Fjórtán fermetra herbergi í Keflavík á 160 þúsund

Fjórtán fer­metra her­bergi í lít­illi íbúð sem stað­sett er við gamla bæinn í Keflavík er aug­lýst til leigu fyrir 160 þús­und á mán­uði. Aug­lýs­ingin var birt á MyIgloo sem er orðið stærsta mark­aðs­torg leigu­sala og leigj­enda á Íslandi. Minna her­bergi í sömu íbúð er aug­lýst til leigu fyrir 125 þús­und á mán­uði.

Fjórtán fermetra herbergi í Keflavík á 160 þúsund
Rúmar ell­efu þús­und krónur á fer­met­er­inn Fjórtán fer­metra her­bergi í lít­illi íbúð í Keflavík aug­lýst til leigu fyrir 160 þús­und krónur á mark­aði. Mikil eft­ir­spurn og tak­markað fram­boð á leigu­hús­næði hefur leitt til hækk­unar í leigu­verði umfram annað verð­lag.

Á vef­síð­unni MyIgloo.is, sem er eitt stærsta mark­aðs­torg leigu­sala og leigu­taka hér landi, er fjórtán fer­metra svefn­her­bergi í lít­illi íbúð á jarð­hæð í miðbæ Kefla­víkur aug­lýst til leigu fyrir 160 þús­und krónur á mán­uði. 

Í aug­lýs­ing­unni kemur fram að um sé að ræða annað her­bergið af tveimur sem leigð eru út í 50 fer­metra íbúð. Her­berg­inu fylgir aðgengi að „rúm­góðu bað­her­bergi ásamt eld­hús­að­stöðu með leigj­anda hins her­berg­is­ins“. Smærra her­bergið er aug­lýst til leigu fyrir 125 þús­und krónur á mán­uði.  

Tekið er fram að húsið sé vel stað­sett í miðbæ Kefla­víkur þar sem stutt er í alla helstu þjón­ustu á borð við mat­vöru­búðir, apó­tek, versl­anir og veit­inga­staði. Eins er mögu­leiki á að leigja alla íbúð­ina, en ekki er til­greint hvert mán­að­ar­legt leigu­verð sé fyrir íbúð­ina eins og hún leggur sig. 

Rúmlega ellefu þúsund krónur á fermetra

Sé …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár