Eldgos hafið og þrír neita að yfirgefa Grindavík

Eldgos er hafið nærri Sund­hnúkum norðan við Grinda­vík. Neyð­ar­stigi hefur verið lýst yfir og Grinda­vík rýmd. „Kviku­gang­ur­inn er að fær­ast nær Grinda­vík­urbæ,“ segir í færslu almanna­varna.

Eldgos hófst nærri Sund­hnúkum norðan við Grinda­vík rétt fyrir klukkan eitt eftir hádegi í dag. Gosið sést á vef­mynda­véĺum og virð­ast vera stað­sett norð­austan við Sýl­inga­fell. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands.

Rýming hófst í Grinda­vík klukkan rúm­lega ell­efu í morgun eftir að Veð­ur­stofan spáði kviku­hlaupi. Það hófst svo skömmu síðar og í kjöl­farið fór gosið af stað. 

„Kviku­gang­ur­inn er að fær­ast nær Grinda­vík­urbæ og við­bragðs­að­ilar og aðrir sem eru í Grinda­vík eru beðnir um að vera til­búnir að yfir­gefa bæinn á mjög skömmum tíma,“ segir í færslu almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra um stöð­una.  

Lögreglan hefur ekki beitt valdi

Bláa lónið og orku­verið í Svarts­engi voru sömu­leiðis rýmd fyrir hádegi í dag og gekk það vel, að sögn lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum. 

„Við­bragðs­að­ilar eru við störf í Grinda­vík.  Þá dvelja enn þrír íbúar í Grinda­vík þrátt fyrir til­mæli við­bragðs­að­ila um að koma sér út úr bænum.  Slík við­brögð eru ekki til eft­ir­breytni.  Ekki hefur komið til þess að lög­regla hafi beitt valdi í þessum aðgerðum,“ segir í til­kynn­ingu frá lög­reglu­stjór­anum, Úlfari Lúð­víks­syni. 

Golli
Golli

Flug­lita­kóði hefur verið færður á rautt og neyð­ar­stigi verið lýst yfir.

„Frétta­mönnum og blaða­mönnum hefur verið hleypt nærri eld­stöðv­unum í fylgd við­brags­að­ila,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Úlfari.  

„Ham­fara­svæðið er að öðru leyti lokað öðrum en við­bragðs­að­ilum.  Lok­un­ar­póstur er við gatna­mót Grinda­vík­ur­vegar og Reykja­nes­brautar og sem fyrr á Nesvegi og Suð­ur­strand­ar­vegi.“

Nokkur gangur er í gos­inu, eins og sjá má á vef­mynda­vél Vísis. 

Eldgosið er það sjötta sem hefur orðið á Reykja­nesskag­anum á tæpu ári. Jarð­hrær­ing­arnar og gosin á svæð­inu hafa haft veru­leg áhrif á Grind­vík­inga sem hafa ítrekað þurft að yfir­gefa heim­ili sín.

Fréttin hefur verið upp­færð

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjaneseldar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár