Samviska Evrópu: Áhrif mannréttindadómstólsins á Íslandi í 30 ár

Þrjátíu ár eru liðin frá lög­fest­ingu Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu á Íslandi. Áhrif sátt­mál­ans á dag­legt líf borg­ar­anna eru mikil og þeirra gætir víða; á lög­reglu­stöðvum, í dóms­kerf­inu, á rit­stjórnum fjöl­miðla, á vinnu­stöðum og landa­mær­unum. Áhrifin eru meðal ann­ars til komin vegna dóma sem Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur kveðið upp í íslenskum málum síð­ustu ára­tugi.

Samviska Evrópu: Áhrif mannréttindadómstólsins á Íslandi í 30 ár
Í mál við ríkið Yrsa Sig­urð­ar­dóttir var sak­laus færð í gæslu­varð­hald og fékk að lokum afsök­un­ar­beiðni frá rík­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Baugs­málið, Borg­ar­nes­málið, Vega­smálið, Lands­dóms­málið og Lands­rétt­ar­málið; öll eiga þessi þekktu frétta­mál það sam­eig­in­legt að hafa komið til kasta Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu (MDE). Þangað hafa mörg hund­ruð Íslend­inga leitað með klögu­mál af fjöl­breyttum toga sem varða allt frá efna­hags­hruni og van­hæfum og illa skip­uðum dóm­urum að nekt­ar­dans­stöðum og óspektum á almanna­færi.

Kærendur eru af öllum þjóð­fé­lags­stigum; stjórn­mála­menn og áhrifa­valdar, fíkni­efna­neyt­endur og áhrifa­fólk í efna­hags­líf­inu, lög­menn og leigu­bíl­stjórar. Meðal þekktra kærenda til dóm­stóls­ins eru Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Kjartan Gunn­ars­son, flokks­bróðir hans, rit­stjór­inn Reynir Trausta­son og blaða­kon­urnar Björk Eiðs­dóttir og Erla Hlyns­dóttir, Yrsa Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur og Egill Ein­ars­son, sem ekki má upp­nefna „rap­ist bast­ard“ í kommenta­kerfum eftir dóm MDE. 

„Aðild Íslands að Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu hefur haft gríð­ar­leg áhrif á alla rétt­ar­fram­kvæmd á Íslandi og þar með aukið öryggi borg­ar­anna umtals­vert,“ segir Sigurður Örn Hilm­ars­son, lög­maður á Rétti og fyrr­ver­andi for­maður Lög­manna­fé­lags Íslands. „Sátt­mál­inn hefur áhrif á líf borg­ar­anna á …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár