Á hraða snigilsins

Hægagangur og umferðar­tafir kosta Dani árlega fjármuni sem svara til 620 milljarða íslenskra króna. Umferðin á vegum landsins hefur nær þrefaldast á tiltölu­lega fáum árum og útlit fyrir að hún aukist enn frekar á næstu árum. Vega­kerfið ræður ekki við aukninguna.

Þrengsli
Þrengsli Dönsk stjórn­völd hafa um ára­bil haft á stefnu­skrá sinni að draga úr bíla­um­ferð í land­inu. Það hefur meðal ann­ars verið gert með því að leggja á ný gjöld, sem oft hefur verið mót­mælt harð­lega af þeim sem gjöldin leggj­ast á. Mynd: AFP
Hlustaðu 05:55 · Eitt og annað

Margir kannast við lagið um manninn sem situr í búri úr gleri og stáli, bíður á rauðu ljósi og hlustar á útvarpið. Enn fleiri geta samsamað sig manninum sem segir söguna meðan regnið fellur á rúðuna og þótt lagið sé íslenskt er lýsingin á aðstæðunum síður en svo séríslensk.

Fyrir skömmu birti danska vegamála­stjórnin tölulegt yfirlit um bíla­umferðina í Danmörku á árinu 2022 en tölur síðasta árs liggja enn ekki fyrir, nema að takmörkuðu leyti.

Í Danmörku eru 2,8 milljónir bíla, um það bil 475 bílar á hverja 1 þúsund íbúa. Þetta er minna en í mörgum öðrum löndum Evrópu. Ástæðurnar eru meðal annars þær að bílar eru dýrir vegna skatt­lagningar og sömuleiðis eru bifreiða­gjöld há og eldsneyti dýrt. Almennings­samgöngur voru lengi betri en í mörgum öðrum löndum og sömuleiðis eru hjól­reiðar útbreiddar í Danmörku. Tæplega 70 prósent Dana eiga reiðhjól og þótt það hlutfall sé hátt fækkar reiðhjóla­eigendum í landinu. Líklega helst það í hendur við aukna bílaeign en á 35 árum hefur bílum í landinu fjölgað um 38 prósent, sem er langt umfram fjölgun íbúa á sama tímabili. 

Uppbygging vegakerfisins hefur ekki haldið í við fjölgun ökutækja

Dönsk stjórn­völd hafa um árabil haft á stefnu­skrá sinni að draga úr bíla­umferð í landinu. Meðal annars með því að takmarka umferð í bæjum og borgum, fækka bíla­stæðum og fjölga gjald­skyldum stæðum. Og auka hlut járnbrauta­lesta í fólks- og vöru­flutningum á landi. Ástæða þessarar stefnu stjórn­valda er fyrst og fremst vilji til að draga úr losun gróðurhúsa­lofttegunda sem verður sífellt meira vandamál.

„Í Danmörku eru 2,8 millj­ónir bíla, um það bil 475 bílar á hverja 1 þús­und íbúa. Þetta er minna en í mörgum öðrum löndum Evrópu.“

Það er ekki bara útblásturinn úr bílunum sem mengar, rykmengunin frá malbikinu, dekkja­slit og hávaði. Þetta síðastnefnda er vaxandi vandamál og má sem dæmi nefna að meira en 65 prósent íbúa Kaupmanna­hafnar telja sig búa við hávaða­mengun frá umferð.  

Margir ferðast langar vegalengdir til vinnu

Í stærstu borgum og bæjum Danmerkur hefur húsnæðis­verð farið mjög hækkandi á undan­förnum árum og mest er hækkunin í höfuð­borginni, Kaupmanna­höfn. Þar hefur húsnæðis­verð rokið upp og afleiðingarnar eru meðal annars þær að ungt fólk leitar í síauknum mæli til nágranna­sveitar­félaga þótt það sæki vinnu í höfuð­borginni.

Samkvæmt upplýsingum dönsku vegamála­stjórnarinnar þurfa fleiri en 800 þúsund Dana á vinnu­markaði að ferðast meira en 20 kílómetra til að komast í vinnuna og margir úr þeim hópi reyndar miklu lengra.

Barnafjölskyldur eru bíleigendur

Níu af hverjum tíu barna­fjölskyldum eiga bíl, það er talsvert hærra hlutfall en hjá öðrum þjóð­félagshópum og þetta hlutfall hefur hækkað á síðustu árum. Samkvæmt rannsókn félags danskra bifreiða­eigenda, FDM, eru ástæðurnar áðurnefnd fjarlægð frá vinnustað og lakari almennings­samgöngur í minni bæjum og dreif­býlinu. Lausnin er bíll.

Þótt stjórn­málamenn tali oft og mikið um að draga úr umferð hefur það litlu skilað. Rekstur fyrir­tækja sem sinna almennings­samgöngum hefur átt á brattann að sækja, ekki síst vegna skorts á fjármagni til endurnýjunar og viðhalds, og það þýðir einfald­lega lakari þjónustu og það að einka­bíllinn sækir á. Tregða stjórn­valda til að verja nægilegum fjármunum til uppbyggingar vega­kerfisins hefur orðið til að lítið gerist í að bæta stóru umferðar­göturnar, sem Danir kalla motorveje. Þegar landsmenn flykkjast svo út á göturnar á leið til eða frá vinnu anna göturnar ekki umferðinni og í stað þess að bruna á eðlilegum hraða breytist umferðin í eins konar snigla­lest, eins og eitt dagblað­anna komst nýlega að orði í umfjöllun um þessi mál.

32 milljarðar vegna hægagangs í umferðinni

Tíminn er peningar er stundum haft á orði, ekki síst þegar eitthvað gengur hægar en ráð er fyrir gert. Þetta með hægaganginn á sannarlega við um umferðina víða í Danmörku , einkum á hinum svonefndu „álags­tímum“ á morgnana og síðdegis.

Í yfirliti dönsku vegamála­stjórnarinnar kemur fram að á síðasta ári óku Danir um 600 milljónum kílómetra meira á vegum landsins en árið áður og allt bendi til áfram­haldandi aukningar.

Tafirnar í umferðinni kosta peninga og það enga smáaura. Vegamála­stjórnin hefur reiknað út hvað tafirnar kosta. Það var gert með því að bera saman tímann sem tekur að aka tilteknar vega­lengdir án tafa og svo á „snigla­hraðanum“. Þetta hefur svo verið marg­faldað með fjölda bíla sem um göturnar aka ásamt töpuðum vinnutíma og töpuðum frítíma og svo allt yfirfært í peninga vegna tafanna. Og útkoman er ekki smáaurar, heilir 32 milljarðar danskra króna (620 milljarðar íslenskir) á einu ári. Sérfræðingur vegamála­stjórnarinnar sagði, í viðtali við danska útvarpið, DR, að þeim sem unnu að verk­efninu hefði blöskrað þessi upphæð og farið margsinnis yfir útkomuna til að fullvissa sig um að rétt væri reiknað. Hann sagði jafnframt að ekki væri bjartara fram undan í þessum málum. „Það tapa allir á töfunum nema eldsneytis­salarnir,“ sagði sérfræðingurinn.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eitt og annað

8 mín.
Eitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski herinn hefur árum saman mátt búa við niður­skurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mannskap. Slæmur aðbúnaður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækjast eftir hermennsk­unni. Nýlega varð danski flotinn að aflýsa leiðangri til Grænlands vegna þess að ekki var hægt að manna leiðangurs­skipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flotans og geta verið vatn á myllu Bandaríkja­forseta.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár