„Hann er of langt í burtu frá mér“

„Mér líður mjög vel í hjart­anu. Þau eru glöð á hverjum degi og verða alltaf betri eftir því sem lengri tími líður,“ segir hinn 15 ára gamli Yazan Kaware sem hefur end­ur­heimt fjöl­skyldu sína frá Gaza-svæð­inu. Hann kom hingað til lands með frændum sínum og beið þeirra brott­vísun í des­em­ber síð­ast­liðnum. Henni var afstýrt.

„Hann er of langt í burtu frá mér“
Ungur Yazan er ánægður á Íslandi. Hann saknar þó heima­lands­ins og þess sem fjöl­skyldan hefur misst. Mynd: Golli

Kaware-fjöl­skyldan bjó í sex mán­uði við stríðs­á­stand í Palest­ínu. Öll nema hinn fimmtán ára gamli Yazan sem komst hingað til lands með frændum sínum áður en Ísra­els­her fór að ráð­ast á Gaza-svæðið af fullum krafti eftir inn­rás Hamas í Ísrael 7. októ­ber síð­ast­lið­inn. 

„Það skiptir ekki máli hvað ég segi um Gaza, það er ómögu­legt að lýsa hörm­ung­unum sem hafa átt sér stað þar og eiga sér enn stað,“ segir fjöl­skyldu­fað­ir­inn Asad Kaware sem nú er kom­inn hingað til lands ásamt eig­in­konu sinni og börnum þeirra. Þau komust hingað eftir að Yazan fékk sam­þykkta hæl­is­um­sókn sína í jan­úar síð­ast­liðnum.

Mánuði áður hafði hans og frænda hans beðið brott­vísun en henni var afstýrt. Nú hefur fjöl­skyldan búið hér sam­einuð síðan í apríl. 

Spurður hvernig það sé að hafa end­ur­heimt fjöl­skyldu sína frá Gaza segir Yazan að það sé …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórnmálunum“
ÚttektÞau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórn­mál­unum“

Bæj­ar­stjór­inn Gunnar Axel Axelsson, sem var sjálf­boða­liði á Vest­ur­bakk­anum fyrir nokkrum árum, seg­ist telja að stjórn­mála­menn þori ekki að segja hug sinn allan um mál­efni Palest­ínu af ótta við ásak­anir um gyð­inga­hatur. Alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Magnea Mar­in­ós­dóttir hefur verið kölluð tals­kona Hamas, þegar hún ræðir um ára­tuga­langan aðdrag­and­ann að 7. októ­ber 2023 í fjöl­miðlum. Það kæfi umræð­una.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár