Söluráðgjafar fengu þóknun fyrir sölu á Íslandsbanka þrátt fyrir að hafa brotið lög

Banka­sýsla rík­is­ins ætlar ekki að taka ákvörðun um hvort hún greiði sölu­ráð­gjöfum val­kvæða þóknun fyrir aðkomu sína að sölu á hlut í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur árum fyrr en athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á þætti þeirra í sölu­ferl­inu liggur fyrir. Eft­ir­litið hefur þegar lokið athugun á tveimur ráð­gjöfum og komst að þeirri nið­ur­stöðu að báðir hefðu brotið gegn lögum.

Söluráðgjafar fengu þóknun fyrir sölu á Íslandsbanka þrátt fyrir að hafa brotið lög
For­stjór­inn Jón Gunnar Jónsson stýrir Banka­sýslu rík­is­ins.

Kostn­aður vegna sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenskra rík­is­ins í Íslands­banka, sem fram fór í mars 2022, stendur nú í 439,5 millj­ónum króna. Hann gæti þó hækkað, velji Banka­sýsla rík­is­ins að greiða út frek­ari val­kvæðar þókn­anir til sölu­ráð­gjafa útboðs­ins. Engar ákvarð­anir hafa verið teknar um greiðslu slíkra þókn­ana og þær verða ekki teknar fyrr en Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands lýkur athugun sinni á sölu­ráð­gjöf­unum. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um kostnað við útboðið. 

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur þegar lokið athugun sinni á hluta sölu­ráð­gjaf­anna og birt nið­ur­stöður þeirra. Þar ber fyrst að nefna Íslands­banka, sem eft­ir­litið komst að því að hefði framið alvar­leg, kerf­is­læg og marg­þætt lög­brot í tengslum við söl­una. Sú nið­ur­staða kost­aði Birnu Ein­ars­dóttur, sem hafði verið banka­stjóri Íslands­banka frá …

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    "Þá munu reglur um sérstakt hæfi, þær sem Bjarni Benediktsson braut gegn, ekki gilda um næstu Íslandsbankasölu."

    Er ég að skilja þetta rétt að lögunum varð breytt þannig að Bjarbi megi selja fjölskyldu sinni hlut í bankanum næst?
    1
  • Gamla sagan úr Hruninu: svindlaðu og þú færð greitt, svindlaðu meira og þú færð greitt meira.
    2
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það er reyndar furðulegt að fólkið sem stjórnaði störfum bankans er ekki sektað
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár