Búið að ráða nýjan mann í starfið hjá MAST eftir innanhúsátök

Mat­væla­stofnun hefur ákveðið að Egill Stein­gríms­son dýra­læknir verði nýr sviðs­stjóri yfir meðal ann­ars lax­eldi hjá stofn­un­inni. Átök urðu inn­an­húss hjá stofn­un­inni eftir að Þor­leifur Ágústs­son var ráð­inn í starfið en hann hafði meðal ann­ars skrifað greinar þar sem hann lýsti yfir stuðn­ingi við sjó­kvía­eldi sem atvinnu­grein.

Búið að ráða nýjan mann í starfið hjá MAST eftir innanhúsátök
Næsti umsækj­andi ráð­inn Mat­væla­stofnun hefur ráðið Egil Stein­gríms­son dýra­lækni í starf sviðs­stjóra sam­hæf­ingar hjá stofn­un­inni Inn­an­hús­deilur komu upp eftir að Þor­leifur Ágústs­son hafði verið rá'ðinn í starfið nú í apríl. Hrönn Jör­unds­dóttir er for­stjóri MAST. Mynd: MAST

Mat­væla­stofnun (MAST)hefur ráðið dýra­lækn­inn Egill Stein­gríms­son sem sviðs­stjóra til stofn­un­ar­innar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá MAST. Þetta ger­ist eftir að inn­a­húsá­tök komu upp um annan umsækj­anda, Þorleif Ágústs­son, sem greint hafði verið frá að fengið starfið.  Sviðs­stjóra­starfið felur meðal ann­ars í sér stjórnun á sviði lax­eldis í sjó­kvíum hér á landi.

Þegar til­kynnt var um ráðn­ingu Þorleifs á innri vef starfs­manna MAST sköp­uð­ust umræður um skrif hans um lax­eldi og vinnu ráð­gjafa­fyr­ir­tækis sem hann vann hjá fyrir sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin. Heim­ildin greindi frá þessum hrær­ingum innan MAST nú apríl. 

Þor­leifur sagði þá við Heim­ild­ina: „Umræðan verður að vera á þeim nótum að menn geti talað saman. Hvort sem þeir eru stang­veiði­menn eða ekki. [...] Menn spyrja mig? Ertu fylgj­andi eða á móti fisk­eldi? Ég er fylgj­andi því að hægt sé að gera hluti innan gild­andi laga og reglna. [...] Ég vinn við allan and­skot­ann en nið­ur­staðan verður að vera alltaf vís­inda­leg og ég er algjör­lega óháður í því. [...] Ég er fag­maður og fræði­maður og er ekki að leggja fólki orð í munn hvað því á að finn­ast. Ég er ekki frekar fylgj­andi lax­eldi frekar en ein­hverju öðru heldur vil ég bara að nátt­úran sé nýtt með réttum og það er gríð­ar­leg ábyrgð sem fylgir því."

„Hann hefur dregið umsókn sína til baka“
Hrönn Jör­unds­dóttir,
for­stjóri MAST

„Leiðindamál" sagði forstjóri MAST

Í kjöl­farið gerð­ist það að Þor­leifur dró umsókn sína um starfið til baka og MAST hóf ráðn­ing­ar­ferlið aftur og réði svo þann umsækj­anda sem var í öðru sæti á eftir honum þegar Þor­leifur var ráð­inn. Egill hafði sagt við Heim­ild­ina að hann væri „von­svik­inn" með ákvörðun MAST og Hrönn Jör­unds­dóttir sagði við blaðið að um væri að ræða „leið­inda­mál fyrir alla". 

Ráðning Þorleifs vakti meðal ann­ars athygli innan MAST vegna þess að hann hefur unnið fyrir fyr­ir­tæki, Rorum, sem starfar meðal ann­ars fyrir lax­eld­is­fyr­ir­tækin í land­inu.  Þetta fyr­ir­tæki starfar til dæmis fyrir lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish á Ísafirði og sendi Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun álit á máli sem varðar lax­eldi fyr­ir­tæk­is­ins við Sandeyri í Ísa­fjarð­ar­djúpi.

Hrönn sagði við Heim­ild­ina eftir að Þor­leifur hafði hætt við að þiggja starfið: „Ég hef ekki náð að setj­ast niður með minni yfir­stjórn til að meta hver næstu skref eru. En við munum þurfa að finna annan í starfið. Þetta er bara í ferli. [...] Þetta er að mínu mati bara inn­an­hús­mál. Þetta er búið að vera leið­inda­mál fyrir alla. Sér­stak­lega þegar verið er að ræða svona mál opin­ber­lega sem leiddi til þess að þetta endar svona.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.
Umhverfistofnun telur bæði ótímabundinn kvóta og veðsetningu hans umdeilanlegar breytingar
FréttirLaxeldi

Umhverfi­stofnun telur bæði ótíma­bund­inn kvóta og veð­setn­ingu hans umdeil­an­legar breyt­ingar

Rík­is­stofn­unin Umhverf­is­stofnun gerir athuga­semdir við tíma­lengd rekstr­ar­leyfa í sjó­kvía­eldi hér á landi. Nu þegar hafa borist 54 umsagnir við frum­varpið um lagar­eldi eftir að það var lagt fram á Alþingi í lok apríl. Frum­varpið er afar umdeilt og hefur umræða um það verið hluti af kosn­inga­bar­átt­unni til emb­ættis for­seta Íslands.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár