„Hún var í rauninni að hverfa í höndunum á okkur“

Dóttur Maríu Gunn­ars­dóttur hafði liðið illa í um tvö ár þegar hún kom loks út sem trans 15 ára gömul. „Ég er mjög ánægð að hún hafi treyst sér til þess að tala við okkur og hvað hún var hug­rökk,“ segir María, sem vill vekja athygli á því að trans börn standa ekki ein. „Við viljum ekki að það sé verið að meiða þau.“

„Hún var í rauninni að hverfa í höndunum á okkur“
Skjólið María er ánægð með hug­rekki dóttur sinnar sem kom út sem trans 15 ára gömul. Mynd: Golli

María Gunn­ars­dóttir er prest­lærð og starfar sem deild­ar­stjóri á leik­skóla og við sál­gæslu. Hún og eig­in­maður hennar, Björn Vil­hjálms­son, eign­uð­ust barn árið 2000 sem fædd­ist í lík­ama drengs en kom síðar út sem trans stúlka. Barnið óx úr grasi og hafði meðal ann­ars áhuga á tölvu­leikjum og tón­list og það teikn­aði mikið. Svo lék það sér mikið við systur sína og frænku.

Barn Björns og Maríu fór að finna fyrir þung­lyndi 13 ára. „Það var mjög erfitt að fá hana út úr húsi og hún var farin að ein­angra sig mikið og var ekki með neinum vinum. Ég hélt að þetta væri kannski eðli­legur pró­sess þar sem hún var að verða ung­lingur. Við fórum með hana í fimm við­töl til barna­sál­fræð­inga en það kom ekk­ert út úr því nema að þau sögð­ust ekk­ert geta gert fyrir okkur þar sem hún tjáði sig ekki.“

Ein­hverju sinni fóru þau saman …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Börnin okkar

Fann fyrir sterkri þörf fyrir að vernda dóttur sína eftir að hún kom út
ViðtalBörnin okkar

Fann fyrir sterkri þörf fyrir að vernda dóttur sína eftir að hún kom út

Guðrún Karls Helgu­dóttir, biskup Íslands, er tveggja barna móðir en dóttir hennar kom út sem trans 14 ára gömul. „Fyrstu til­finn­inga­legu við­brögðin voru svo­lítið eins og það hefði verið sparkað harka­lega í mag­ann á mér því ég fór strax að hugsa um hvað henni hlyti að hafa liðið illa und­an­farið. En um leið fann ég fyrir svo mik­illi ást; svo sterkri þörf fyrir að vernda hana,“ segir Guðrún.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár