„Ég sé enga von í landinu mínu“

Manuel Alej­andro Palencia er einn af þeim 800 venes­ú­elsku hæl­is­leit­endum sem bíður nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála um hæl­is­um­sókn sína. Manuel kveið nið­ur­stöðum sögu­legra for­seta­kosn­inga í Venes­ú­ela sem voru kunn­gjörðar á mánu­dag: Nicolas Maduro, sem gjarnan hefur verið kall­aður ein­ræð­is­herra, hélt völdum.

„Ég sé enga von í landinu mínu“
Hjón Manuel og Marianny hafa búið hér í 16 mán­uði. Myndin er sam­sett en í bak­grunni má sjá mynd frá Venes­ú­ela dag­inn eftir kosn­ing­arnar.

Aðfara­nótt mánu­dags biðu venes­ú­elskir rík­is­borg­arar um allan heim í ofvæni eftir nið­ur­stöðum for­seta­kosn­ing­anna í land­inu. Manuel Alej­andro Palencia – lög­maður, ensku­kenn­ari og hæl­is­leit­andi á Íslandi – var einn af þeim sem kveið því sem koma skyldi. 

Svo kom það.

„Við byrjum í Venes­ú­ela þar sem lands­kjör­stjórn segir Nicolas Maduro hafa verið end­ur­kjör­inn fyrir sitt þriðja tíma­bil sem for­seti lands­ins,“ sagði frétta­þulur BBC í fréttum sjón­varps­stöðv­ar­innar á mánu­dags­morgun.

Manuel var ekki hissa, jafn­vel þó að stjórn­ar­and­staðan – sem hefur hafnað því að Maduro hafi raun­veru­lega unnið kosn­ing­arnar og sakað hann um kosn­inga­svik – í land­inu væri sam­einaðri en aldrei fyrr. 

„Í Venes­ú­ela segjum við: Þú hendir ekki út ein­ræð­is­herra með atkvæða­greiðslu, það virkar ekki þannig,“ segir Manuel. Hann var sjálfur fyrir löngu búinn að missa trúna á land­inu sínu. 

Langvar­andi óða­verð­bólga í Venes­ú­ela gerir það að verkum að stór hluti þjóð­ar­innar á ekki fyrir …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
Hafa ekki fengið lendingarleyfi: „Bíðum enn með tilbúnar ferðatöskur”
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Hafa ekki fengið lend­ing­ar­leyfi: „Bíðum enn með til­búnar ferða­töskur”

Flugvél sem átti að flytja venes­ú­elska hæl­is­leit­endur úr landi í lok febr­úar er enn ekki farin af stað. Sumir hæl­is­leit­end­anna voru þegar búnir að pakka í töskur og til­búnir að yfir­gefa landið þegar í ljós kom að Útlend­inga­stofnun hefði ekki fengið lend­ing­ar­leyfi. Þeir lifa nú í bið­stöðu en í Venes­ú­ela gæti beðið þeirra sól­ar­hrings varð­hald.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár