„Sérhver dauður uxi þýðir dauðan indíána“

Sú fræga ljós­mynd sem hér birt­ist lýsir ógur­legum hrann­vígum á bíson­uxum í Norður-Ameríku á 19. öld. En hvað bjó að baki?

„Sérhver dauður uxi þýðir dauðan indíána“
„Manngert lands­lag“ má kannski kalla þessa ljós­mynd.

Kannski fer vel á því að eng­inn veit hver tók mynd­ina, né heldur hvað menn­irnir tveir heita sem þar sjást. Nafn­leysið hefur á sinn hátt í för með sér að hvorki áhorf­and­inn (ljós­mynd­ar­inn) né menn­irnir tveir verða sem ein­stak­lingar þátt­tak­endur í þeirri skelf­ingu sem myndin lýsir, heldur eru þeir, má segja, full­trúar mann­kyns­ins alls.

Og það er líka í raun mann­kynið allt sem ber ábyrgð­ina á því sem þarna gerð­ist.

En samt ekki alveg allt, heldur aðkomnir inn­rás­ar­menn sem óðu á skítugum skónum inn í gam­al­gróið vist- og líf­kerfi sem þró­ast hafði í þús­undir ára.

Innan við 400 dýr eftir á lífi

Þarna standa veiði­menn og/eða her­menn yfir þús­undum hausa af bíson­uxum sem á að fara að mala og brenna í áburð við verk­smiðju í Michigan árið 1892.

Þau hrann­víg á uxunum stóru sem myndin er til marks um höfðu þá staðið í nokkra ára­tugi í Norður-Ameríku og rétt undir alda­mótin 1900 voru innan við 400 dýr eftir á lífi.

Það var hressi­leg frá því sem mest var.

Undir lok 18. aldar er talið að fjöldi dýr­anna á sléttum Norður-Ameríku hafi verið um 60 millj­ónir. Á sumrin héldu þau sig á gras­slétt­unum þar sem nú eru hin nyrðri mið­ríki Banda­ríkj­anna en þegar kóln­aði á vet­urna fóru þau þús­undir kíló­metra til suð­urs og höfðu vet­ur­setu í Texas og Nýju-Mexíkó, sem nú heita.

Hina löngu leið á milli fóru dýrin í ógn­ar­stórum hjörðum. Nátt­úru­fræð­ing­ur­inn E.T. Seton kvaðst á ofan­verðri 19. öld hafa séð hjörð sem taldi þrjár millj­ónir dýra og var eins og ólg­andi haf yfir að sjá þar sem uxarnir streymdu suður á bóg­inn.

Hin síðasta stund

Og þetta voru engar smá­ræðis skepnur. Stærstu tarfarnir eru nærri tveir metrar á hæð upp á herða­kamb og nálg­ast að vera tonn að þyngd.

Jörðin skalf og nötr­aði þar sem stærstu hjarð­irnar fóru um.

En þá var líka að renna upp síð­asta stund þess­ara miklu hjarða.

Margar þjóðir frum­byggja – indíána sem kall­aðir voru um tíma síðar – byggðu lífs­af­komu sína á uxunum. Frum­byggjarnir eru taldir hafa veitt milli 200–300 þús­und dýr á ári en miðað við heild­ar­fjöld­ann sá ekki högg á vatni. Og frum­byggjarnir báru ósvikna virð­ingu fyrir dýr­unum. Þeir töl­uðu gjarnan um þau sem frænd­fólk sitt, sam­herja í lífs­bar­átt­unni frekar en fjendur.

Þeir lifðu sem sé í „sátt og sam­lyndi“ við nátt­úr­una að séð varð.

Stjórnkerfi dýranna?

Það er meira að segja talið að þjóð­irnar á slétt­unum hafi vit­andi eða óvit­andi tekið stjórn­kerfi sitt upp frá dýr­unum.

Bíson­uxa­hjarðir lúta ekki for­ystu eins öfl­ugs karl­dýrs eins og raunin er hjá mörgum dýra­hópum heldur ríkir þar eins konar „sam­virk for­ysta“ þar sem sam­vinna margra dýra leiðir hjörð­ina áfram.

Sams konar stjórn var og við lýði hjá frum­byggja­þjóð­unum á slétt­unni.

Þegar kom fram á 19. öld fóru afkomu­menn ætt­aðir frá Evrópu hins vegar að strá­drepa dýrin. Og upp úr miðri öld­inni voru veið­arnar komnar út í þau ógn­ar­legu hrann­víg sem ljós­myndin frá 1892 sýnir.

„Hvítu menn­irnir“ höfðu ýmsar ástæður til að drepa dýrin. Þeir not­uðu skinn þeirra í leður, bjuggu til dýr­mæta muni úr horn­unum, kjötið var víst góm­sætt. Og svo þurfti, sögðu menn, að fækka í stóru hjörð­unum svo þær ógn­uðu ekki járn­braut­ar­lest­unum sem fóru að paufast um slétt­urnar upp úr miðri öld­inni.

Og blóðið rann.

Tákn fyrir dýravernd

Rétt áður en síð­ustu uxunum væri útrýmt laust fyrir 1900, þá urðu myndir eins og sú sem tekin var af nafn­lausum ljós­mynd­ar­anum í Michigan, til þess að menn hrukku loks­ins í kút.

Var þetta ein­hver hemja? Var rétt­læt­an­legt að útrýma með öllu þess­ari glæsi­legu dýra­teg­und sem hafði fyrir svo skömmu ráðið ríkjum á slétt­unni?

Allt í einu fóru Banda­ríkja­menn að leiða hug­ann að verndun dýra­stofna og myndin frá Michigan varð tákn fyrir dýra­vernd og fyrir and­stöðu gegn stjórn­lausri ofveiði og græðgi manns­ins.

Og sem slík er hún vissu­lega firna­sterk.

En hún er samt vottur um annað sem er eig­in­lega enn skelfi­legra.

Það kom nefni­lega upp úr dúrnum um síðir að þetta voru ekki stjórn­lausar veiðar drifnar áfram af skamm­sýnni græðgi skinna­kaup­manna og þvíum­líkra kóna.

Ískalt markmið

Ónei, það voru amer­íski her­inn og emb­ætt­is­menn sem bein­línis ýttu veiði­mönnum út í þessi hrann­víg, og her­menn tóku reyndar oft þátt í þeim.

Og það var bein­línis mark­miðið að kippa fót­unum undan lífs­af­komu frum­byggja­þjóð­anna. Það var ísköld fyr­ir­hyggja sem lá að baki.

„Sérhver dauður uxi þýðir einn dauðan indíána,“ sögðu her­for­ingj­arnir um leið og þeir bjuggu út veiði­menn­ina.

Það fór líka svo. Frum­byggja­þjóðir sem byggðu á bíson­uxa­veiðum hrundu, dóu í hrönnum úr hungri og vannær­ingu og hafa ekki náð sér á strik enn. Bændur frá Evrópu fengu nóg land­rými og plægðu svörð­inn þar sem lík bíson­uxa og frum­byggja rotn­uðu. 

Þetta eru reyndar þau svæði þar sem þau eru nú sterk­ust sem vilja „make America great again“.

„Great“ eins og þegar bíson­ux­arnir voru strá­drepnir millj­ónum saman? Eins og þegar frum­byggja­þjóð­irnar visnuðu og dóu?

En svo er hægt að flækja málið enn meira.

Stóri frændi

Því hvað olli því að bíson­ux­inn hafði fengið svo mikið pláss á amer­ísku slétt­unum yfir­leitt?

Þegar ísöld­inni lauk fyrir um það bil tíu til tólf þús­und árum og jöklar hurfu af hinum miklu sléttum, þá ráf­uðu þar um margar teg­undir gras­bíta og jurta­æta í stórum hjörðum.

Sumar risa­vaxnar.

Bæði mammútar og mastó­dónar af fíla­ætt, miklu stærri en bíson­uxar.

Kamel­dýrin Camelops hesternus, sjón­ar­mun stærri en nokkrir núlif­andi úlf­aldar eða kamel­dýr í Asíu eða Afríku.

Að minnsta kosti tvær teg­undir af hestum, báðar á stærð við nútíma­hross.

Og síð­ast en ekki síst Bison latifrons, trölls­legur frændi þess bíson­uxa sem við þekkjum nú, hátt í þrír metrar að hæð upp að öxl og vel á þriðja tonn að þyngd. Og með metra löng horn, þung og mikil.

Horfnar tegundir

Öll þessi gríð­ar­stóru og glæsi­legu dýr ráf­uðu um frjósamar slétt­urnar í nokkur þús­und ár og höfðu nóg að bíta og brenna fyrir sína stóru skrokka.

En hurfu svo á skömmum tíma, dóu svo gjör­sam­lega út að til­vist þeirra varð ekki ljós fyrr en á ofan­verðri 19. öld þegar menn fóru að grafa stein­gerv­inga úr jörð.

Og smátt og smátt hefur komið í ljós hvað varð þeim að bana.

Jú, lofts­lags­breyt­ingar komu við sögu en meg­in­á­stæðan fyrir útrým­ingu þess­ara tign­ar­legu teg­unda voru þó hrann­víg af hendi manna. Nýkomnir til Ameríku þró­uðu þeir aðferðir til að reka hin stóru dýr inn í blind­götur nátt­úr­unnar, inn í þröng gil, fram af hengiflugi, út í straum­harðar ár og fossa.

Þegar þau voru öll dauð, þá fyrst varð pláss í nátt­úr­unni fyrir „litla“ bíson­inn til að fjölga sér ærlega.

Hverjir útrýmdu tegundunum?

Fjölda­drápin á stóru teg­und­unum tóku ívið lengri tíma en þegar afkom­endur Evr­ópu­manna höfðu nærri útrýmt bíson­ux­anum á 19. öld en afköstin voru stundum litlu síðri en lýsti sér í beina­bræðsl­unni í Michigan.

Og hverjir voru þessir menn sem útrýmdu stóru teg­und­unum, mammút­unum, mastó­don­unum, hross­unum, kamel­dýr­unum og risa­bíson­inum?

Ójú, það voru for­feður og for­mæður þeirra frum­byggja sem seinna höfðu lært af illri nauð­syn að lifa í sátt og sam­lyndi við bíson­ux­ann.

„Stærsta hjörðin taldi þrjár millj­ónir dýra og var eins og ólg­andi haf yfir að sjá þar sem uxarnir streymdu suður á bóg­inn“
Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    „kjötið var víst gómsætt.“
    Já það er það þ.e.a.s. ef þér líkar við nautakjöt, mjög svipað því en öllu bragðsterkara og grófara.
    0
    • Gunnar Valdimarsson skrifaði
      Nei, þetta er ólíkt. Nautakjöt er óþverri en vísundakjöt, eða bísonuxakjöt eins og Illugi segir, er alger herramannsmatur. Það er eins og villibráð, frekar í ætt við hreindýr. Það eru líka meðmæli með bison að Bandaríkjamönnum þykir þetta almennt vondur matur. Matarmenning vestra er á svo lágu plani að allt sem er fellur utan hennar er gómsætt
      Eyða
      0
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Frumbyggjar Na stunduðu hrannvíg á vísundum þangað til fyrstu hestarnir sluppu frá Spánverjum í Mexíkó og það var ekki fyrr en þá sem vísundum fjölgaði verulega. Hesturinn var hinsvegar kominn hringinn á undan manninum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár