Nýtingin er stærsta áhættan við fleiri virkjanir

Á meðan Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að virkja þurfi meira til þess að nýta sjálf­bæra orku betur segir Halla Hrund Loga­dóttir, orku­mála­stjóri og for­seta­fram­bjóð­andi, að stærsta áhættan við fleiri virkj­anir sé að orkan nýt­ist ekki inn í þau verk­efni sem stjórn­völd hafa sett á odd­inn.

Nýtingin er stærsta áhættan við fleiri virkjanir
Orkan og nátt­úran Tilvist nátt­úr­unnar og orkunnar er sam­ofin að mati Hölly Hrundar Loga­dóttur, orku­mála­stjóra og for­seta­fram­bjóð­anda. „Stundum erum við að búa til orku úr nátt­úr­unni. Báðar þessar auð­lindir þurfa að eiga sitt ein­staka virði einar og sér en við verðum að hugsa að til­vist þeirra er sam­ofin.“ Mynd: Golli

Halla Hrund Loga­dóttir, orku­mála­stjóri og for­seta­fram­bjóð­andi, segir að mark­mið orku­skipta muni nást í gegnum betri nýt­ingu. „Stærsta áhættan við nýja fram­leiðslu, fleiri virkj­anir, í sam­hengi við orku­skiptin, er að orkan sé ekki að nýt­ast inn í þau verk­efni sem stjórn­völd hafa sett á odd­inn. Huga þarf að hvötum þannig að orkan rati í þessa mála­flokka ásamt því að styðja við atvinnu­upp­bygg­ingu á lands­byggð­inni,“ segir Halla Hrund í ítar­legu við­tali í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar. 

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir það ólíð­andi að talað sé um orku­skort og sagði í fyrstu við­tölum sem hann veitti eftir að hann tók við sem for­sæt­is­ráð­herra í síð­ustu viku að virkja þurfi meira til að nýta sjálf­bæra orku betur. 

En er það svo?  

Halla Hrund hugsar sig vel um áður en hún tekur til máls. „Ef það á að ná mark­miðum orku­skipta ger­ist það í gegnum betri nýt­ingu, mögu­lega í gegnum breyt­ingar á samn­ingum fyr­ir­tækja við sína við­skipta­vini, það er að orku­fram­leið­endur ákveði að selja til orku­skipta­verk­efna í stað­inn fyrir að selja til ein­hverra aðila, eða með nýrri fram­leiðslu.“

Stjórn­völd hafa sett mark­mið um að Ísland verði laust við olíu árið 2040. Halla Hrund segir að orku­skiptin verði að ger­ast í ólíkum skrefum. „Fyrsta skrefið, þar sem tæknin er komin lengst, eru orku­skipti á landi. Það er til­tölu­lega auð­velt í sjálfu sér, það er lítið af orku sem þarf og tæknin er til staðar. Næsta skref er orku­skipti á hafi, þar er tæknin minna þróuð en margt að ger­ast. En það eru alls konar breyt­ingar sem þarf að hafa í huga, það þarf að hugsa um aðgengi að elds­neyti í höfnum, end­ur­hönnun skipa og margt sem þarf að huga að í þeirri umbreyt­ingu. Skref þrjú er síðan orku­skipti í flugi. Þar fylgjum við alþjóð­legum stöðlum. Þetta eru þessi skref. Ég held að stærsta tæki­færið okkar núna, við erum fremst í orku­málum að mörgu leyti, við eigum að klára orku­skiptin á landi því það er líka áfram­hald­andi saga að miðla og þessi saga skiptir okkur máli í alþjóð­legu sam­hengi. Þetta er eitt af þeim sviðum sem við höfum verið að leiða á og við eigum að halda áfram að byggja á þeirri sögu með áþreif­an­legum árangri. En við þurfum að halda áfram til að vera áfram leið­andi á þessu sviði.“

Tilvist náttúrunnar og orkunnar er samofin 

Halla Hrund er með stórt nátt­úru­hjarta, eins og hún kemst sjálf að orði. En hvar endar nátt­úran og orkan byrjar? „Í okkar sam­hengi erum við að nýta nátt­úr­una í orku­málum á Íslandi. Alveg eins og í allri auð­linda­nýt­ingu, í land­bún­aði erum við að nýta nátt­úr­una, í orku­málum erum við að nýta nátt­úr­una. Sem fisk­veiði­þjóð erum við að nýta nátt­úr­una. Það sem ég lærði fyrir austan er að við erum alltaf að hugsa hvernig við getum verið að nýta auð­lind­irnar okkar en samt verið að skila land­inu af okkur í betra horfi eða með fleiri tæki­færum fyrir kom­andi kyn­slóðir. Það þýðir að það er alltaf eitt­hvert jafn­vægi. Í sam­hengi við orku­mál og nátt­úru á Íslandi er stundum mik­il­vægt að hafa svæði þar sem auð­lindin sjálf er nátt­úran sjálf. Stundum erum við að búa til orku úr nátt­úr­unni. Báðar þessar auð­lindir þurfa að eiga sitt ein­staka virði einar og sér en við verðum að hugsa að til­vist þeirra er sam­ofin.“    

Viðtalið við Höllu Hrund í heild sinni má nálg­ast hér

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár