Vill vera leiðinlegasta manneskjan í lífi barna sinna

For­eldrar bera ábyrgð á upp­eldi barna sinna. Það er ekki allt for­eldr­unum að kenna, en það er á þeirra ábyrgð að leysa úr flækjum og leita aðstoðar þegar þess þarf. Stundum þarf að vera leið­in­legt for­eldri. En það getur líka verið skemmti­legt.

Vill vera leiðinlegasta manneskjan í lífi barna sinna
Sam­skipti for­eldra og barna Ársæll Már Arn­ars­son hefur rann­sakað heilsu og líðan barna og ung­linga í 18 ár. Hann segir það ákveðna list að vera leið­in­legt for­eldri en það skilar sér, ekki síst þegar kemur að því að mynda tengsl. Mynd: Golli

For­eldra­hlut­verkið er mik­il­væg­asta hlut­verkið sem hver ein­asta mann­eskja tekur að sér á lífs­leið­inni, að mati Ársæls Más Arn­ars­sonar, pró­fess­ors við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands. Það er þó ekki tekið út með sæld­inni að vera for­eldri og það er engin ein upp­skrift að far­sælu for­eldra­hlut­verki. Ársæll hefur um ára­bil átt sam­tal við for­eldra um hvernig sé hægt að nálg­ast for­eldra­hlut­verkið og fyrir honum er það ákveðið list­form að vera leið­in­legt for­eldri. Nú geta allir for­eldrar lært list­ina að vera leið­in­legt for­eldri á nám­skeiði sem hann kennir hjá End­ur­menntun Háskóla Íslands.

For­eldrar bera ábyrgð á upp­eldi barna sinna. Það finnst Ársæli eiga til að gleym­ast í umræð­unni. „Það er svo­lítið látið liggja á milli hluta að þetta er veru­leik­inn. Ég ber ábyrgð á mínum börnum og því að þeim farn­ist eins vel og mögu­legt er. Það kemur að því að við sleppum tak­inu á börn­unum okkar, og það ger­ist fyrr heldur en …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár