma­jjadar.

Á valda­tíma Umajjada treystu Arabar sig í sessi á öllu því flæmi sem þeir höfðu lagt undir sig. Víðast í rík­inu leysti íslam krist­in­dóm­inn nær alveg af hólmi og arab­íska kom smátt og smátt í stað ara­meísku. Þau tungu­mál voru og eru enda harla skyld.

Árið 750 ruddi ný valda­ætt, Abbasídar, Uma­jjödum úr sessi og flutti höf­uð­borg rík­is­ins til Bagdad í Mesópótamíu. Um leið dró úr mik­il­vægi Damaskus. Arabíska stór­ríkið fór svo að klofna æ meir næstu ald­irnar. Stundum höfðu ýmsir pót­in­tátar aðsetur í Damaskus en sjaldn­ast voru þeir miklir menn fyrir sér.

Kóngar Þýskalands og Frakklands setjast um Damaskus

Á kross­fara­tím­anum komst Damaskus aftur í sviðs­ljósið sem þunga­miðja and­stöðu gegn hinum kristnu inn­rás­ar­mönnum og 1148 sett­ust her­sveitir Loðvíks 7. Frakka­kóngs og Konráðs 3. Þýska­lands­kon­ungs um borg­ina. Með því að leggja hana undir hugð­ust kross­fara­kóng­arnir tveir gera borg­ina að þunga­miðju í öfl­ugu kristnu ríki í Mið­aust­ur­löndum.

Þeir fóru hins vegar hrak­farir og Damaskus var aldrei síðan í hættu á kross­fara­tímum.

Hinn mikli soldán Saladín braut kross­far­ana ræki­lega á bak aftur í næstu kross­ferð þeirra og hefur æ síðan verið dáður og elsk­aður í Damaskus.

Meira að segja þótt hann hafi í raun­inni verið Kúrdi en millum Kúrda og Sýr­lend­inga er lít­ill vin­skapur, væg­ast sagt.

Í byrjun 16. aldar var Damaskus og raunar Sýrland mest­allt undir stjórn hinna svo­nefndu Mamlúka í Egifta­landi.

Ný þjóð frá Mið-Asíu hafði þá und­an­farnar aldir verið að dunda við að leggja undir sig hið gamla Býsans­ríki og síðan und­ir­oka stóra hluta Balkanskaga.

Það voru Tyrkir sem náðu Kon­stant­ínópel (nú Istanbúl) höf­uð­borg Býsans­rík­ins 1453.

Tyrkir ná Damaskus!

En næst sneru Tyrkir sér undir for­ystu Selíms 2. sold­áns að ríki Mamlúka og öðrum arab­ískum ríkjum í Mið­aust­ur­löndum. Á árunum 1516-17 lögðu Tyrkir Mam­lúk­a­ríkið undir sig, heldur létti­lega, og þar á meðal Sýrland.

Damaskus varð mið­punkt­ur­inn í stjórn­sýslu Tyrkja á svæð­inu. Marg­vís­legra umbóta var þörf enda hafði Mam­lúk­a­ríkið verið orðið staðnað og fúið undir lokin, og um skeið var líf og fjör í Damaskus á ný. Hinir arab­ísku íbúar voru þó ekki allir him­in­sælir með yfir­ráð Tyrkja og með tím­anum kom æ oftar til mót­þróa og jafn­vel upp­reisna gegn Tyrkjum.

Færðist and­staðan í auk­ana jafn­óðum og drungi og stöðnun tók mjög að fær­ast yfir Tyrkja­veldi sjálft er líða fór á 19. öld.

Þegar fyrri heims­styrj­öldin braust út 1914 gerðu Tyrkir þau mis­tök að ganga í lið með Þjóð­verjum og fengu þar með heims­veldi Breta og Frakka upp á móti sér. Bæði stór­veldin hófust nú handa um að grafa undan stjórn Tyrkja í Mið­aust­ur­löndum.

Grunur um olíu

Tvennt kom þar til, og þó þrennt.

Í fyrsta lagi til­tölu­lega skilj­an­leg löngun stór­veldis í stríði til þess að yfir­buga öfl­ugan and­stæð­ing.

En í öðru lagi voru Evr­ópustór­veldin farin að líta Mið­aust­ur­lönd mjög hýru auga vegna þess að menn grun­aði, og með réttu, að þar myndu lík­lega leyn­ast í jörðu miklar olíu­lindir.

Einmitt um þær mundir var ljóst orðið að olían yrði sjálft lífs­blóð fram­fara og fram­kvæmda á 20. öld­inni.

Og svo í þriðja lagi var evr­ópsku stór­veld­unum þá ein­fald­lega orðið eig­in­legt að vilja sölsa undir sig lönd og nýlendur hvar sem því varð við­komið.

Bæði Bretar og Frakkar ýttu mark­visst undir þjóð­ern­is­til­finn­ingar Araba og and­stöðu þeirra gegn Tyrkjum. Þeir gáfu til kynna að ef Arabar í Sýrlandi, Palest­ínu, Mesópótamíu og á Arab­íu­skaga legðu þeim lið myndu þeir síðan hjálpa Araba­þjóð­unum (sem nú voru farnar að skil­greina sig svo) til sjálf­stæðis og fram­sóknar.

Og nærri hvar­vetna risu Arabar upp og tóku fullan þátt í að sigra Tyrki, sem að lokum urðu að gef­ast upp, beygðir og sveigðir og nið­ur­lægðir.

Þannig að fjand­skapur milli Tyrkja og ýmissa Araba­þjóða, ekki síst Sýr­lend­inga, er ekki beint nýr af nál­inni, þótt bæði Tyrkir og Sýr­lend­ingar séu vissu­lega múslimar og haldi þann hóp yfir­leitt á yfir­borð­inu.

Öll loforð svikin

Þegar heims­styrj­öld­inni lauk sviku Bretar og Frakkar svo öll lof­orð sem þeir höfðu gefið íbúum á svæð­inu. Flest lönd á svæð­inu voru gerð „vernd­ar­svæði“ evr­ópsku stór­veld­anna en það var nýtt og snot­urt orð yfir nýlendur.

Og er íbúar dirfð­ust að malda í móinn voru þeir ein­fald­lega barðir til hlýðni.

Fyrir fjórum árum skrif­aði ég í Stundina flækju­sögu­grein þar sem því var lýst hvað næst gerð­ist. Frakkar hirtu Sýrland og virt­ust nú líta á sig sem beina arf­taka kross­far­ans Loðvíks 7. sem hafði mis­tek­ist að leggja Damaskus undir sig 1148.

Hér er greinin: „Vaknaðu Saladín, við erum komnir!“

Hér les ég svo þá sömu grein.

Seinna víkur að því hvað gerð­ist næst.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • IS
    Ingólfur Steinsson skrifaði
    Mig langar að senda ykkur þýðingu mína á bréfi frá palestínskum barnakennara. Hún biður um hjálp til tjaldkaupa. Þau eru nokkur saman sem vilja koma af stað kennslu fyrir börnin á Gaza. Ég þýddi bréfið hennar og sendi með mynd af henni. Ég reyni að setja greinina hér inn. Kannski er e-r betri staður sem þig getið látið mig vita um. En mig langar að biðja ykkur að birta þetta bréf með litlum formála frá mér. Kveðja, Ingólfur Steinsson.

    Um menntun barnanna á Gaza
    Ég sendi hér þýðingu á bréfi frá Reham Khaled um átak í málefnum barna og kennslu þeirra. Hún er fyrrum barnskólakennari á Gaza. Nú er búið að eyðleggja skólann ásamt öllum öðrum innviðum á Gaza. (Meðal annarra orða, hvers vegna er ekki búið að koma á viðskiptabanni og slíta stjórnmálasambandi við hryðjuverkaríkið Ísrael? Það ættu öll ríki, sem láta sér annt um mannréttindi, að gera.) Reham hefur ásamt fjórum öðrum myndað hóp sem ætlar sér að reyna að koma á einhvers konar barnakennslu. Hún biður um hjálp ykkar í eftirfarandi bréfi og ég sendi með söfnunarslóð þessa hugrakka og þolgóða unga fólks. Hér kemur þýðing mín á bréfinu.


    Komið þið sæl, mín kæru.
    Ég skrifa ykkur í dag frá stríðshrjáðu landi þar sem draumar hafa orðið að engu
    og lífið hefur tekið varanlegum stakkaskiptun. Ég heiti Reham Kaled og er 27 ára gömul kona frá Gazaborg. Við erum 6 manna fjölskylda. Ég skrifa þetta í þeirri von að bjarga fjölskyldu minni frá meiri grimmdarverkum en hægt er að ímynda sér sem skekið hafa Gazasvæðið síðan í október 2023. Ég menntaði mig í Kennaraháskólanum og var grunnskólakennari þegar allt breyttist. Hernámsliðið hefur eyðilagt allt sem okkur er kært. Ég hef misst heimili mitt, atvinnuna og fjölskyldan hefur misst alla sína tekjumöguleika. Sem ég skrifa þetta bý ég í geymsluhúsi með fjölskyldunni eftir að okkur hefur verið gert að flytja 8 sinnum til að reyna að komast í skjól undan sprengjustorminum.

    Við sem myndum Ungmennahóp framtíðarinnar (Future Youth Team) erum fimm kennarar. Við skrifum þessa áskorun í þeirri von að geta bjargað börnum á Gaza frá þessu ótrúlega þjóðarmorði sem hefur farið hér fram. Ég vann við að kenna ungum börnum allt þar til stríðið hófst og draumar okkar voru sprengdir í tætlur.

    Borgin Gaza er orðin að draugaborg þar sem eru engir háskólar, spítalar, engar moskur eða skólar yfirleitt. Þúsundir barna hafa misst það sem kalla má þeirra grundvallar réttindi: Öryggi, friður, menntun, matur. Ungmennahópurinn hefur ákveðið að hjálpa þessum börnum með því að reyna að sjá þeim fyrir einum af þessum grundvallar þáttum sem er rétturinn til menntunar eftir eyðileggingu skóla á Gaza. Við byrjuðum að vinna að þessu með því að koma á fót kennsluhópi fyrir grunnskólastigið til að reyna að bæta fyrir þann tíma sem börnin okkar hafa misst. Þessir fimm kennarar eru:

    Reham, sem hefur sérhæft sig í kennslu ungra grunnskóla- og leikskólabarna.
    Sohaib sem kennt hefur arabísku og bókmenntir og var að ljúka meistaraprófi þegar allt breyttist.
    Fadia sem er enskukennari fyrir alla aldurshópa.
    Múhameð sem hefur kennt samfélags- og stærðfræði.
    Nour sem hefur kennt arabísku og bókmenntir fyrir alla aldurshópa.
    Mishelle Napolitano sem kennir ensku með hjálp myndbandstækninnar.
    Öll hafa þau mikla reynslu á sínu sviði.

    Menntunarhópur okkar á erfitt með að finna húsnæði við hæfi til að taka á móti börnunum. Við erum að reyna að verða okkur úti um kennslutjald, hæfilega stórt til að taka nokkra hópa af börnum. Þetta er persónulegt frumkvæði nokkurra kennara frá Gaza ströndinni sem þarfnast hjálpar við að takast á við erfiða daga í þeirri von að hægt verði að láta þennan draum rætast.
    Þú getur stutt þetta átak með framlagi. Við stingum upp á 5, 10 eða 50 dollurum eftir getu. Stuðningur ykkar getur hjálpað til við að sjá barni fyrir plássi, barni sem hefur misst alla möguleika á menntun í þessum hörmungum. Með ykkar framlagi getum við komist nær því að útvega hluta barnanna á Gaza sæti á skólabekk sem mun hjálpa þeim að tryggja sér betra líf og betri framtíð. Hjálpið okkur að opna þessar dyr fyrir börnunum okkar.

    Þakka þér fyrir að lesa þetta, fyrir samkenndina og fyrir allt það sem þú gerir til þess að bæta heiminn með þessu. Engir eiga frekar skilið þetta augnablik tíma þíns og örlætis heldur en börnin á Gaza. Staðfastur stuðningur þinn og uppörvun minnir okkur á það að mannkynið kemst af jafnvel þegar það stendur frammi fyrir ótrúlega erfiðum vandamálum. Og það er mögulegt vegna fólks sem eins og þín. Allur stuðningur skiptir máli fyrir líf svo margra barna. Takk fyrir að standa með okkur og fyrir hjálp þína við að halda voninni lifandi á Gaza.

    https://chuffed.org/project/119838-future-yout

    Reham Kahled

    (Mig langar að senda ykkur mynd af henni en hún vill ekki vistast hér inn.)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár