Að drukkna í fatafjallinu

Evrópu­löndin, og mörg önnur lönd, eru bókstaf­lega að drukkna í fata­fjallinu sem stækkar og stækkar. Íbúar Evrópu losa sig árlega við fjórar milljónir tonna af fatnaði og skóm. Nú vill Evrópu­sambandið auka ábyrgð fram­leiðenda í því skyni að draga úr fram­leiðslunni.

Framleiðsla fatafjallsins
Fram­leiðsla fata­fjalls­ins Starfs­maður í fata­verk­smiðju sem sér meðal ann­ars um fram­leiðslu fyrir kín­verska tískuris­ann Shein. Mynd: AFP
Hlustaðu 06:12 · Eitt og annað

Flestir kannast líklega við lag Spilverks þjóðanna um Sirkus Geira Smart þar sem segir að þér finnist þú þurfa jakka og tvenna sigtúnsskó. Nýju fötin keisarans frá Karnabæ og co. Fötin skapa manninn eða viltu vera púkó? Nei, ekki ég er svarið.

Ýmislegt hefur breyst frá árinu 1977 þegar þetta lag Spil­verksins kom út á plötu, Sigtún ekki lengur til og sama gildir um Karnabæ. Og núna dugir ekki að eiga jakka og tvenna sigtúnsskó. Á Sigtúns- og Karnabæjarárum Spil­verksins var orðið neyslu­þjóðfélag nýkomið til sögunnar. Sú nýtni sem áður var talin dyggð var óðum að hverfa, ekki þótti lengur dyggð að stoppa í sokka, setja olnboga­bætur á jakka og peysur og bæta götóttar buxur. Kaupa nýtt var kjörorðið og á næstu áratugum samfara bættum efnahag fjölgaði flíkunum í fata­skápum heimil­anna, jafnt á Íslandi og í mörgum öðrum löndum. Þegar allt var orðið fullt var bara bætt við nýjum skáp eða troðið betur í hillur og skúffur. Lífskjör almennings fóru batnandi og jafnframt jókst vélvæðing í fata­iðnaði, það þýddi lægra verð og aukið úrval.

Fleiri og fleiri föt

Árið 2016 gerðu bresku umhverfis­samtökin WRAP könnun sem vakti mikla athygli. Í þessari könnun kom fram að meira en þriðjungur allra flíka í fata­skápunum hafði ekki verið verið notaður í heilt ár og margar reyndar aldrei. Höfðu einfald­lega verið settar inn í skáp þegar komið var heim úr búðinni og síðan ekki söguna meir. Ýttust smám saman aftar og aftar í skápinn. Í þessari könnun kom líka fram að margir höfðu stein­gleymt mörgum flíkum í skápunum og rámaði ekki einu sinni í að hafa keypt þær.

Kaupa nýtt af því allt er óhreint

16
kíló
Magn af fötum sem hver Dani kaupir árlega

Um svipað leyti og áðurnefnd könnun var gerð í Bretlandi  (2016) var birt könnun sem gerð var í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Þar kom fram að

hver Dani keypti um það bil 16 kíló af fötum á hverju ári, það þýðir að Danir keyptu árlega samtals um 89 þúsund tonn, Norðmenn og Svíar keyptu ekki alveg jafn mikið. Sérstaka athygli vakti, þegar spurt var um ástæður fata­kaupanna, að stór hópur á aldrinum 18 til 29 ára hafði margoft á árinu keypt föt af því viðkomandi taldi sig ekki eiga neitt hreint til að fara í. Margir sögðust oft kaupa föt til að nota aðeins einu sinni.

89.000
tonn
Magn af fötum sem Danir kaupa árlega

Meira en tvöfaldast frá síðustu aldamótum

Fata­fram­leiðslan eykst sífellt og hefur að magni til meira en tvöfaldast frá síðustu aldmótum. Bættur efnahagur fjölmennra þjóða, til dæmis Kínverja og Indverja veldur þar miklu. Þessi síaukna fram­leiðsla hefur mikil áhrif á umhverfið, sem dæmi má nefna að til að framleiða einn stutterma bol þarf 1500 lítra af vatni.

Fjórar milljónir tonna árlega

Íbúar Evrópu­landanna losa sig árlega við um það bil fjórar milljónir tonna af fatnaði og skótaui. Hluti þessa fata­fjalls gengur í endurnýjun lífdaganna á nytja­mörkuðum eða notað og nýtt fata­verslunum. Um árabil tóku Rauði Krossinn og fleiri hjálpar­samtök á móti fatnaði og sendu til Afríku. Á allra síðustu árum hafa sum Afríku­lönd afþakkað slíkar sendingar, þau þurfi ekki á þeim að halda, magnið sé alltof mikið. Nokkur hluti þess fatnaðar sem Evrópu­búar losa sig við er endur­nýttur, t.d. í fatnað, en stór hluti endar í sorp­brennslum eða í urðun. Frétta­maður danska útvarpsins, DR, var nýlega á ferð í Chile. Chile hefur á undan­förnum árum tekið á móti gríðar­legu magni fatnaðar, gegn greiðslu, frá ýmsum löndum. Danski frétta­maðurinn var dolfallinn yfir því sem hann sá, hluti Atacama eyði­merkurinnar er þakinn haugum af notuðum fatnaði. Þessi ,,fata­eyðimörk“  er svo stór að hún sést greini­lega á gervitungla­myndum. 

Evrópusambandið vill láta fataframleiðendur borga

Þótt margir hafi lýst áhyggjum yfir síaukinni fata­framleiðslu hefur það litlu breytt. Fram­leiðendur keppast við að koma sífellt með eitthvað nýtt á markaðinn og auglýsa að ,,þetta verðir þú að eignast“. Svo kemur eitthvað enn nýrra á morgun sem þú verður að eignast (enginn vill jú vera púkó sagði Spil­verkið) og þannig stækkar fata­fjallið dag frá degi.

Innan Evrópu­sambandsins er nú unnið að laga­setningu þar sem fata­fram­leiðendum skal gert að greiða gjald sem tekur mið af hversu mikil umhverfis­áhrif fram­leiðsla þeirra hefur. Tekjunum af gjaldinu á að verja til að endurbæta flokkun á notuðum fatnaði og betri og meiri endur­nýtingar. Öll nánari útfærsla á gjaldinu er enn í undir­búningi. Nú leggst aukin ábyrgð á herðar fram­leiðenda að vanda efnisval og jafnframt að vanda fram­leiðsluna með það fyrir augum að flíkurnar endist lengur. Löggjöfin mun einnig ná til allrar vefnaðar­vöru, rúmfatnaðar, handklæða, glugga­tjalda, húsgagna­áklæða o.s.frv.

Verð á fatnaði mun hækka

Ef lögin sem nú eru í undir­búningi innan ESB verða að veruleika er líklegt að verð á fatnaði og vefnaðar­vöru muni hækka. Marie Busck talsmaður danskra fyrir­tækja í fata­iðnaði telur það ekki sérstakt áhyggju­efni þótt verð hækki eitthvað. Föt séu tiltölu­lega ódýr og almenningur verði sífellt betur meðvitaður um að auðlindir jarðar séu ekki óþrjótandi.

Það kemur í hlut nýkjörins Evrópu­þings að fjalla um hina nýju löggjöf og á þessari stundu ekkert hægt að segja til um hvenær hún tæki gildi.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Tískan er harður húsbóndi og mikill sóunarhvati.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eitt og annað

8 mín.
Eitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski herinn hefur árum saman mátt búa við niður­skurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mannskap. Slæmur aðbúnaður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækjast eftir hermennsk­unni. Nýlega varð danski flotinn að aflýsa leiðangri til Grænlands vegna þess að ekki var hægt að manna leiðangurs­skipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flotans og geta verið vatn á myllu Bandaríkja­forseta.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár