Davíð kallar borgarstjórn bjálfa fyrir að taka niður styttuna af Séra Friðriki

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins segir upp­lýs­ingar um að Séra Friðrik Frið­riks­son, stofn­andi KFUM, hafi beitt fjöl­marga drengi kyn­ferð­is­legu áreiti og ofbeldi vera „get­gátur eins manns“ eftir að „ímynd­un­ar­afl hans fór loks í gang eftir tæp 75 ár.“ Það að stytta af honum hafi verið fjar­lægð sé merki um ofstæki þeirra sem noti hvert tæki­færi til að þykj­ast betra og pen­inga­laus­ara en annað fólk.

Davíð kallar borgarstjórn bjálfa fyrir að taka niður styttuna af Séra Friðriki
Þakk­látur Davíð Oddsson seg­ist þakk­látur fyrir kynni sín af Séra Friðriki og að stytta af honum hafi verið tekin niður af ofstæk­is­fólki til að selja bók. Mynd: Skjáskot

Þetta skrifar Davíð Oddsson, annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, í Reykja­vík­ur­bréfi blaðs­ins í dag. Þar vísar hann í ákvörðun borg­ar­ráðs Reykja­víkur sem sam­þykkti í nóv­em­ber í fyrra að láta taka niður stytta af Séra Friðriki Frið­riks­syni, stofn­anda kristnu æsku­lýðs­fé­lag­anna KFUM og KFUK á Íslandi, sem stað­sett var á horni Lækj­ar­götu og Amt­manns­stígs. 

Tilefnið var að í bók­inni „Séra Friðrik og drengirnir hans“ eftir Guðmund Magn­ús­son sagn­fræð­ing og blaða­mann komu fram ásak­anir á hendur Friðriki um kyn­ferð­is­legt áreiti og ofbeldi sem hann er sagður hafa beitt drengi. Í kjöl­far útgáfu bók­ar­innar komu fram fleiri frá­sagnir af brotum Friðriks, meðal ann­ars í Heim­ild­inni.

Styttan var tekin niður eftir að Reykja­vík­ur­borg leit­aði umsagna KFUM og KFUK ann­ars vegar og Lista­safns Reykja­víkur hins vegar, um hvort taka ætti minn­is­merkið af stalli. Umsagn­irnar hnigu báðar í sömu átt, að tala ætti minn­is­merkið niður. 

FjarlægðStyttan af Séra Friðriki og litla drengnum var fjar­lægð í jan­úar síð­ast­liðnum og er nú í geymslu.

Algjör sam­staða var í borg­ar­ráði um að láta fjar­lægja stytt­una, sem var af Séra Friðriki og ótil­greindum litlum dreng. Full­trúar allra flokka sem þar sitja sam­þykktu að hún yrði tekin niður, en Séra Friðrik var hífður af stalli í jan­úar síð­ast­liðnum.

Peningalausir sem þykjast betri en annað fólk

Davíð, sem er fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur, for­sæt­is­ráð­herra og seðla­banka­stjóri ásamt því að hann var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í um fjórtán ár, segir í Reykja­vík­ur­bréf­inu að hann hafi verið hallur undir KFUM og sé þakk­látur fyrir að hafa kynnst Séra Friðriki, þótt hann væri vel við aldur þegar kynni þeirra hófust. Hann segir stytt­una hafa verið tekna niður til að selja bók, sem þó hafi ekki gengið vel. „Þúsundir ung­menna, nú fyrir löngu full­veðja menn, könn­uð­ust ekki við þetta tal. Erlendis er þessi teg­und af ofstæki, „WOKE“, nýtt um hegðun fólks, sem notar hvert tæki­færi til að þykj­ast betra en annað fólk, og sönn­un­ar­merkið að vera meira „politically correct“ en annað fólk og pen­inga­laus­ara.“

Davíð líkir stöð­unni svo við það sem átt hefur sér stað í Banda­ríkj­unum þar sem „stand­myndir af afreks­mönnum fyrir tugum eða hund­ruðum ára [séu] sprengdar í tætlur af WOKE, af því að ein­hver taldi stytt­una stang­ast á við sjón­ar­mið í núinu. Haft var til rétt­læt­ingar að við­kom­andi hafi ekki verið full­kom­inn í öllum greinum.“

Alls hafa rúm­lega 160 styttur og ann­ars­konar minn­is­varðar verið fjar­lægðir úr almanna­rýmum í Banda­ríkj­unum, og þorri þeirra hefur verið fjar­lægður á síð­asta tæpa ára­tug. Flestar voru stytt­urnar í þeim hluta Banda­ríkj­anna sem áður til­heyrðu Suð­ur­ríkja­sam­band­inu þar sem aðskiln­að­ar­stefna milli hvítra og svartra, sem fól í sér skert rétt­indi og lífs­gæði fyrir síð­ar­nefnda hóp­inn, var lengi vel lög­fest og við­ur­kennd.

Allur gangur er á því hvernig nið­ur­rif­inu hefur verið háttað. Stundum hafa ríki eða sveit­ar­fé­lög haft frum­kvæði að því, en stundum hafa mót­mæl­endur ein­fald­lega fjar­lægt stytt­urnar eða minn­is­varð­anna sjálfir. 

Reistar til að ógna svörtum

Þrýst­ingur á að fjar­lægja stytt­urnar eða minn­is­varð­anna jókst mikið eftir að Dylann Roof myrti níu manns í kirkju svartra í Charleston í Suður-Karólínu í Banda­ríkj­unum þann 17. júní árið 2015. Roof, sem var dæmdur til dauða fyrir hat­urs­glæp, sagð­ist hafa framið ódæðið til að hvetja til þess að aðskiln­að­ar­stefna milli hvítra og svartra í Banda­ríkj­unum yrði end­ur­vakin og að hann hafi jafn­vel viljað hefja kyn­þátta­stríð. Mál­staður þeirra sem vildu losna við stytt­urnar fékk enn meiri byr í seglin eftir að George Floyd var myrtur af hvíta lög­reglu­mann­inum Derek Chauvin í maí 2020, en morðið á honum leiddi umfangs­mestu mót­mæla í Banda­ríkj­unum í ára­tugi.

Þeir sem tala fyrir af styttur verði fjar­lægðar úr opin­berum rýmum segja að þær hafi ekki verið reistar sem minn­is­varðar heldur til að ógna svörtum íbúum Banda­ríkj­anna, sér­stak­lega í Suðrinu, eftir borg­ara­styrj­öld­ina í Banda­ríkj­unum, sem einnig er nefnt Þræla­stríðið, og stað­festa yfir­burði hvítra. 

And­stæð­ingar þess að fjar­lægja minjarnar telja að með því sé verið að afmá sög­una og að í því felist virð­ing­ar­leysi fyrir arf­leið Banda­ríkj­anna. Hvítir þjóð­ern­is­sinnar og nýnas­ista­hópar hafa mót­mælt nið­ur­rif­inu sér­stak­lega og í sumum Suð­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna hafa verið sam­þykkt lög sem vernda minn­is­varða í opin­berum rýmum frá því að vera rifnir niður.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JHÞ
    Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifaði
    er einhver til í að taka lyklaborðið hans DO úr sambandi?
    0
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Er ekki öllum sama hvað þessi afdankaði íhaldsboli er að rymja.
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Ég er þakklát fyrir að Davíð ræður engu lengur.
    1
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Það er tilvalið að koma Stittunu fyrir i Hadegismoum hja Höfuðstöðvum Moggans
    Þa getur DO tekið gleði sina a ny.
    2
  • Magnus Magnusson skrifaði
    Sjálfsagt er að fjarlæga styttur af trúarofstækis mönnum sem dreyfðu stórhættulegum hindurvitnum meðal saklausra barna, sem fylgir of nær ólæknandi heilaskaði. Skiljanlegt að þær hafi verið látna standa meðan mesti trúarofstækis maður allra bókmennta, hér kallaður Jesú, er tilbeðinn af sérstakri ríkisstofnun á 21. öld.
    -1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Legg til að styttuhausinn af Davíð í ráðhúsinu verði fjarlægður vegna fyrri og núverandi starfa hans = gaf óreiðupésum Landsbanka/Búnaðarbanka-helsti hrunverjinn-helsti þræll auðvaldsins-afhenti Kaupþings-bófunum síðasta gjaldeyri þjóðarinnar-helsti dritstjórinn.
    1
  • skrifaði
    Það væri kannski hægt að taka þennan mótþróa DO við brottflutning á styttunni á annað plan með því að taka frá skika þar sem safnað væi saman minnisvörðum um helstu illmenni þjóðarinnar að mati lýðsins þar sem fólk gæti fengið útrás fyrir reiði sína og vanlíðan með því að kasta skít að minnisvörðunum, eins konar "meinhorn";-)
    3
  • Helga Ingadóttir skrifaði
    Styttur hafa sögulega merkingu, ekki endilega góða. Eigum við að útrýma sögulegum minnisvörðum? Er ekki nóg að merkja þær vel og tilgreina fyrir hverju þær standa, góðu eða illu?
    0
    • Magnus Magnusson skrifaði
      Það er víst lítið af styttum af Hitler í Þýskalandi.
      3
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Hvaða máli skiptir hvað Davíð finnst. Afhverju að skrifa frétt um hann ?
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sr. Friðrik og drengirnir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár