Skærustu stjörnur rappsins heyja vægðarlaust upplýsingastríð

Rapp­ar­arnir Kendrick Lamar og Drake kepp­ast nú við að gefa út hvert lagið á fætur öðru þar sem þeir bera hvorn annan þungum sökum. Kendrick Lamar sakar Drake um barn­a­níð og Drake segir Kendrick hafa beitt sína nán­ustu ofbeldi fyrir luktum dyrum. Á und­an­förnum mán­uðum hafa menn­irnir gefið út níu lög um hvorn annan og virð­ast átök­unum hvergi nærri lokið. Rapp­spek­úlant­inn Bergþór Másson segir stríðið afar athygl­is­vert.

Skærustu stjörnur rappsins heyja vægðarlaust upplýsingastríð
Kendrick Lamar og Drake voru í fyrstu vinir en þeim vin­skap lauk fyrir tólf árum. Nú hefur fjand­skapur þeirra náð hámarki og sett banda­rísku rapp­sen­una á hlið­ina.

Það andar köldu á milli rapp­ar­anna Drake og Kendrick Lamar. Um þessar mundir kepp­ast lista­menn­irnir tveir við að gefa út hvert lagið á fætur öðru þar sem þeir fara ófögrum orðum um hvorn annan.

Yfir helg­ina sem leið hefur Kendrick Lamar gefið út tvö svokölluð diss-lög (e. diss track), Meet the Grahams og lagið Not Like Us. Í hinu síð­ar­nefnda lagi sakar Kendrick Lamar and­stæð­ing sinn um að vera barn­a­níð­ingur. 

Sögu­sagnir og orðrómar um óvið­eig­andi sam­skipti Drake við ungar stúlkur hafa verið á kreiki um nokk­urt skeið. Til að mynda vakti náinn vin­skapur Drake og leikkon­unnar Millie Bobby Brown mikla athygli á sínum tíma. Þau kynnt­ust árið 2017 þegar leik­konan var ein­ungis fjórtán ára gömul og áttu þau í reglu­legum sam­skiptum í gegnum smá­skila­boð, sem mörgum hefur þótt tor­tryggi­legt.

Níu lög á tveimur mánuðum

Rapp­ar­anir tveir hafa skipst á pílum í rúman ára­tug en nú virð­ist ágrein­ingur þeirra hafa …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár