Hugmyndir að mögulegum aðgerðum fyrirferðarmiklar

Alls eru 150 aðgerðir í uppfærðri aðgerða­áætlun í loftslags­málum. Lítill hluti þeirra eru beinar loftslags­aðgerðir sem búið er að meta með tilliti til samdráttar fyrir árið 2030, en alls eru 66 á hugmynda­stigi. Formaður Náttúru­verndar­samtaka Íslands segir svokallað sjálfstætt markmið ríkis­stjórnarinnar um samdrátt í losun marklaust bull og að atvinnu­lífið hafi gefið loftslags­ráðherranum Guðlaugi Þór Þórðar­syni langt nef með viðbrögðum sínum við áætluninni í sumar.

Umhverfisráðherrar
Umhverf­is­ráð­herrar Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra tók við ráðu­neyt­inu af Guðmundi Inga Guð­brands­syni í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Uppfærð aðgerða­áætlun ríkis­stjórnarinnar í loftslags­málum var kynnt af fjórum ráðherrum skömmu fyrir þinglok í upphafi sumars. Hún er enn til umsagnar í samráðs­gátt stjórn­valda og verður það fram eftir september­mánuði.

Til þessa hafa viðbrögðin verið lítil og einungis þrettán umsagnir frá einstaklingum borist í samráðs­ferlinu sem staðið hefur yfir í sumar. Nær allar snúast þær um eitt einstakt atriði sem vakti athygli eftir að aðgerða­áætlunin var kynnt, að flýta banni við nýskráningu bíla sem ganga fyrir jarðefna­eldsneyti fram til ársins 2028, í stað þess að halda sig við árið 2030. Aðgerðin fæli einnig í sér að skráningar­bannið yrði útvíkkað og ætti einnig við um bíla sem ganga fyrir bæði jarðefna­eldsneyti og raforku.

Vert er að taka fram að Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslags­mála­ráðherra sagði á þingi eftir kynningu áætlunarinnar að það væri misskilningur að búið væri að ákveða að flýta nýskráningar­banninu, aðgerðin fæli einungis í …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár