Höfðu ekki séð móður sína í sjö ár

Fyrir tæpu ári síðan lá hinn nú 19 ára gamli Ahmed Radwan á vanút­búnum spít­ala á Gaza-svæð­inu eftir að hafa orðið fyrir lífs­hættu­legum meiðslum í árás Ísra­els­hers. Nú er hann hér á landi, loks­ins með móður sinni sem hann og bræður hans höfðu ekki hitt í sjö ár.

Höfðu ekki séð móður sína í sjö ár
Bræður Ahmed og Mohammed eru brosmildir þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. Þeim líður loks eins og þeir séu öruggir en áhyggjur af vinum og ætt­ingjum á Gaza-svæð­inu krauma undir niðri. Mynd: Golli

Bræð­urnir Mohammed, 14 ára, og Ahmed Radwan, 19 ára, hafa þrátt fyrir ungan aldur séð og upp­lifað hörm­ungar sem fæstir vel full­orðnir geta vart ímyndað sér. Þeir hafa búið hungr­aðir og þyrstir í tjaldi mán­uðum saman og heyrt sprengjur springa allt í kring. Fengið að fara í sturtu í mesta lagi viku­lega. Þeir hafa upp­lifað það að vera aðskildir frá móður sinni í sjö ár.

Samt brosa þeir eins og sólin sem ekki skín á þá þetta þriðju­dags­eft­ir­mið­degi á Íslandi og tala um ofur­venju­lega hluti við blaða­mann: Flens­borg, stærð­fræði, krakk­ana í skól­anum, íþróttir. 

Það er samt ekki nema tæpt ár síðan Ahmed var í lífs­hættu eftir að hafa særst alvar­lega í árás Ísra­els­hers á Gaza. Móðir hans, Faida – sem þegar var komin með vernd hér – biðl­aði þá …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórnmálunum“
ÚttektÞau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórn­mál­unum“

Bæj­ar­stjór­inn Gunnar Axel Axelsson, sem var sjálf­boða­liði á Vest­ur­bakk­anum fyrir nokkrum árum, seg­ist telja að stjórn­mála­menn þori ekki að segja hug sinn allan um mál­efni Palest­ínu af ótta við ásak­anir um gyð­inga­hatur. Alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Magnea Mar­in­ós­dóttir hefur verið kölluð tals­kona Hamas, þegar hún ræðir um ára­tuga­langan aðdrag­and­ann að 7. októ­ber 2023 í fjöl­miðlum. Það kæfi umræð­una.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár