Borg­ar­línu­stöð Ein­hvern­veg­inn svona gæti almenn stoppi­stöð Borg­ar­línu hugs­an­lega litið út. Mynd: Verkefnastofa Borgarlínu

Svona yrði ferð með Borgarlínunni

Umhverf­is­mats­skýrsla um fyrstu lotu Borg­ar­línu felur í sér nokkur tíð­indi um hvernig göt­urnar breyt­ast sam­fara gerð sér­rýmis fyrir stræt­is­vagna á rúm­lega 14 kíló­metra kafla í Reykja­vík og Kópavogi. Umferð­ar­skipu­lag í mið­borg Reykja­víkur gæti breyst mikið og tvær nýjar brýr yfir Elliðaár um mitt Geirsnef yrðu sam­tals 185 metra langar.

Þrátt fyrir að enn sjá­ist þess engin merki í verk­legum fram­kvæmdum er vinna við und­ir­bún­ing Borg­ar­línu áfram í fullum gangi. Ný inn­sýn fékkst í fram­gang verk­efn­is­ins á dög­unum þegar umhverf­is­mats­skýrsla vegna fyrstu lotu Borg­ar­lín­unnar var birt.

Þar má lesa um fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á götu­mynd­inni, þar sem sér­rými verður gert fyrir vagna Borg­ar­línu á milli Ártúns­höfða í Reykja­vík og Hamra­borgar í Kópavogi, með við­komu í mið­borg­inni. Alls er þetta um 14,5 kíló­metra akst­ursleið.

Samhliða því að umhverf­is­mats­skýrslan leit dags­ins ljós birtu Reykja­vík­ur­borg og Kópa­vogs­bær til­lögur að breyt­ingum á ramma­hluta aðal­skipu­lags sem tengj­ast legu Borg­ar­línu. Sveit­ar­fé­lögin setja þar fram bind­andi stefnu um legu Borg­ar­línu og stað­setn­ingu svo­kall­aðra kjarna­stöðva, sem eru helstu bið­stöðvar og tengi­punktar þessa nýja kerfis almenn­ings­sam­gangna. 

Opnir kynn­ing­ar­fundir verða haldnir um umhverf­is­mats­skýrsl­una og til­lög­urnar í báðum sveit­ar­fé­lögum eftir ára­mót. Bæði sveit­ar­fé­lög láta þess getið í umfjöllun um málið að nákvæm útfærsla Borg­ar­lín­unnar og breyt­ing­anna á götu­mynd­inni verði …

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár