Katrín afsalar sér biðlaunum fram yfir forsetakosningar

Bæði fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og kosn­inga­stjóri for­seta­fram­boðs hennar, sem var áður aðstoð­ar­maður Katrínar Jak­obs­dóttur, hafa afsalað sér bið­launum fram yfir for­seta­kosn­ingar, eða til 1.júní.

Katrín afsalar sér biðlaunum fram yfir forsetakosningar
Í fram­boði Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti fram­boð til for­seta fyrir viku síðan og veitti fjöl­miðlum við­töl í Hörpu í kjöl­farið. Með henni á mynd­inni eru Bergþóra Bene­dikts­dóttir og Lára Björg Björns­dóttir, sem verið hafa aðstoð­ar­menn hennar í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um ára­bil. Bergþóra er nú kosn­inga­stjóri for­seta­fram­boðs Katrínar. Mynd: Golli

Katrín Jak­obs­dóttir, sem sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra til að fara í for­seta­fram­boð um síð­ustu helgi, hefur ákveðið að afsala sér bið­launum á meðan að kosn­inga­bar­áttan stendur yfir, eða til 1.júní, þegar kosið verður. Kosn­inga­stjóri Katrínar greindi Heim­ild­inni frá þessu seint á fimmtu­dags­kvöld.

Þegar Katrín kynnti fram­boð sitt til for­seta fyrir viku síðan spurði blaða­maður Heim­ild­ar­innar hvort hún ætl­aði að þiggja bið­laun og sagð­ist hún gera ráð fyrir því. „Ég er að segja af mér þing­mennsku. Vænt­an­lega eru ein­hver bið­laun eða eitt­hvað slíkt. Ég hef eig­in­lega ekki velt því fyrir mér enn þá. En segi af mér þing­mennsku og þá vænt­an­lega nýt ég sömu rétt­inda og aðrir þing­menn sem hætta.“ 

Bergþóra Bene­dikts­dóttir, sem hefur verið aðstoð­ar­maður Katrínar í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um ára­bil, en er nú orð­inn kosn­inga­stjóri hennar í for­seta­kosn­ing­unum, hefur einnig afsalað sér bið­launum til 1. júní en hún á rétt á slíkum í þrjá mán­uði.

Bæði Katrín og Bergþóra afsöl­uðu sér laun­unum frá og með síð­asta þriðju­degi, þegar þær hættu störfum. Hvorki fram­bjóð­and­inn né kosn­inga­stjór­inn hennar verða því á launum frá rík­inu á meðan að á kosn­inga­bar­átt­unni stendur, en munu þiggja þau þegar henni lýkur ef þau verða ekki komin í annað starf. Næsti for­seti Íslands tekur við af Guðna Th. Jóhann­essyni í ágúst næst­kom­andi. 

Vel á þriðju milljón á mánuði

Í lögum um þinga­fara­kaup alþing­is­manna kemur fram að ráð­herra eigi „rétt á bið­launum úr rík­is­sjóði er hann lætur af emb­ætti. Biðlaun jafnhá ráð­herra­launum eru þá greidd í þrjá mán­uði. Eftir ráð­herra­störf í sam­fellt eitt ár eða lengur eru greidd bið­laun í sex mán­uði.“

Katrín er búin að vera for­sæt­is­ráð­herra síðan árið 2017 og á því rétt á bið­launum í sex mán­uði frá og með þeim degi sem hún lét af störfum sem for­sæt­is­ráð­herra. Hún frestaði því að hefja með­mæl­enda­söfnun þangað til að hún var form­lega búin að afhenda lyklana að stjórn­ar­ráð­inu til Bjarna Bene­dikts­sonar en náði til­skildum 1.500 manna fjölda á skömmum tíma.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem birtar eru á vef Alþingis nema mán­að­ar­legar launa­greiðslur for­sæt­is­ráð­herra um 2.680.000 króna á mán­uði. Mán­að­ar­legar greiðslur sem Katrín á rétt á gætu þó verið ívið hærri en opin­ber gögn gefa til kynna. Lög um laun for­seta og ann­arra hátt­settra emb­ætti eru í upp­námi eftir að Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið þyrfti að halda sig við upp­haf­lega launa­út­reikn­inga, útreikn­inga sem þáver­andi fjár­mála­ráð­herra reyndi að breyta eftir að Fjár­sýsla rík­is­ins til­kynnti að launin höfðu verið reiknuð út frá röngum við­miðum. 

Í kjöl­farið fengu þing­menn, ráð­herrar, dóm­arar og aðrir emb­ætt­is­menn leið­rétt­ingu launum sínum og end­ur­greiðslu á fjár­munum sem fjár­mála­ráð­herra krafði þá um að end­ur­greiða á sínum tíma. 

Enn sem komið er liggur ekki fyrir hver kostn­aður rík­is­sjóðs vegna launa­leið­rétt­ing­ar­innar muni verða. Í frétt Heim­ild­ar­innar frá síð­asta mán­uði til­kynnti tals­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að ráð­herra væri búinn að skipa starfs­hóp um breyt­ingar á gild­andi fyr­ir­komu­lagi æðstu emb­ætt­is­manna. 

Eitt af verk­efnum hóps­ins er leggja mat á kostn­að­inn við leið­rétt­ing­una og birta matið í sam­an­tekt um greiðslur rík­is­ins vegna leið­rétt­ingar í launa­við­mið­unum. Þessi skýrsla hefur enn ekki verið birt.    

Dýrt að fara í framboð

Það er kostn­að­ar­samt að fara í for­seta­fram­boð. Heim­ildin greindi nýverið frá því að í kosn­ing­unum ári 2016 – þeim síð­ustu þar sem sitj­andi for­seti var ekki í fram­boði – hafi fjórir fram­bjóð­endur sem fengu flest atkvæði sam­an­lagt eytt 109 millj­ónum króna á núvirði í fram­boð sín.

Guðni Th. Jóhann­es­son eyddi um 35 millj­ónum króna í sitt fram­boð að núvirði. Framboð Höllu Tóm­as­dóttur, sem fékk næst­flest atkvæði á eftir Guðna, kost­aði rúm­lega 13 millj­ónir króna og Andri Snær Magnason eyddi 21 millj­ónum króna í sitt fram­boð.

Dýrasta fram­boðið var þó rekið af Davíð Oddssyni sem varði sam­tals um 40 millj­ónum króna í sína kosn­inga­bar­áttu. Þar af lagði Davíð sjálfur til um 15,4 millj­ónir króna. Þá styrkti eig­in­kona hans fram­boðið einnig um 560 þús­und krónur að núvirði.  

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Já blessuð, þó hún kunni töfrabrögð þá platar hún mig ekki. Ég heyrði í gær að hún hefði “afþakkað” ísraelskar snyrtivörur sem nota átti á hana í einhverju stúdíói. Og svo biðlaunin á bið. Hún er hrædd við okkur það er augljóst. En það er ansi seint að finna samviskuna núna. Augljós PR trix
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Sannið þið til.
    Þetta plot að koma svika tuðruni katrínu jakopsdóttur í embætti forseta Íslands var með ráðnum hug gert og gert með því eina markmiði að hún muni skrifa undir og samþykkja allan þann flaum af samskonar og svipuðum viðurstyggilegum frumvörpum og hér að neðan.
    Sem munu án nokkurns vafa rigna yfir þjóðina sem síðasti naglinn í líkkistu lýðræði íslensku þjóðarinnar.
    Markið þið orð mín!

    „Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.“

    ☻g því miður munu meðvirku heilalausu kvartvitarnir veita þessara fölsku lyga tuðru katrínu jakopsdóttur brautargengi í forsetastólinn á berrassaðastöðum.
    -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár