Bókmenntahátíðin Iceland Noir hressir upp á skammdegið

Bók­mennta­há­tíðin Iceland Noir hefst þann 20. nóv­em­ber og fjöldi erlendra og íslenskra höf­unda stígur á svið. Meðal erlendra gesta verða að þessu sinni Harlan Coben, David Walliams, Ann Cleeves, Sara Blædel, Marc Levy og Anthony Horowitz.

Bókmenntahátíðin Iceland Noir hressir upp á skammdegið
Yrsa Sig­urð­ar­dóttir stofn­aði bók­mennta­há­tíð­ina Iceland Noir ásamt rit­höf­und­inum Ragnari Jónasyni.

„Fram undan er virki­lega fjöl­breytt og skemmti­leg Iceland Noir-hátíð,“ segir Yrsa Sig­urð­ar­dóttiri­rit­höf­undur, en hún er stofn­andi Iceland Noir ásamt Ragnari Jónassyni. Hafa þau ann­ast skipu­lagn­ingu hátíð­ar­innar frá upp­hafi en frá árinu 2022 hafa rit­höf­und­arnir Óskar Guð­munds­son og Sverrir Norland einnig komið að þeirri vinnu, sem og Lilja Sig­urð­ar­dóttir á upp­hafs­árum hennar. Meðal erlendra gesta verða að þessu sinni Harlan Coben, David Walliams, Ann Cleeves, Sara Blædel, Marc Levy og Anthony Horowitz. Full­trúar leik­ins menn­ing­ar­efnis eru meðal ann­ars leik­stjór­inn Robert Zemeckis og leik­konan Brenda Blethyn.

Bók­mennta­há­tíðin Iceland Noir var haldin í fyrsta sinn fyrir rúmum ára­tug. Til­gangur með stofnun hennar ku vera sá að gefa íslenskum les­endum tæki­færi til að hitta erlenda höf­unda og auðga íslenskt menn­ing­ar­líf á þeim árs­tíma sem skamm­degið er farið að segja hressi­lega til sín.

Bróðir Díönu prinsessu

Þá segir Yrsa: „Við hlökkum sömu­leiðis til að taka við breska barna­bóka­höf­und­inum Alex Falase-Koya, Deena Mohammed frá Egypta­landi og höf­und­inum og aktí­vist­anum Winnie Li,“ segir Yrsa. „Loks kemur bróðir Díönu prinsessu, Charles Spencer, og ræðir bók sína, A Very Private School, sem hlaut ein­róma lof gagn­rýnenda um allan heim þegar hún kom út.“

Fjöl­margir íslenskir höf­undar koma einnig fram á Iceland Noir 2024; Stefán Máni, Þórdís Gísla­dóttir, Eva Björg Ægis­dóttir, Ragnar Helgi Ólafsson, Hildur Knúts­dóttir, Einar Kárason, Kamilla Ein­ars­dóttir, Júlía Margrét Ein­ars­dóttir, Steinþór Ívarsson, Áslaug Krist­jáns, Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir, Einar Lövdahl og Helga Soffía Ein­ars­dóttir, ásamt leik­ar­anum Ólafi Darra. Samtals er gert ráð fyrir um 80 höf­undum, ljóð­skáldum og full­trúum leik­ins efnis.

Fríviðburðir og lausir miðar

Hátíðin fer að þessu sinni fram dag­ana 20.–23. nóv­em­ber. Að sögn aðstand­enda eru enn örfáir miðar til sölu á Tix.

Vert er að vekja athygli á frí­við­burðum sem fara fram þann 19. nóv­em­ber, ann­ars vegar ljóða­kvöld á Röntgen og svo glæpa­kvöld í Sveina­tungu í Garðabæ.

Ljóða­kvöldið á Röntgen hefst kl. 20 á þriðju­dags­kvöldi. Þá stíga á svið Sverrir Norland, Kristín Ómars­dóttir, Bubbi Morthens, Vala Hauks­dóttir, Ragnar Jónasson, Þórður Sævar Jónsson, Linda Vil­hjálms og Natasha S. Í Sveina­tungu í Garðabæ verður svo Anthony Horowitz í sam­tali við Elizu Reid kl. 19 þann 20. nóv­em­ber en Sara Blædel ræðir við Yrsu klukkan 20.15 sama kvöld. Allir vel­komnir!

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár