Ráð til jólasveinsins – og foreldra spenntra barna

Jóla­sveinar eru komnir á kreik og farnir að gefa börnum í skó­inn, mörgum til mik­illar ánægju. Foreldra- og upp­eld­is­fræð­ing­arnir Helena Rut Sig­urð­ar­dóttir og Rakel Guð­björns­dóttir eiga ýmis ráð í poka­horn­inu fyrir for­eldra barna sem bíða spennt eftir komu sveinka sem og þeirra sem trúa ekki lengur að hann sé raun­veru­legur. Þær hafa líka ýmis ráð fyrir sveinka sjálfan varð­andi gjafa­val.

Ráð til jólasveinsins – og foreldra spenntra barna
Hurða­skellir og Stúfur Hurða­skellir er upp­á­halds jóla­sveinn Helenu Rutar Sig­urð­ar­dóttur for­eldra- og upp­eld­is­fræð­ingur. „Það voru læti í kringum hann. Hann var hressi karl­inn.“ Stúfur er hins vegar upp­á­hald­s­jóla­sveinn Rakelar Guð­björns­dóttur, stöllu hennar. Stúfur er nefni­lega svo lít­ill og sætur að hann er ekk­ert ógn­vekj­andi. Mynd: Golli

Jóla­sveinn­inn gleður hjörtu barna á öllum aldri víða um heim og við á Íslandi erum svo heppin að það er ekki bara sá rauð­klæddi með síða, hvíta skeggið sem heim­sækir okkur heldur líka íslensku bræð­urnir og jóla­svein­arnir – synir Grýlu og Leppalúða – svo sem Stúfur, Stekkja­staur og Skyrgámur að ógleymdum Hurða­skelli.

Jóla­svein­arnir hafa ýmsan starfa þegar þeir koma til byggða fyrir jólin og þar á meðal að gefa börnum í skó­inn, sem er partur af jóla­hefð­inni á mörgum heim­ilum.

„Ég hef stundum talað um að jóla­sveinn­inn ætti að gefa í skó­inn þegar hann fer til baka upp í fjöllin, eftir jólin, til að dreifa álag­inu og kannski trappa okkur niður en svo er þetta nota­leg jóla­hefð,“ segir Helena Rut Sig­urð­ar­dóttir for­eldra- og upp­eld­is­fræð­ingur. Annars er Hurða­skellir í upp­á­haldi hjá henni. „Það voru læti í kringum hann. Hann var hressi karl­inn.“

Stúfur er hins vegar upp­á­hald­s­jóla­sveinn Rakelar Guð­björns­dóttur, stöllu hennar. Stúfur er nefni­lega svo lít­ill og sætur að hann er ekk­ert ógn­vekj­andi.

Hvað ef börn efast um til­vist jóla­sveins­ins? Rakel segir að hafa þurfi í huga á hvaða aldri við­kom­andi börn eru. Ef ung börn hræð­ast jóla­svein­inn sé betra að útskýra fyrir þeim að það sé mann­eskja að leika jóla­svein­inn og leggja meiri áherslu á jóla­and­ann, kær­leik­ann og gleð­ina en ein­hvern ein­stak­ling sem er mögu­lega ógn­valdur í lífi þeirra. Helena bætir við að margir kjósa að hafa skó­inn í stof­unni eða jafn­vel sokka á hurð­inni, þannig að jóla­sveinn­inn fari ekki inn í her­bergi barn­anna.

Algeng­ast er að börn hætti að trúa á til­vist jóla­sveins­ins þegar þau byrja í grunn­skóla. Rakel bendir á að ef for­eldrar ýti á börn sín að trúa á til­vist hans geti það valdið sær­indum þegar barnið kemst að raun­veru­leik­anum og það jafn­vel spurt for­eldra sína hvers vegna þau hafi sagt sér ósatt í öll þessi ár og sér­stak­lega ef flestir jafn­aldrar þeirra eru hættir að trúa á til­vist sveinka. „Ég sé fyrir mér að það gæti skapað tog­streitu í sam­bandi for­eldris og barns ef for­eldrið hefur þörf fyrir að barnið trúi á til­vist hans þegar það er orðið þetta gam­alt; það væri betra að setja ork­una í jóla­and­ann og jóla­gleð­ina og jóla­svein­arnir eru partur af því; það er hægt að dansa í kringum þetta.“ 

Og það er hægt að dansa með jóla­svein­inum í kringum jóla­tréð.

Ráð til jólasveinsins

Það sem kemur fram hér að neðan er eink­an­lega beint til jóla­sveins­ins. Helena bendir á að jóla­sveinn­inn ætti að gæta hóf­semi þegar kemur að gjöfum í skó­inn en á sumum heim­ilum þarf hann að gefa fleiri en einu barni gjafir í skó­inn og nefnir Helena að hann gæti til dæmis gefið mandar­ínur og lím­miða og jafn­vel kerti og spil, raf­magns­kerti og spil. 

Rakel bendir á að efna­hagur fólks sé mis­jafn. Jóla­sveinn­inn ætti að hafa það í huga þar sem börn bera gjaf­irnar gjarnan saman og það sé slæmt ef eitt barn fær dýra gjöf í skó­inn, en næsta barn ekki. Það er jafn­vel sami jóla­sveinn­inn sem gefur þeim gjafir í skó­inn. Helena nefnir þá að jóla­sveinn­inn geti skilið eftir miða í skónum þar sem stendur til dæmis að barnið fái skemmti­lega sam­veru­stund með for­eldri sínu eða for­eldrum sínum. Það er ómet­an­leg gjöf sem allir hafa efni á. Að lokum nefna þær að hafa beri í huga að ekki eru öll börn sömu trúar og sum trúa ekki yfir höfuð eða for­eldrar þeirra. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár