Samfylkingin sat hjá í útlendingafrumvarpi: „Aumingjalegustu atkvæðin“

Allir við­staddir þing­menn Sam­fylk­ingar og Við­reisnar sátu hjá við sam­þykkt umdeilds útlend­inga­frum­varps í dag. Einungis Píratar greiddu atkvæði gegn lög­unum. Afstöðu­leysi Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar er á X kölluð aum­ingja­skapur.

Samfylkingin sat hjá í útlendingafrumvarpi: „Aumingjalegustu atkvæðin“
Kristrún Frosta­dóttir Er for­maður Sam­fylk­ing­ar­in­anr og hefur slegið nýjan og harð­ari tón í umræðu innan flokks­ins um útlend­inga­mál. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ný umdeild útlend­inga­lög voru sam­þykkt með tæp­lega 70% meiri­hluta á Alþingi í dag. Einu þing­menn­irnir sem kusu gegn lög­unum eru úr þing­flokki Pírata. 

Þing­flokkar Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar sátu hjá í atkvæða­greiðsl­unni og tóku þannig ekki afstöðu til frum­varps­ins. Almenn­ingur, bæði á hægri og vinstri væng stjórn­mál­anna, hefur sér­stak­lega gagn­rýnt Sam­fylk­ing­una fyrir afstöðu­leysið. 

„Það er svo mik­ill aum­ingja­skapur að sitja hjá í atkvæða­greiðslu um frum­varp til breyt­ingar á útlend­inga­lögum (sem fjöl­mörg mann­úð­ar­sam­tök hafa for­dæmt mjög harka­lega). Píratar virð­ast einir með bein í nef­inu á þessu bless­aða Alþingi,“ skrifar Kolbrún Birna Bachmann á X.

Með lög­unum verða skil­yrði …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KH
    Kristinn Halldórsson skrifaði
    Ég er nú einn af þeim sem fetti upp á trýnið með þennan "Sitja hjá takka" á alþingi. Ég skil samt þessa afstöðu í þessu máli, þar sem þingmenn vilja ekki stoppa af mál sem varða samfélagið. Ég held að ég megi tala fyrir samfylkingarmönnum sem koma úr rót Alþýðuflokksins, til þingmanna flokksins, vinsamlega sendið inn skoðanagrein um ykkar afstöðu til þessa frumvarps svo okkar fólk skilji málið.
    Ps. Almennt er okkar fólk ekki áskrifandi að Morgunblaðinu. :)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár