Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
Íbúa­fundir Heidel­berg Þýska sem­ents­fyr­ir­tækið Heidel­berg, sem Þor­steinn Víglunds­son er tals­maður fyrir hér á landi, hefur haldið nokkra íbúa­fundi um möl­un­ar­verk­smiðj­una í Þor­láks­höfn. Haf­rann­sókn­ar­stofnun er gagn­rýnin á fyr­ir­hug­aða efn­is­töku Heidel­berg af hafs­botni.

Haf­rann­sókn­ar­stofnun segir að „for­dæma­laus fram­kvæmd“ þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg um stór­fellda efn­is­töku af hafs­botni við Land­eyjar geti haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu. Stofn­unin er gagn­rýnin á fram­kvæmd­ina af ýmsum ástæðum. Hún segir um áhrifin á nytja­stofna Íslend­inga í sjáv­ar­út­vegi, til dæmis  þorsk og upp­sjáv­ar­fiska eins og loðnu og síld. „Innan fyr­ir­hug­aðra efn­is­töku­svæða við Land­eyjar eru hrygn­ing­ar­stöðvar og upp­eld­is­svæði nytja­stofna. [...] Eins og fram hefur komið getur efn­istaka af hafs­botni á þessu svæði raskað mik­il­vægum búsvæðum, upp­eld­is­svæðum og hrygn­ing­ar­svæðum margra helstu nytja­fiska Íslend­inga. Þegar efnið af hafs­botn­inum er fjar­lægt fara hrogn, seiði, fiskar og önnur dýr með sand­inum í dælu­skipið.“ 

Þetta kemur fram í gagn­rýnni umsögn Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku Heidel­berg á svæð­inu sem skilað var til Skipu­lags­stofn­unar þann 17. maí síð­ast­lið­inn.  Um verk­efnið segir almennt séð í umsögn­inni: „Um er að ræða for­dæma­lausa fram­kvæmd m.t.t. umfangs á efn­is­námi hér við land.“

„Það er því …
Kjósa
78
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Það er misskilningur hjá blaðamanni að fyrirhuguð efnistaka sé úti fyrir Þorlákshöfn. Það er ekki rétt. Dæla á efninu upp sitthvoru megin við Landeyjarhöfn. Það er mikilvægt að leiðrétta þessa missögn.
    -3
    • ÆS
      Ævar Sigdórsson skrifaði
      Ert þú á launum við að leiðrétta " missagnir"
      5
    • GS
      Gísli Sveinsson skrifaði
      Skriftir ekki máli þar sem að hrygningar stöðvar eru við alla suðurströndina,þá er þetta galin framkvæmd.
      6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár